×

Nós usamos os cookies para ajudar a melhorar o LingQ. Ao visitar o site, você concorda com a nossa política de cookies.

Promoção de Ano Novo Até 50% de Desconto
Inscreva-se gratuitamente
image

Vinkonur vors and og blóma, 1. Íris, Eva og Hildur

1. Íris, Eva og Hildur

Vinkonur vors og blóma

Íris, Eva og Hildur ræða borgarmál, gamla fólkið á Facebook og skort á sundlaugum miðsvæðis.

Þegar ég var á þeirra aldri voru hjólabretti fyrir stráka og kannski þess vegna sem þær vöktu athygli mína.

Ákveðin að hafa uppi á þeim og forvitnast um þetta eitursvala miðbæjargengi fann ég þær í gegnum samstarfskonu vinkonu minnar.

Þegar ég hitti á þær voru stelpurnar nýkomnar úr Hljómskálagarðinum að njóta síðustu daga sumarfrísins á hjólabrettunum sem þær kalla „penny boards“.

Hjólabrettið er þeirra helsti samgöngumáti og þekkja þær orðið götur miðbæjarins inn og út.

Saman ræða þær um miðbæinn og samgöngur, gamla fólkið á Facebook og skort á sundlaugum í miðborginni.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE