×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Guðrún Kristín Magnúsdóttir: Barnabækur, Hnallur og Spói – Texto para leer

Guðrún Kristín Magnúsdóttir: Barnabækur, Hnallur og Spói

Principiante 2 lección de de islandés para practicar la lectura

Comienza a aprender esta lección ya

Hnallur og Spói

Hnallur og spói eftir Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur.

Hnallur og spói. Hallur og Jói. Hallur var uppnefndur Hallur hnallur. Jói, uppnefndur Jói spóaleggur. Svo breyttist það í Hnallur og Spói og þessum nöfnum gegna þeir.

Sagan er um vináttu, um hyskni og samviskusemi og um það að ekki er nóg að vera klár ef engin ábyrgð fylgir gjörðum manns. Hnallur og Spói eru góðir vinir og kemur alltaf vel saman en þeir eru svo ólíkir að með endemum þykir. Annar er stór, feitur, ljóshærður með blágrá augu. Honum gengur svo sem ekkert allt of vel í skólanum en hann gerir allt samviskusamlega sem hann þarf að gera. Hann heitir nú eiginlega Hallur en einhverra hluta vegna er hann alltaf kallaður Hnallur. Hinn er lítill og mjór, dökkhærður og hvasseygur spóaleggur.

Hann er alltaf kallaður Spói þótt hann heiti raunar Jói. Spóa gengur mjög vel í skólanum og þarf eiginlega aldrei að hafa neitt fyrir neinu sem hann tekur sér fyrir hendur. En vel eiga þeir saman, vinirnir. Þið ættuð nú að sjá þá þegar riddaraslagur er í skólanum.

Þegar Hnallur er hesturinn en Spói riddarinn eru þeir ósigrandi. Hnallur er svo sterkur og Spói svo snöggur. Svo versnar nú í því þegar skipta á um hlutverk. Riddarar eiga að vera hestar og hestar riddarar.

Þá komast þeir nú eiginlega aldrei af stað.

Þeir eiga sér sameiginlegt áhugamál, vinirnir, þið megið geta hvað það er. Já, hestar. Þegar Hnalli og Spóa áskotnast peningar í afmælisgjöf eða vinna sér inn með blaðasölu eyða þeir því nær samstundis í reiðnámskeið. Þeir eru orðnir öruggir með að tolla á baki og þaulæfðir í að beisla, leggja á og hirða hestana.

Spói er spengilegur á hestbaki. Hann ríður jafnan fremst í hópi þar eð hann er svo fljótur að skilja hvaða leið á að fara. Hnallur er að vísu ekki sérlega reffilegur á baki, satt best að segja minnir hann helst á taðpoka. Hann rekur jafnan lestina.

En hann fékk fljótt það hlutverk að hjálpa þeim krökkum sem ekki ráða vel við hestinn sinn. Alltaf þegar færi gefst fylgjast þeir með Jóni tamningamanni við vinnu sína. Nú er Jón að bandvenja ungan fola. Þeir fylgjast vel með hvernig Jón lætur hestinn hlaupa hring eftir hring í löngu bandi.

Hnallur og Spói vita ekki að Jón vantar einmitt krakka í vinnu fyrir sumarið til að hirða hesta. Hann hefur enn ekki fundið neinn sem hann vill ráða til sín. Þeir horfa á þegar Jón fer á bak tömdum hesti og teymir folann í gerðinu. En folinn er fremur þungur í taumi.

Jón veit að vinirnir tveir hafa mikinn áhuga á hestum og kallar því til þeirra. „Strákar, vill ekki annar ykkar ríða á eftir folanum fyrir mig? Þið beislið og leggið á jarpa klárinn.“ Þið getið ímyndað ykkur að drengirnir verða kátir. Þeir mega aðstoða við tamningu.

Spói er auðvitað viðbragðsfljótari og stekkur af stað en tekur ekki eftir því að múll dettur um leið og hann stekkur niður af grindverkinu. Hnallur tekur múlinn og hengir hann aftur upp. Þeir leggja í sameiningu á Jarp og Spói fer á bak. Hnallur lokar vandlega neðri hurðinni, sú efri stóð opin til að lofta út úr húsinu. Jón fylgist með öllu sem þeir gera. Spói ríður út í gerði til Jóns.

Ekki líður á löngu þar til Jarpur er kominn upp að hliðinni á folanum. Þá segir Jón ákveðinn: „Ég sagði á eftir folanum. Þú þarft að fylgja fast eftir alla króka og hringi sem ég fer.“

„En nú skuluð þið skipta, “ segir Jón. Hnallur fer á bak Jarpi. Jón kallar. „En langar þig ekki, Spói, til að brynna hryssunni í ysta húsinu fyrir mig? Bryttan hennar er stífluð. Skjólan hangir í hjallinum við lækinn.“ Spói er fljótur að skilja og langar auðvitað til að vatna merinni.

Hnallur hefur alltaf þurft að taka verkefni sín föstum tökum og beita sér við það sem honum er falið. Hann er ekki einn af þessum lánsömu mönnum sem allt virðast geta fyrirhafnarlaust. Hann hefur því stöðugt í huga að ríða á eftir, fylgja fast eftir. Baldni folinn heyrir stöðugt í Jarpi á hælunum á sér og skokkar því léttilega í taumi hjá Jóni.

„Já,“ segir Jón að lokum. „Haltu nú í hann fyrir mig, við skulum hvíla hann aðeins.“ Þegar verið er að temja þarf maður alltaf að vera mjög skapstilltur en temja sig samt röggsama og ákveðna framkomu. Hnallur horfir beint framan í folann og prentar af öllum kröftum inn í heilabúið: skapstilling, röggsöm og ákveðin framkoma.

Spói vatnar hryssunni. Býsn sem hross getur drukkið í einu. Hann er búinn að bera eins mikið vatn og hann getur rogað en það virðist varla nægja. Spói virðir fyrir sér folaldið meðan hryssan drekkur. Þegar Jón gengur hjá er merin þó búin að drekka nægju sína.

„Hún fer nú ekki sjálf á sinn stað, skjólan,“ segir Jón.

„Nei, auðvitað ekki,“ svarar Spói. „Ég skal hengja hann út í hjall.“

„Langar ykkur til að hjálpa mér meira, strákar?“ spyr Jón. Og hvort þeir vilja.

„Viltu þá, Spói, taka við taumunum hjá Hnalli? Haltu í folann, alveg rólegur en ákveðinn. Hann er dálítið frekur þessi, fer það sem hann kemst. Láttu hann ekki vaða ofan í þig.“

En nú skuluð þið heyra hvað kom fyrir. Folaldsmerin finnur vorið í loftinu. Spói hefur lokað neðri hurðinni eins og þið sjáið og fingurnir hans hafa sett hespuna á kenginn. En sjáið þið hverju hann hefur gleymt?

Já, að skjóta lokunni í. Þetta er því að kenna að Spói hefur í raun aldrei tekið neitt verkefni alvarlega. Allt hefur eiginlega komið af sjálfu sér. Hryssan þarf ekki annað en ganga þétt að hurðinni. Auðvitað lætur hurðin undan og opnast: hross eru nú einu sinni hross.

Vorloftið er svo tælandi eftir langan vetur á húsi.

Hún ákveður að viðra sig og folaldið sitt. Jón og strákarnir koma auga á þetta óheppilega atvik sem ekki hefði átt að eiga sér stað. Spóa bregður heldur illa. Hann getur ekki munað betur en að hann hafi lokað.

Svona er að nota ekki heilann, hugsa aðeins með puttunum. Spói bindur ótamda folann í snatri við staur og fer að hjálpa Jóni og Hnalli að komast fyrir hryssuna og folaldið og reka þau aftur í húsið. En folinn ungi fælist. Hann hefur aldrei fyrr verið bundinn við staur og er búinn að flækja annan framfótinn í taumnum.

Spói rekur sig á það nú í fyrsta sinn á ævinni að ekki er alltaf hægt að treysta því að allt komi af sjálfu sér. Í þessu starfi þarf að hugsa og hafa athyglina vakandi. Hér eru verkefni, alvöru verkefni, sem Spóa langar til að takast á við. Jóni tekst brátt að róa folann á ný.

Síðan segir hann við strákana: „Ég hef verið að leita að krakka til snúninga við hrossin í sumar. Mig vantar traustan verkmann og samviskusaman. Hefur þú ráðið þig nokkuð í sumar, Hnallur? Launin verða að vísu ekki mjög há en þú munt læra mikið í sambandi við hesta ef þú vilt taka þetta að þér.“

„Þetta væri það skemmtilegasta sem ég gæti hugsað mér, “ svarar Hnallur. „En heldurðu að ég ráði við þetta starf? Og svo þætti okkur ofsalega gaman að fá að vera báðir saman. Við gætum skipt kaupinu á milli okkar.“

Og þetta verður úr. Jón ræður þá báða til sín. Spói segist sko ætla að hafa hugann við allt sem hann þarf að gera. Aðalatriðið er að læra að temja sjálfan sig.

Þetta mun verða yndislegt sumar. Þeir læra að vekja traust hestanna á sér með hiklausri en rólegri framkomu. Hnallur verður reffilegri á baki með hverjum deginum sem líður því þeim er oft falið að hreyfa tamda hesta sem þarf að halda í þjálfun. Það er að vísu ekki sérlega skemmtilegt að moka út taði og heyrudda. En hvaða starf hefur ekki bæði skemmtilegar og leiðinlegar hliðar sem þó verður að rækja jafn samviskusamlega? Nauðsyn er að vera í skemmtilegri vinnu.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE