×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Guðrún Kristín Magnúsdóttir: Barnabækur, Bína brúða – Texto para leer

Guðrún Kristín Magnúsdóttir: Barnabækur, Bína brúða

Principiante 2 lección de de islandés para practicar la lectura

Comienza a aprender esta lección ya

Bína brúða

Bína brúða.

Á hverju kvöldi sofnar hún Bína á koddanum hjá mér. Að vísu lokar hún Bína brúða aldrei augunum, en hún hlýtur að sofa eins og ég.

Á daginn situr Bína uppi á hillunni minni. Hún gætir sparibauksins míns þegar ég er í skólanum.

Og Bína brúða er með appelsínugult hár úr lopa.

Einu sinni var mér gefin ný dúkka. Hún var með hrokkið akrýlhár, gat lokað augunum og hún átti fullt af fötum, til dæmis ballkjól og skíðagalla.

Við Bína reyndum að máta eitthvað af þessum fínu fötum á Bínu... ...en hún komst engan veginn í neitt.

Svo við pökkuðum þeirri nýju bara niður í kassann aftur.

Okkur var alveg sama þótt Bína gæti ekki notað fínu fötin. Köflótti kjóllinn hennar er svo ágætur. Einu sinni kom kona í heimsókn til mömmu. Hún var með lítinn krakka með sér. Hún setti krakkann inn í herbergið mitt…

…og hann fór strax að gramsa í dótinu mínu og reif allt og tætti.

Ég verð að bjarga dótinu mínu frá þessu skemmdarskríni.

Þá öskraði hann hástöfum... ..og konan kom hlaupandi til að hugga hann. Hún sagði að hann hefði svo gaman af dúkkum, sá litli... ...og tók Bínu brúðu ofan af hillu og lét krakkann fá hana. Svo fór hún aftur fram að tala við mömmu. Ég sá að Bína var ofsa hrædd við strákinn.

Aldrei hefur Bína fengið aðrar eins flugferðir. Lopahárið var farið að losna og ekki mátti meira mæða á saumsprettunni á tánni.

Nú var mér nóg boðið. Ég tók Bínu brúðu af stráknum!

Hann öskraði, konan kom auðvitað hlaupandi.

„Hverslags er þetta eiginlega? “ spurði hún.

„Má barnið ekki einu sinni hafa þessa dúkkudruslu?“

„Nóg áttu nú af dótinu, stelpa.“

„Ég hélt ekki að þú værir svona nísk!“

Ég varð dálítið skömmustuleg þegar mamma kom. Hún spurði hvort ég gæti ekki lánað drengnum eitthvert dót sem hann gæti leikið sér að frammi í stofu hjá þeim.

Mér var að vísu skapi næst að lána þessum krakkabjána ekki neitt af dótinu mínu -- en fyrst mamma bað mig... Ég hagræddi Bínu á púða svo hún gæti jafnað sig.

(<Vantar í lestur:> Svo náði ég í kassann undan rúminu.)

Strákpottormurinn varð allt að því hátíðlegur á svipinn þegar ég opnaði kassann. Ég held bara að hún hafi orðið hálffeimin.

Undrunarsvipur kom á konuna og hún stamaði út úr sér:

„Ætlarðu að lána honum þessa dúkku?“

Mamma sagði að hann skyldi koma fram og skoða öll fötin í kassanum.

Við Bína urðum fegnar þegar pottormurinn fór fram. Við þurftum að tala dálítið saman sem enginn mátti heyra.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE