17. Vor í lofti
Guðrún Kristín Magnúsdóttir: Hannesar saga Grásteins, sautjánda bók: Vor í lofti.
Hannesar saga Grásteins, sautjánda bók: Vor í lofti. Hannesar saga Grásteins: Sönn saga.
Sautjánda bók: Vor í lofti.
Þessi stóri guli Hannes sem, lent hefur í svo mörgum hættulegum ævintýrum um ævina, er gæddur miklu sjálfstrausti. Hannes er nú búinn að sætta sig við aðskotadýrið Surt, þótt Surtur sé alveg dæmalaust lítið gefinn og aldrei til friðs. En Hannes lætur Surt líka vita hver það er sem ræður í þessu húsi.
Ólíkir kettir.
Nú er tekið að vora. Þá er eins og allt vakni og teygi sig. Jafnvel himinninn opnar augun eftir syfjulega daga og dimmbláa stjörnudrauma vetrarins. Fuglar, blóm og dýr teygja, forvitin, nefbroddinn út í loftið. Loftið svarar með vorgolukossi. Það er nú sem ósýnilegir fjötrar bráðna af öllu og öllum á Íslandi.
Vor -- og frelsi.
Vor.
Einhver óskýranleg þörf fyrir að hlaupa, hlaupa, hlaupa, hlaupa grípur lítinn kettling. Hlaupa út í vorið og auðvitað beint í Hannes!
Kæti.
Stóri guli kötturinn er líka hlaðinn vorfrelsi. Hann stekkur um garðinn -- með þetta stóra gula skott sitt, sem Surtur fær ekki staðist. Hannes hleypur alveg mátulega hægt fyrir Surt litla --og gætir þess að fara ekki út á götu. Hannes veit hve hættulegir bílar geta verið.
Þeir leika sér.
Allt í einu, -- þegar leikurinn stendur sem hæst -- birtist stór fressköttur í garðinum. Hannes veit hvað þetta táknar og hættir leiknum samstundis.
Surtur aftur á móti, hefur aldrei kynnst öðru en að sofa, eta og leika sér -- og heldur að þessi ókunni köttur sé jafn skemmtilegur og Hannes. Hann ákveður að stökkva á þennan og leika svolítið við hann.
„Nei, Surtur! Ekki!“
Auðvitað kallar Surtur yfir sig sína fyrstu alvarlegu lífsreynslu. Aðkomukötturinn tekur þetta óstinnt upp fyrir Surti.
(Honum yrði víst ekki skotaskuld úr að jafna um þennan litla bjálfa í eitt skipti fyrir öll.)
Kárnar nú brátt vorleikjagamanið.
Fressið slær Surt.
En nú er Hannesi grásteini að mæta. Hann líður ekki boðsflennur á sínu yfirráðasvæði.
Hannes kemur.
Eftir snörp áflog hörfar kötturinn úr garðinum. Hannes stendur eftir og dinglar rófunni, stoltur og reiður í senn. En hvað hefur orðið af Surti? Í ofboði stökk hann burt. En hvert?
En hvar er Surtur?
-Surtur! Surtur! Surt-surt! Kis-kis!
Við leitum og köllum fram á kvöld. Við spyrjum alla krakkana í kring hvort þau hafi séð Surt.
--Hvert hefur hann stokkið?
Næsta morgun höldum við áfram að leita að litla kjánanum.
Á hádegi er bankað. Fyrir utan stendur maður sem býr í næstu götu við okkur:
Fundinn.
-Þegar ég lyfti upp vélarhlífinni á bílnum mínum áðan, af einskærri tilviljun, sagði hann, -lá þessi þar undir, steinsofandi. Krakkarnir sögðu mér að þið hefðuð verið að leita að einhverju slíku.
Við verðum heldur en ekki kát að vita að ekkert hefur komið fyrir Surt. Surti hefði nú brugðið illa, ef maðurinn hefði gangsett bílinn án þess að verða var við kattarkjánann.
Surtur er hinn kátasti, vel útsofinn, en soltinn. Hann er alveg búinn að gleyma stóra kettinum og rífur í sig brauð, ost, aldinmauk, kókomalt og einhverjar fleiri matarruður.
Surtur er alæta.
Brauðafgangur með aldinmauki er nú hlutur sem Hannes Grásteinn leggur sér ekki til munns.
-Þú, Surtur, ert nú öllum sönnum rándýrum til skammar.
Vonandi þroskastu, grey vandræðagripurinn þinn.
Og Hannes hefur ekki frekari áhyggjur af því, hve mikill endemis kjáni Surtur getur verið.
-Brauð! Oj bara!
Hér endar sautjánda bók Hannesar sögu Grásteins, sautjánda bók af tuttugu, Vor í lofti.
Hannesar saga Grásteins, tuttugu bækur eftir Guðrúnu Kristínu
Fyrsta bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins
Önnur bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli
Þriðja bók: Hafri fer sér að voða, Eldra-Gúlla leiðist
Fjórða bók: Hannes Grásteinn og Surtarbrandur
Fimmta bók: Kettlingunum stolið
Sjötta bók: Dýna sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar
Sjöunda bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman
Áttunda bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum
Níunda bók: Surtarbrandur fer sér að voða
Tíunda bók: Hannes veiðikló
Ellefta bók. Hefur kötturinn níu líf?
Tólfta bók. Hannes flytur í nýtt hverfi
Þrettánda bók. Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara
Fjórtánda bók: Milli
Fimmtánda bók: Snjótittlingaveiðar
Sextánda bók: Nýi kettlingurinn
Sautjánda bók. Vor í lofti
Átjánda bók. Hannes fer í sveit
Nítjánda bók. Hvolparnir
Tuttugasta bók. Dánartilkynning
(þið munið að Hannesar saga er um sanna viðburði á kattarævi)
Útgefandi: Freyjukettir, Norræn menning.
Mjá.
Hannesarsaga Grásteins. Tuttugu skemmtilegar bækur. Yndisleg, sönn, viðburðarík saga.
Mjá.