×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Hannesar saga Grásteins, 5. Kettlingunum stolið – Texto para leer

Hannesar saga Grásteins, 5. Kettlingunum stolið

Intermedio 1 lección de de islandés para practicar la lectura

Comienza a aprender esta lección ya

5. Kettlingunum stolið

Hannesar saga Grásteins eftir Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur. Fimmta bók: Kettlingunum stolið.

Hannesar saga Grásteins fimmta bók: Kettlingunum stolið. Við lesum myndir, við lesum stuttan texta og við lesum langa sögu.

5.bók af tuttugu: Kettlingunum stolið.

Hvar eru þeir?

Hannes Grásteinn og Surtarbrandur njóta lífsins í kjallaranum hjá okkur.

Þeir hafa allt sem kettlingum þykir best: Fisk, mjólk, mjúk rúm og áflog.

Hvað er kátara en kátur kettlingur? Svar: Tveir kátir kettlingar.

Gaman.

Þegar krakkarnir eru heima til að gæta kettlinganna, fá Hannes og Surtarbrandur að fara út um kjallaragluggann, út í garð.

Það er nú frumskógur í lagi.

Surtarbrandur stekkur hvað eftir annað hátt upp í tré; oft svo hátt að hann þorir ekki niður aftur, litli villingurinn.

Surtarbrandur er hátt uppi í tré.

Stigi.

Við verðum að ná í stiga og sækja Surtarbrand.

Þegar eigendurnir eru í skólanum, eru kettlingarnir lokaðir inni. Við erum hrædd um að þeir týnist. Aðeins smá rifa er á kjallaraglugganum. Þeir bíða inni.

Þegar börnin svo koma heim, kalla þau strax á kettlingana til þess að leyfa þeim að viðra sig í garðinum.

En einn daginn koma kettlingarnir ekki þegar kallað er:

-Hannes, kis, kis!

-Surtarbrandur, kis, kis!

Börnin leita í gluggunum, í rúmunum, í sagdallinum, á öllum hugsanlegum stöðum.

Hvergi er þá að finna.

-Ha?

Þau leita jafnvel úti í garði, þótt óhugsandi sé að...

Þau fara út í garð og kalla: -Kis-kis!

-Hvar eru þeir?

-Eruð þið að leita kettlinganna? kallar Bergljót út um gluggann á miðhæðinni.

-Ég sá tvær stelpur vera hér í garðinum áðan. Þær voru að skoða kettlingana.

-Ég sá tvær stelpur.

Það eru svo oft krakkar að horfa á kettlingana inn um gluggann.

Ég heyrði stelpurnar ræða eitthvað við gluggann. Ég hef séð þessar stelpur í skólanum. Að líkindum eiga þær heima uppi á Rauðarárstíg og ég held að önnur þeirra heiti Rósa.

Getur verið að...?

Þar eð kettlingana er hvergi að finna, fer ég að leita Rósu á Rauðarárstíg og vinkonu hennar, -- ef hugsast gæti að þær vissu eitthvað um hvarfið.

Fyrst svo heppilega vildi til að Bergljót varð vör við einhverjar stelpur í garðinum heima og bar kennsl á aðra þeirra ætla, ég að reyna að hafa uppi á þeim.

-Býr Rósa hér?

Hjalti, Kristín, Helgi og Magnús ætla að halda áfram að leita í nærliggjandi görðum. Krakkar úr næstu húsum hjálpa til við leitina. Ég geng hús úr húsi á Rauðarárstíg og spyr hvort nokkur Rósa búi þar. Sumir bregðast illa við.

-Engin Rósa hér.

Skella svo í lás.

-Nei.

Aðrir eru hjálplegir.

-Það býr telpa hér á efstu hæð, sem einmitt er á þessum aldri.

En hún heitir að vísu ekki Rósa heldur Maja.

-Maja býr uppi.

Á efstu hæð fæ ég upplýst, að Maja og Rósa eru vinkonur.

-Þær eru einhvers staðar úti.

Enginn veit neitt um neina kettlinga.

-Rósa og Maja eru úti.

Niðri í kjallara er kona að þvo.

-Þér hafið víst ekki séð hér tvær telpur með kettlinga? spyr ég.

-O, jú. Hún Maja litla á loftinu og vinstúlka hennar voru með litla hnoðra hér í morgun. Þær fóru eitthvað út með þá.

-Já. Með kisur.

Ég gleymi nærri því að þakka konunni fyrir.

Ég þýt út kjallaramegin.

Ég geng um göturnar leitandi.

Ég kalla eins hátt og ég get.

-Rósa og Maja!

-Rósa og Maja!

-Rósa og Maja!

Tvær telpur líta við.

Ég spyr þær:

-Hafið þið nokkuð séð tvo kettlinga sem eru týndir frá Skarphéðinsgötunni?

Rósa og Maja segja: „Nei.“

-Nei, segja þær.

Ó, stelpur mínar! Ég er búinn að leita um allt.

Kettlingarnir eru svo litlir að þeir rata ekki heim.

Litlu krakkarnir sem eiga þá eru grátandi heima.

Þau halda að litlu kisurnar þeirra hafi orðið fyrir bíl og dáið.

Getið þið nokkuð hjálpað mér að leita?

Loks fékk önnur þeirra málið:

-Jú, annars. Við sáum kettlinga áðan. Stelpa sem á heima þar gaf þeim mjólk.

-Ó, stelpur mínar, sýnið mér hvar.

Ég elti þær yfir götu og inn í einhvern garð.

Þar er enga kettlinga að sjá.

Hvar eru þeir?

Telpurnar setja upp kærulausissvip.

-Hvar haldið þið að þeir geti þá verið? spyr ég.

-Þið vitið að svona litlir kettlingar verða fyrir bíl ef þeir hlaupa út á götu.

Ef enginn gefur þeim neitt í svanginn deyja þeir úr hungri. Þeir eru allt of litlir til að veiða sér til matar. Í nótt verður þeim ofsalega kalt. Þeir eru vanir að sofa í hlýju rúmi.

(Ég held áfram því ég sé að þær eru að byrja að skilja hvað þær hafi gert:)

-Og, eins og þið vitið, geta dýrin ekki ratað aftur heim, ef einhver hefur borið þau hingað.

Dýrin þurfa að þefa leiðina sína, til þess að rata. Litlir kettlingar geta ekki lesið götunöfn né heldur munað það sem þeir sjá á leiðinni.

Nú verða þær áhyggjufullar.

Ég bið þær að hjálpa mér að leita.

Rósa og Maja.

Og loksins, loksins finnum við kettlingana þar sem þeir kúra í hnipri í kjallaratröppum, einhvers staðar á Mánagötunni. Þið getið varla ímyndað ykkur hve fegin ég verð. Heilir á húfi báðir tveir! Við finnum þá.

Ég spyr stelpurnar hvort þær langi til að halda á þeim heim fyrir mig. Ef til vill voru þær börn sem langar til að hafa dýr, en geta hvergi fengið að vera með það. Þær svara engu. Ég segi Rósu og Maju að þær megi koma og skoða kettlingana hvenær sem þær vilji. Vonandi hafa þær séð, hverjir óvitar þær voru.

Rósa og Maja.

Mikil er kætin þegar ég kem heim með svanga, þreytta bræður.

Þeir éta fisk.

Hér lýkur fimmtu bók Hannesarsögu Grásteins: Fimmtu bók af tuttugu.

Hannesar saga Grásteins, tuttugu bækur eftir Guðrúnu Kristínu

Fyrsta bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins

Önnur bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli

Þriðja bók: Hafri fer sér að voða, Eldra-Gúlla leiðist

Fjórða bók: Hannes Grásteinn og Surtarbrandur

Fimmta bók: Kettlingunum stolið

Sjötta bók: Dýna sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar

Sjöunda bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman

Áttunda bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum

Níunda bók: Surtarbrandur fer sér að voða

Tíunda bók: Hannes veiðikló

Ellefta bók. Hefur kötturinn níu líf?

Tólfta bók. Hannes flytur í nýtt hverfi

Þrettánda bók. Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara

Fjórtánda bók: Milli

Fimmtánda bók: Snjótittlingaveiðar

Sextánda bók: Nýi kettlingurinn

Sautjánda bók. Vor í lofti

Átjánda bók. Hannes fer í sveit

Nítjánda bók. Hvolparnir

Tuttugasta bók. Dánartilkynning

(þið munið að Hannesar saga er um sanna viðburði á kattarævi)

Mjá.

Útgefandi: Freyjukettir, Norræn menning.

Hannesarsaga Grásteins. Tuttugu skemmtilegar bækur. Yndisleg, sönn, viðburðarík saga.

Mjá.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE