×

Mes naudojame slapukus, kad padėtume pagerinti LingQ. Apsilankę avetainėje Jūs sutinkate su mūsų slapukų politika.

Brennu Njáls saga - stytt og einfölduð, 1. Njáll ættleiði... – Text to read

Brennu Njáls saga - stytt og einfölduð, 1. Njáll ættleiðir Höskuld

Tarpinis 1 Islandų lesson to practice reading

Pradėkite mokytis šios pamokos dabar

1. Njáll ættleiðir Höskuld

Árið er eitt þúsund. Njáll er í heimsókn hjá vinum sínum. Hjá þeim býr strákur sem heitir Höskuldur.

„Höskuldur, komdu hingað.“ segir Njáll. „Ég er með gjöf handa þér.“ Hann tekur gullhring af fingrinum sínum og gefur stráknum hringinn.

„Vá. Þakka þér fyrir.“ segir Höskuldur.

„Höskuldur, veist þú hver drap pabba þinn?“ spyr Njáll.

„Já. Ég veit að það var sonur þinn, Skarphéðinn, en ég veit líka að þú ert búinn að bæta fyrir morðið, svo að við þurfum ekkert að ræða það mál frekar.“

„Það er gott svar. Ég sé að þú verður góður maður.“ segir Njáll.

„Það er gaman að heyra þig segja.“ segir Höskuldur.

„Höskuldur, ég vil bjóða þér að búa hjá mér og fjölskyldunni minni.“ segir Njáll. „Ef þú ert til í það.“

„Já. Ég er til í það.“ segir Höskuldur.

Höskuldur fer þá heim til Njáls og býr hjá honum næstu árin. Njáll hugsar vel um Höskuld og fjölskyldunni þykir vænt um hann.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE