×

Nós usamos os cookies para ajudar a melhorar o LingQ. Ao visitar o site, você concorda com a nossa política de cookies.

Hannesar saga Grásteins, 13. Fleiri viðburðir: börn hvekkja… – Texto para ler

Hannesar saga Grásteins, 13. Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes...

Intermediário 1 lição de Islandês para praticar a leitura

Comece a aprender esta lição agora

13. Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes...

Hannesar saga Grásteins, þrettánda bók. Eftir Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur.

Fleiri viðburðir.

Börn kveikja Hannes. Hannes hvekkir stara.

Hannesar saga Grásteins, þrettánda bók. Fleiri viðburðir. Börn hvekkja Hannes. Hannes hvekkir stara.

Freyjukettir, Norræn menning. Lesum myndir. Lesum stuttan texta. Lesum langa sögu.

Þrettánda bók af tuttugu

Fleiri viðburðir: Börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara

Hannes fer stöku sinnum í langar könnunarferðir um hverfið sem hann er nýfluttur í.

Að skoða sig um.

Hann kannar ekki eingöngu götur og húsagarða...

Hoppar inn.

...heldur á hann þá til að birtast í eldhúsgluggum á neðstu hæð.

Sumum bregður að vonum ofsalega við svo óvænta heimsókn.

En Hannes telur yfirleitt ekki eftir sér að aðstoða við (sum) húsverk, eins og að þrífa upp rjóma til dæmis.

Þess vegna taka flestir svona heimsóknum bara vel.

Hannes lepur.

(Hann hellti niður!)

Krakkar klappa honum og gefa honum harðfisk.

Víða í húsunum í hverfinu eru til ágætis sófar og hægindastólar. Og ágætis rúm með mjúkum sængum. Þarna sefur Hannes.

Þótt flestir séu góðir við Hannes, skulið þið nú heyra hvað kom fyrir hann eitt sinn? Er hann var á heimleið úr einhverjum leiðangrinum: Krakkaskríll reynir að ná Hannesi. Honum tekst ekki að sleppa burt.

Hrekkjusvín.

Krakkarnir ná honum og troða honum ofan í poka. Síðan hefja krakkarnir þann ljóta leik að fleygja pokanum með kettinum í, á milli sín og upp í loftið.

Hannes er í poka.

Þetta er hræðileg lífsreynsla fyrir Hannes.

Hræðilegri en orð fá lýst.

Í kolniða myrkri finnur hann sig þeytast upp í loftið; Veit ekkert hvar og hvenær hann kemur niður. Ég veit ekki hve lengi þau kvöldu dýrið þannig, þessi skrýtnu börn. Hvernig geta börn verið svo heimsk að vera vond við dýr?

Loks sleppur Hannes.

Þegar Hannes loks sleppur frá hrekkjusvínunum, er hann ofsalega hvekktur. Hann hleypur sem fætur toga burt frá þeim. Hannes fer ekki langt frá húsinu næstu daga á eftir.

Hann situr lengst af og horfir út um gluggann.

Enda er dálítið spennandi að sjá í garðinum hennar Fíu:

Hannes er inni.

Tvenn starahjón eiga í bardaga um fuglahús, sem rúmar aðeins eina fjölskyldu.

Raunar hafa þrastahjón verpt hér árum saman. En þrestirnir flýðu gargið og lætin í störunum. Þrestirnir eru frekir, --en stararnir eru enn þá frekari.

Fuglar úti. Fuglahús á húsvegg.

Loks tekst öðru staraparinu að bola hinu burt. Þau gera hreiður úr alls konar drasli: snærisspottum, bréfsnifsum, plastpokarifrildi og fleiru.

Svo verpa þau.

En Hannes situr nú dag eftir dag... --þeim til sárrar gremju -- í trénu fyrir framan fuglahúsið og bíður -- með hinni einstöku ró kattarins.

Egg.

Hannes bíður þess, að komast í færi við þau. Veiðar krefjast þolinmæði. Fránum augum fylgir rólegt dýrið hverri hreyfingu fuglanna. Í hverjum slökum vöðva býr ógnarkraftur. Í mjúkum loppum felast hvassar klær.

Loksins, loksins fara ungar að tísta í fuglahúsinu. Hannes fer að langa eftir að þeir komi út. Hann fikrar sig upp eftir trénu. Greinarnar eru æ grennri og sveigjanlegri eftir því sem ofar dregur. Ungatístið og lyktin eru svo eggjandi, að nú halda honum engin bönd.

Ungar.

Foreldrarnir gera loftárás í sífellu, til þess að reyna að bjarga lífi unganna sinna. Óvætturinn í kattarlíki, Hannes Grásteinn, lætur það ekki á sig fá.

Veiðistoltið leynir sér ekki, er hann hefur stolið einum unganum úr hreiðrinu og drepið hann.

Hann ætlar að fara með hann heim og sýna okkur.

Hannes með unga.

Nokkrir krakkar koma auga á Hannes, þar sem hann gengur yfir grasflötina. Þau öskra:

-Köttur búinn að drepa fugl!

-Köttur búinn að drepa fugl!

-Við skulum henda grjóti í hann fyrir að drepa litla fuglinn.

Mig ber að er þau eru í óðaönn að grýta Hannes, sem reynir að felast milli runna.

Hann er vondur.

Sem betur fer eru engir stórir steinar nærtækir.

-Hann er vondur þessi köttur, segja þau.

-Hann drap fugl.

-Krakkar, segi ég, -kötturinn er rándýr. Eðli hans er að drepa sér til matar. Hafið þið ekki oft étið fugl, sem búið er að drepa? Til dæmis kjúkling, eða rjúpu á jólunum?

Hafið þið ekki smakkað ýsu eða þorsk? Einhver maður er búinn að veiða fiskana og drepa þá. Étið þið lambasteik? Þið vitið að einhver slátrar lömbunum og við mennirnir étum þau svo.

Þessi guli köttur, sem er nokkuð mikil veiðiklķ, heitir Hannes.

Eðli rándýra.

Hann er nýfluttur í hverfið.

Ef þið sjáið einhverja ljóta krakka hrekkja hann, viljið þið þá hjálpa honum hingað heim.

Þau lofa því.

Þetta síðasta hefði ég ekki átt að segja.

Dagana næstu á eftir er Hannes vart kominn út, að ekki banki eitthvert barnið með Hannes í fanginu:

-Hannes ætlaði að fara út á götu.

-Ég passa Hannes.

Og þegar Hannes er inni er líka bankað.

-Má Hannes koma út?

Hannes er fljótur að fela sig, þegar hann heyrir til þeirra. Ég segi krökkunum að Hannes vilji vera inni núna. Þau megi klappa honum þegar hann fari út á eftir, en svo verða þau að leyfa honum að hlaupa. Hannes er búinn að finna sér innileynistað: Hátt uppi á skáp er stór dýrmæt leirskál.

Gult skott.

Einhvern tíma sást stórt gult skott koma upp úr skálinni.

Þá komst upp um nýja felustaðinn.

Hér endar þrettánda bók Hannesar sögu Grásteins, þrettánda bók af tuttugu, Fleiri viðburðir, Börn hvekkja Hannes, Hannes hvekkir stara.

Hannesar saga Grásteins, tuttugu bækur eftir Guðrúnu Kristínu

Fyrsta bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins

Önnur bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli

Þriðja bók: Hafri fer sér að voða, Eldra-Gúlla leiðist

Fjórða bók: Hannes Grásteinn og Surtarbrandur

Fimmta bók: Kettlingunum stolið

Sjötta bók: Dýna sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar

Sjöunda bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman

Áttunda bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum

Níunda bók: Surtarbrandur fer sér að voða

Tíunda bók: Hannes veiðikló

Ellefta bók. Hefur kötturinn níu líf?

Tólfta bók. Hannes flytur í nýtt hverfi

Þrettánda bók. Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara

Fjórtánda bók: Milli

Fimmtánda bók: Snjótittlingaveiðar

Sextánda bók: Nýi kettlingurinn

Sautjánda bók. Vor í lofti

Átjánda bók. Hannes fer í sveit

Nítjánda bók. Hvolparnir

Tuttugasta bók. Dánartilkynning

(þið munið að Hannesar saga er um sanna viðburði á kattarævi)

Útgefandi: Freyjukettir, Norræn menning

Mjá.

Hannesarsaga Grásteins. Tuttugu skemmtilegar bækur. Yndisleg, sönn, viðburðarík saga.

Mjá.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE