×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Guðrún Kristín Magnúsdóttir: Barnabækur, Hrif álfasaga – Texto para leer

Guðrún Kristín Magnúsdóttir: Barnabækur, Hrif álfasaga

Principiante 2 lección de de islandés para practicar la lectura

Comienza a aprender esta lección ya

Hrif álfasaga

Árla fer hún framúr

lítil smalastúlka í seli

að sækja ærnar

því mjalta skal um miðjan morgun.

Úti glitrar lyngið af dögg bjartrar óttu.

Fölgrænn fæðist morguninn handan fjalla.

Aldrei má vanta eina ána,

aldrei neina ána.

Gröm mun þá Gunna vinnukona:

-Ef þú týnirðu, stelpa, einhverri ánni

engan færðu hjá mér árbít.

Svöng skaltu leita

þar til þú finnur

allar ærnar,

eða þú færð að kenna á vendinum vonda.

Dag eftir dag,

sumarlangt

á hverjum morgni

á hverju kvöldi

stekkur lítil smalastúlka

stein af steini

þúfu af þúfu

og skyggnist eftir ánum.

Blærinn vekur dögg á bjarka laufi

og hlær

er döggin hripar

eins og kristalskorn

í votan, grænan svörð.

Allar renna ærnar heim í selið

Golsa fyrst.

Nú verður ekki Gunna vinnukona byrst.

Lítil stúlka stekkur stein af steini

þúfu af þúfu.

Fyrir dagmál mun mjaltað í kvíum

grasi grónum færikvíum.

Lömbin bera svangan um sumardag langan

munn sinn og maga

á mosaþúfu

fjarri sinni móður

sem mjólkuð er heima.

Reka litla snoppu í döggvaðan svörð.

Fölgrænn fæðist morguninn handan fjalla.

Mjólkar hún Gunna vinnukona

í grasi grónum færikvíum

Mjólkin skal komin inn fyrir dagmál;

osta og skyr og smjör á að gera.

Smeygir í froðuna fingri hún Gunna

og smellir í ullina mjólkurfroðu

þá veit hún Gunna vinnukona

hverjar ánna hún hefur mjaltað.

Merkt er hún Golsa af froðudjásni.

Góð var nytin

en frek er kindin.

Frek er forystukindin.

Og rösk er hún Gunna vinnukona.

Heim á bæ skal svo góðgætið fara

þegar sendur verður Gvendur

að sækja í selið.

Um miðaftan er hann sendur hann Gvendur

(hér kemur hann Gvendur)

að sækja í selið.

Ískaldur jökull blasir

í skarði blárra fjalla.

Ærnar kroppa ánægðar stráin græn.

Heit og höfug er síðdegissól.

Lítil stúlka í brydduðum skóm

gengur upp í gilið

gljúfrabúann til að sjá.

Þungbúinn starir hann ofan dalinn.

Þungbúinn starir gljúfrabúinn ofan dalinn.

Talar við lækinn sinn lítil stúlka, rennur höfgi á bjarta brá,

í tærum dropum

speglast draumar,

draumar sem teygja sig brosandi

með ýru fossins upp til skýja.

Þar situr hún móðir mín

og kembir ullu nýja.

Þar situr hún móðir mín.

Dreymir að týndur sé skórinn dýri í grjóti í urð.

Dreymir að leiti hún lengi lengi, í gjótum

í klungri.

Hugarvíl

sorg í sefa.

Flýgur hrafn einn til sjávar.

Dreymir að köld sé nótt

rök og drungin

alein stúlka

týndur skór.

Þögull flýgur hrafn einn til sjávar.

Og fossbúinn kveður furðuþulur

um leyndarmál margra margra smala.

Þylur fossbúinn

furðusögur

sögur með vængi

sögur sem amma sagði

um gersemar blárra hulduheima

um háa sali

djásnum prýdda,

álfadrottning

alls næktir.

Í álfheimum er stiginn dans í silfri mána.

Stiginn er þar dans í silfri mána.

Dreymir að komi

fríður drengur

á álfafáki

fífilbleikum

fráum:

-Ég veit hvar skóinn þinn er að finna

í gjótu

í klungri

við skófaklettinn.

Stígðu á bak þeim fífilbleika.

Hripa mun dögg af bjarka laufi

er ríðum við hratt um skóginn.

Vaknar hún ein hjá lækjarniði.

Flaug hjá þröstur

svo þaut við í runn.

Var þetta draumur?

Veruleiki?

-Hvar er nú huldusveinninn fríði?

Gyllir fjöllin himinhá

og sveipar gulli dal og hól

sumarsól.

Á fætur fer hún árla á hverjum morgni

lítil smalastúlka í seli

að sækja ærnar.

Stígur nettum fæti á skófakletta

og skyggnist eftir ánum.

Hrímhvít þoka læðist dalinn.

Í þokunni sér hún kynjamyndir

sem heilla

sem seiða

Í þokunni myndir.

-Engan fæ ég bitann

ef ég finn ekki ærnar.

Gröm mun hún Gunna vinnukona.

Ota mun hún vendinum vonda.

Hrímhvít þoka læðist dalinn.

Lítil stúlka í bryddum skóm

stígur nettum fæti á skófakletta

og skyggnist eftir ánum.

Veit hún

að hratt ríður huldusveinn um skóginn?

Hrímhvít þoka læðist dalinn,

fölgrænn morgunn fæðist

handan fjalla.

Búa í þokunni kynjamyndir

annarra heima

ljúfra drauma.

Búa í þokunni myndir.

Ríður um bjarkaskóg drengur?

huldudrengur

álfafáki fífilbleikum

fráum

sem nema kann brott úr mannheimum

litla stúlku

sem skyggnist eftir ánum?

Í hrímhvítri þoku birtast kynjamyndir

sem heilla

sem seiða.

Skógurinn glitrar af dögg

sem blærinn vekur af draumi bjartrar óttu.

Það er sem þeysi huldusveinn um skóginn

sem hratt ríði huldusveinn um skóginn

hratt ríður huldusveinn um skóginn.

Skógurinn sem fax á álfafáki flaksi

--fax á vindóttum hesti flaksi.—

Hripar döggin í votan svörð.

Skynjar í brjósti sér unga þrá.

Hratt ríður huldusveinn um skóginn.

Fráum ríður huldufáki.

Þýtur blær í bjarka laufi.

Hugurinn sem öldurót.

Brátt mun folinn fífilbleiki

ná á skófakletta

þar sem smalastúlka

úr mannheimum

stígur nettum fæti

í bryddum skóm

og skyggnist eftir ánum.

Fölgrænn morgunn fæðist handan fjalla.

Fölgrænn fæðist morgunninn handan fjalla.

Hugfangin bíður smalastúlka

fangin af þrá

og blíðum draumum,

heilluð af sögum um aðra heima.

Hratt ríður huldusveinn um skóginn.

Horfast í augu.

Frýsar foli

hrímbleikur.

Krafsar foli

fífilbleikur

óðfús að hlaupa,

óðfús að hlaupa í álfheima.

Máttu stíga á bak álfafáki,

stúlka litla?

Leitaðu að ánum.

Aldrei munu mannheimar þínir heimar

aldrei muntu mannheima aftur gista

ef stígurðu á bak þeim fífilbleika!

Hugur þinn sem öldurót

Frýsar foli óðfús að hlaupa

í álfheima.

Aldrei muntu mannheima aftur gista!

Smalastúlka!

Muntu mannheima aftur þrá?

Hripar dögg

að bjarka laufi.

Flaksar fax

á álfafáki.

Blærinn hlær

í birkiskógi.

Skýjabakki

á vesturhimni.

Frýsar foli óðfús að hlaupa í álfheima.

Hratt ríður huldusveinn um skóginn.

Langt er til álfheima blárra hamra.

Skeiðar sá bleiki með byrði dýra.

Logar vesturhiminn und skýjabakka.

Bláir hamrar upp ljúkast.

Heimfúsum hleypir sveinninn ungi

reiðskjóta fráum í hulduheima.

Þar bíða gersemar gamalla sagna

sem amma sagði smalastúlku:

gersemar fjarri veruleika

óhöndlanlegar,

hugarheimar,

háir salir djásnum prýddir,

álfadrottning,

alls næktir.

Stiginn mun dans und skörðum mána

Lítil stúlka í bryddum skóm

stígur nettum fæti í hulduheima.

Lítil stúlka úr mannheimum

í álfheima.

Þar leikur huldudrengur sér

að kristalskornum

sem hripa úr greipum hans

eins og hverful von

sem fýkur með blænum yfir blómin.

-Má snerta drauma?

Má huldudreng finna?

Má grípa

í hönd sér

ljúft

lokkandi tál?

Hvernig verða

hugarheimar

höndlanlegir?

Veruleiki?

Ljúft er að njóta -- hætta að hugsa –

er flauelsmjúkt húmið

kyssir geisla kvöldsins góða nótt

svo þeir slokkna í söltu ölduróti.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE