×

Nós usamos os cookies para ajudar a melhorar o LingQ. Ao visitar o site, você concorda com a nossa política de cookies.

LingQ Mini Stories, 56 - Margrét tekur viðskiptaákvörðun – Text to read

LingQ Mini Stories, 56 - Margrét tekur viðskiptaákvörðun

Iniciante 2 Islandês lesson to practice reading

Comece a aprender esta lição agora

Margrét er markaðsstjóri hjá framleiðslufyrirtæki.

Hún er sannfærð um að núna sé besti tíminn fyrir fyrirtækið að auka umsvif fyrirtækisins til útlanda

úr því eftirspurn eftir vörum þess fer vaxandi á erlendum mörkuðum.

Útflutningur er ekki bara að aukast heldur eru líka framúrskarandi varahlutasalar í vissum erlendum löndum.

Að stækka fyrirtækið til útlanda gæti þannig aukið markaðshlutdeild og minnkað kostnað á sama tíma.

Sérhver útrás til útlanda mun krefjast vandlegrar skipulagningar.

Úr því aðstæður í hverju erlendu landi eru ólíkar, mun hún sannarlega þurfa að finna fólk með staðbundna sérþekkingu til að hjálpa henni.

Margrét hefur heimsótt flesta af mikilvægustu mörkuðunum í útlöndum.

Hún vill ekki taka feilspor og ákveður því að biðja núverandi viðskiptavini sína í útlöndum um ráð.

Það mun taka hana sinn tíma að gera nauðsynlegu rannsóknirnar til að ganga úr skugga um að nýja útrásarplaninu ljúki á árangursríkan hátt.

(Margrét segir frá)

Ég var markaðsstjóri hjá framleiðslufyrirtæki fyrir nokkrum árum.

Ég var sannfærð um að það væri kominn tími til fyrir fyrirtækið okkar að auka umsvifin til útlanda

úr því eftirspurn eftir vörum fyrirtækisins fór vaxandi á erlendum mörkuðum.

Útflutningur var ekki bara að aukast, heldur voru framúrskarandi varahlutasalar í vissum erlendum löndum.

Að stækka fyrirtækið til útlanda gæti þess vegna aukið markaðshlutdeild og minnkað kostnað á sama tíma.

Sérhver útrás til útlanda myndi krefjast vandlegrar skipulagningar.

Úr því aðstæður í hverju erlendu landi voru ólíkar, vissi ég að ég myndi þurfa að finna fólk með staðbundna sérþekkingu til að hjálpa mér.

Ég hafði heimsótt flesta af mikilvægustu mörkuðunum í útlöndum.

Ég vildi ekki taka feilspor og ákvað því að biðja þáverandi viðskiptavini mína í útlöndum um ráð.

Það átti eftir að taka mig sinn tíma að gera nauðsynlegu rannsóknirnar til að ganga úr skugga um að nýja útrásarplaninu lyki á árangursríkan hátt.

Spurningar:

1. Margrét er markaðsstjóri hjá framleiðslufyrirtæki.

Hver er vinnan hennar Margrétar?

Vinnan hennar Margrétar er að vera markaðsstjóri hjá framleiðslufyrirtæki.

2. Hún er sannfærð um að núna sé besti tíminn fyrir fyrirtækið að auka umsvifin til útlanda.

Um hvað er Margrét sannfærð?

Hún er sannfærð um að núna sé besti tíminn fyrir fyrirtækið að auka umsvifin til útlanda.

3. Í vissum löndum erlendis eru framúrskarandi varahlutasalar.

Hvar eru framúrskarandi varahlutasalar?

Í vissum löndum erlendis eru framúrskarandi varahlutasalar.

4. Að auka umsvifin til útlanda myndi auka markaðshlutdeild og minnka kostnað á sama tíma.

Hvað myndi það gera að auka umsvifin til útlanda?

Að auka umsvifin til útlanda myndi auka markaðshlutdeild og minnka kostnað á sama tíma.

5. Ég vissi að ég myndi þurfa að finna fólk með staðbundna sérþekkingu til að hjálpa mér.

Hverja vissi ég að ég myndi þurfa að finna til að hjálpa mér?

Ég vissi að ég myndi þurfa að finna fólk með staðbundna sérþekkingu.

6. Ég hafði heimsótt flesta af mikilvægustu erlendu mörkuðunum.

Hafði ég heimsótt alla af mikilvægustu erlendu mörkuðunum?

Nei, ég hafði heimsótt flesta af mikilvægustu erlendu mörkuðunum.

7. Ég ákvað að biðja þáverandi viðskiptavini mína í útlöndum um ráð.

Um hvað bað ég þáverandi viðskiptavini mína í útlöndum?

Ég bað þá um ráð.

8. Það átti eftir að taka mig sinn tíma að gera nauðsynlegu rannsóknirnar.

Átti það eftir að taka mig stuttan tíma að gera nauðsynlegu rannsóknirnar?

Nei, það átti eftir að taka mig sinn tíma að gera nauðsynlegu rannsóknirnar.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE