×

Mes naudojame slapukus, kad padėtume pagerinti LingQ. Apsilankę avetainėje Jūs sutinkate su mūsų slapukų politika.

Rassfar í steini, 1. Óstýrilátir söguþræðir – Tekstas skaitymui

Rassfar í steini, 1. Óstýrilátir söguþræðir

Pažengęs 1 Islandų pamoka, skirta skaitymo praktikai

Pradėkite mokytis šios pamokos dabar

1. Óstýrilátir söguþræðir

Algengt er að sögur hafi eina byrjun, ein sögulok og einn krókalítinn söguþráð þar á milli, en þannig er hún ekki sagan af ferð okkar Gísla um Ólafsveg sumarið 2015. Í henni eru margir söguþræðir, sumir krókóttir og sumir enda hvergi. Á sögunni þeirri þyrftu að vera margar byrjanir samtímis svo lesandinn fái að vita það bráðnauðsynlegasta strax í upphafi: Hver er þessi Ólafur? Hverjir erum við Gísli? Hvar er þessi vegur? Og hvers vegna fórum við hann? Það einfaldar svo alls ekki málið að Ólafur var tæpast einn maður heldur þrír eða fleiri og sennilega var enginn þeirra sá sem sýnist. Eins var um staði, atburði, tíma; fæst þessa var óyggjandi; það gat verið þarna eða annars staðar, svona eða öðruvísi, fyrr eða síðar. Það er ekki vitað með fullri vissu hvar Ólafsvegur var, né hitt hvort Ólafur þessi fór nokkurn tíma sjálfur þann veg. Þegar ég núna, að sögunni sagðri, lít aftur á þessi upphafsorð kemur mér í hug að flest er bara getsakir nema helst það sem er beinlínis fyrir framan nefið á manni: malbikið, barrtrén, sultardropinn.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE