×

Nous utilisons des cookies pour rendre LingQ meilleur. En visitant le site vous acceptez nos Politique des cookies.

Icelandic Online Level 3, Veðurlýsing – Text to read

Icelandic Online Level 3, Veðurlýsing

Intermédiaire 1 d'islandais lesson to practice reading

Commencer à apprendre cette leçon maintenant

Veðurlýsing

VEÐURLÝSING

Mjög slæmt veður er á öllu landinu, sérstaklega á Vestfjörðum, á Norðurlandi og Austurlandi. Fyrir norðan og austan er mikil ófærð og ekkert ferðaveður.

Víða er hálka á Vesturlandi og það hafa orðið margir árekstrar á Akranesi.

Ófærð er á Vestfjörðum. Á Ísafirði þarf fólk að moka sig út úr húsum.

Á Norðurlandi er víða snjókoma og skafrenningur. Á Akureyri eru él og mikil hálka.

Það er mikil snjókoma á Austurlandi og flestir vegir ófærir. Blindbylur er á Egilsstöðum. Ekki verður mokað fyrr en á morgun ef veður leyfir.

Ekkert ferðaveður er fyrir sunnan heldur því á Suðurlandi er hálka og skafrenningur. Ófært er til Vestmannaeyja.

Í Reykjavík er fljúgandi hálka og fólki er því ráðlagt að vera inni í dag en vera ekki á ferðinni úti.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE