×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Hannesar saga Grásteins, 15. Snjótittlingaveiðar – Texto para leer

Hannesar saga Grásteins, 15. Snjótittlingaveiðar

Intermedio 1 lección de de islandés para practicar la lectura

Comienza a aprender esta lección ya

15. Snjótittlingaveiðar

Guðrún Kristín Magnúsdóttir: Hannesar saga Grásteins, 15. bók: Snjótittlingaveiðar.

Hannesar saga Grásteins, 15. bók. Snjótittlingaveiðar.

Freyjukettir, Norræn menning.

Frost er og snjór.

Hannesi er kalt á klónum. Það er að vísu nokkuð kettlingalegt að þeytast á eftir snjóflygsum um allan garð -- en það er samt bara nokkuð gaman að leika sér til hita. Einnig góð æfing. Rándýr þurfa að þjálfa hremmihæfnina, en hún er mikið nákvæmnisverk.

Snjór.

En annað nokkuð merkilegra er hægt að gera:

Veiða snjótittlinga sem setjast út á hól til að kroppa smáfuglafóðrið.

Gallinn við þá er að vísu sá, að þeir sitja aldrei kyrrir. Þeir fljúga upp þegar bíll fer framhjá, þeir fljúga upp þegar einhver gengur framhjá, þeir fljúga upp þegar hrafninn hnitar uppi yfir þeim.

Snjótittlingar.

Hannes má ekki svo mikið sem horfa í áttina til þeirra, þá fljúga þeir upp! Það er augljóst að ekki getur hver sem er veitt snjótittling. Það reynir á kænskuna og hæfnina.

Þeir fljúga upp.

Hannes læðist niður fyrir húsið. Hann ætlar að læðast að snjótittlingunum þar sem þeir verða hans ekki varir. Hann fikrar sig nær og nær. Aðeins vantar nokkur hljóðlaus skref til að komast í stökkfæri við þá. Hannes iðar og býr sig undir að stökkva og hremma.

Hannes læðist.

Bíll fer framhjá. Snjótittlingarnir fljúga allir upp.

Þeir fljúga upp!

Hannes ætlar að bíða þar til þeir setjast á ný, --en nú sjá fuglarnir hann úr lofti og þora ekki að setjast aftur. Hannes fer þá bara inn. Enda tærnar hans fegnar því.

Hannes inni.

Það var svo sem auðvitað: Fuglaskarinn sest um leið og Hannes er farinn.

Skottið gula gengur fram og aftur, all gremjulega. Hannes mjálmar veiðimjálmi: -- lágt og titrandi – mja-a-a-a-a-a-a. Hann langar nokkuð mikið til að reyna á nýjan leik. Hannes læðist sömu leið og áðan. Hann liggur í leyni á bak við steinahrúgu.

Einn og einn fugl úr síkvikulum hópnum lítur upp, -- en enginn þeirra verður var við hættuna sem vofir yfir.

Hann læðist út.

Hannes er kænn. Einn fuglinn nálgast grjóthrúguna æ meir. Er hann í dauðafæri? Eða er þetta aðeins of langt? Hannes hreyfir afturhlutann eins og til að hita upp afturfæturna fyrir áhlaupið.

Nú!

Nú gerir Hannes leifturárás.

Fuglarnir fljúga upp -- allur skarinn -- um leið og Hannes stekkur. Sá sem Hannes sigtaði á, slapp einnig. Hann var snöggur. Svona er lífið.

Nær ekki í fugl.

Ef Hannes væri villt rándýr, yrði hann að veiða sér til matar, ella dæi hann úr hungri.

-Erfið hlýtur lífsbaráttan að vera hjá villiköttunum -- er það ekki, Hannes minn?

Þú veist allt um það.

Stundum deyja þeir úr hungri og kulda og einmanaleik.

Engum þykir vænt um þá.

Hannes á fisk á diski inni í hlýjunni. Og okkur þykir vænt um hann.

Hannes étur fisk.

(Þið vitið auðvitað að einhver maður hefur veitt fiskinn.)

Snjótittlingar.

Síkvikir snjótittlingarnir nota nú tækifærið og tína í sig kornið.

Vetrardagurinn er stuttur. Svo hverfa þeir út í hrímfölt myrkrið. Enginn veit hvar þeir kúra um nætur.

Hér lýkur 15. bók Hannesar sögu Grásteins, 15. bók af 20.

Hve margar blaðsíður erum við búin að lesa? Bókaauglýsingar meðtaldar og saurblöð. Skammstöfun bls. -blaðsíður.

24 blaðsíður, fyrsta bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins.

24 blaðsíður, önnur bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar, Hafri og Elri Gúlli.

24 blaðsíður, þriðja bók: Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist.

28 blaðsíður, fjórða bók: Hannes Grásteinn og Surtarbrandur.

28 blaðsíður, fimmta bók: Kettlingunum stolið.

24 blaðsíður, sjötta bók: Það eina sem er kátara en kátur kettlingur er kátir kettlingar.

26 blaðsíður, sjöunda bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman.

24 blaðsíður, áttunda bók: Hannes Grásteinn, villiköttur á skrifstofu í Vesturbænum.

24 blaðsíður, níunda bók: Surtarbrandur fer sér að voða.

28 blaðsíður, tíunda bók: Hannes veiðikló.

24 blaðsíður, ellefta bók: Hefur kötturinn níu líf?

26 blaðsíður, tólfta bók: Hannes flytur í nýtt hverfi.

26 blaðsíður, þrettánda bók: Fleiri viðburðir. Börn hvekkja Hannesi. Hannes hvekkir stara.

24 blaðsíður, 14. bók: Milli.

24 blaðsíður, 15. bók: Snjótittlingaveiðar.

24 + 24 + 24 + 28 + 28 + 24 + 26 + 24 + 24 + 28 + 24 + 26 + 26 + 24 + 24.

Samtals 378 blaðsíður.

Hve margar blaðsíður eigum við eftir að lesa? Erum við lestrarhestar og bókormar?

28 bls., 16. bók: Nýi kettlingurinn.

24 bls., 17. bók: Vor í lofti.

26 bls., 18. bók: Hannes fer í sveit.

24 bls., 19. bók: Hvolparnir.

24 blaðsíður, 20. bók: Dánartilkynning.

28 + 24 + 26 + 24 + 24.

Samtals 126 blaðsíður.

Förum létt með það allt.

Hannesarsaga Grásteins. Tuttugu skemmtilegar bækur. Yndisleg, sönn, viðburðarík saga.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE