×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Hannesar saga Grásteins, 14. Milli – Texto para leer

Hannesar saga Grásteins, 14. Milli

Intermedio 1 lección de de islandés para practicar la lectura

Comienza a aprender esta lección ya

14. Milli

Hannesar saga Grásteins, eftir Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur, fjórtánda bók: Milli

Hannesar saga Grásteins, fjórtánda bók: Milli

Hannesar saga Grásteins er sönn saga.

Lesum myndir, lesum stuttan texta, lesum langa sögu.

Fjórtánda bók: Milli

Nú fær Hannes nokkuð nýtt að hugsa um.

Hann gefur sér naumast tíma til að fara út:

Helgi er búinn að fá sér gullhamstur.

Hann hlaut nafnið Milli.

Helgi smíðaði rammgert búr fyrir hamsturinn.

Þið megið reyna að geta hvers vegna!

Milli er hamstur.

Eins og við mátti búast:

Þessu meindýri ætlar Hannes að útrýma sem bráðast.

Það var jú einmitt til að drepa mýs, sem kötturinn var gerður að húsdýri.

Hannes læðist allt í kring um búrið, neytir allra bragða.

Hvergi reynist smuga á búrinu.

Lyktin af Milla leynir sér ekki, þótt hann sofi á kafi í bómullar- og pappírshrúgu.

Hannes vill ná í Milla.

Sennilega er ekki rétt að hafa mýs, hamstra og fugla á heimili sem köttur er á.

Ég held að stöðugur ótti þjaki þessi litlu dýr, jafnvel þótt við vitum að kötturinn muni aldrei ná þeim.

Á hverju kvöldi, þegar konungsríkið hans Milla er opnað, er hannes settur út úr herberginu og lokað.

Hannes látinn fram.

-Góða nótt, Milli minn og velkominn á fætur, segir Magnús stóri bróðir, þegar Helgi opnar búrið.

Milli, grútsyfjaður, gægist upp úr hrúgunni sinni.

Milli.

Verið að ónáða hann svona snemma; klukkan er ekki nema tíu að kvöldi.

Meiri ófriðurinn.

Milli fær ferskt vatn, kál, arfa, brauð, epli og sólblómafræ.

Og þjónarnir hans þrífa klósettið hans, en það er í endanum á löngum pappakassagöngum í höllinni hans.

Gott að vera Milli (milli? ).

Hús Milla (höll Milla).

Sjálfur nagar hann dyr á höllina þar sem honum þóknast að hafa þær.

Hann hefur einkalaug og gengur oft út í hallargarðinn og snyrtir sig.

(Þykist vera að þvo sér.)

Milli að éta.

Þegar fóðrið kemur, athugar hann það:

-Jú. Sæmilegt.

Svo treður hann öllu saman upp í sig.

Gott að vera hamstur.

Þegar Hannesi er hleypt inn aftur er lokið komið á sinn stað og þungur dallur með sólblómafræjum á lokinu.

Þetta bregst ekki.

Þarna standa þeir hvor sínum megin við vírnetið, grafkyrrir, finna greinilega lyktina hvor af öðrum.

Lokað.

Tíminn stendur kyrr.

En eitt kvöldið sér Hannes við okkur:

Hann felur sig vandlega á bak við gullakassa undir Helga rúmi.

Við finnum hann hvergi í íbúðinni. Köllum:

-Hannes!

Tis-tis.

Hannes köttur!

Hann lætur ekki á sér kræla.

Við höldum að hann sé úti.

Millabúrið er opnað:

-Góða nótt, Milli minn og velkominn á fætur.

Milli gægist upp úr hrúgunni sinni, svefnherbergi kóngsins í þessu ferkantaða vírnetsríki.

Hannes undir rúmi.

Hannes læðist óséður úr felustað sínum, ...

...skref fyrir skref,

hægt,

hljóðluast,

hnitmiðað.

Hann hefur augastað á feitari bita en sólblómafræi og eplakjarna.

Hannes læðist.

Allt í einu gerir hann leifturárás:

Árás!

Magnúsi og Helga bregður.

Hannes læsir tönnunum í vesalings Milla, sem bjóst við öllu öðru en þessu.

Magnúsi og Helga bregður svo ofsalega, að eitt andartak geta þeir ekkert aðhafst.

Í samanburði við lipurð og viðbragðsflýti kattarins, verða viðbrögð okkar hlægilega klaufskt fálm.

Við, sem erum svo ánægð með okkar stóru mannaheila og vandlega hugsuðu varúðarráðstafanir, verðum nú að neyta aflsmunar:

Opna kjaft rándýrsins með handafli, þar til feiti bitinn Milli nagdýr losnar.

Milla sakaði sem betur fer ekki.

Slapp með skrekkinn.

Sá var nú fljótur að skjótast inn, þegar loksins okkur tókst að losa hann.

Hannesi hafði nærri því tekist það sem hann ætlaði sér:

Að ná Milla og koma honum fyrir kattarnef.

Við horfum með aðdáun á þetta mjúka sterka dýr, sem sýnt hefur slíka veiðikænsku að:

* fela sig

* gegna ekki þegar við kölluðum á hann

* bíða rétta augnabliksins

--sýnt hefur slíka áræðni að hremma Milla beint fyrir framan nefið á okkur.

-Við dáumst að þér!

Hannes vingsar skottinu -– stóra gula skottinu sínu.

Þegar mannfólkinu mislíkar, fer það ýmist í fýlu og er móðgað í marga daga, eða öskrar á annað fólk.

Er ekki betra að dingla bara skottinu?

Næst þegar okkur mislíkar skulum við prófa að dingla skottinu eins og kisa gerir, jafna okkur án þess að láta nokkurn mann sleikja úr okkur, vera sjálfum okkur nóg, taka því að ekki tekst allt sem við ætlum að gera. Lærum að tapa.

Hér lýkur fjórándu bók Hannesar sögu Grásteins. Fjórtánda bók af tuttugu: Milli.

Hannesar saga Grásteins, tuttugu bækur eftir Guðrúnu Kristínu

Fyrsta bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins

Önnur bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli

Þriðja bók: Hafri fer sér að voða, Eldra-Gúlla leiðist

Fjórða bók: Hannes Grásteinn og Surtarbrandur

Fimmta bók: Kettlingunum stolið

Sjötta bók: Dýna sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar

Sjöunda bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman

Áttunda bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum

Níunda bók: Surtarbrandur fer sér að voða

Tíunda bók: Hannes veiðikló

Ellefta bók. Hefur kötturinn níu líf?

Tólfta bók. Hannes flytur í nýtt hverfi

Þrettánda bók. Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara

Fjórtánda bók: Milli

Fimmtánda bók: Snjótittlingaveiðar

Sextánda bók: Nýi kettlingurinn

Sautjánda bók. Vor í lofti

Átjánda bók. Hannes fer í sveit

Nítjánda bók. Hvolparnir

Tuttugasta bók. Dánartilkynning

(þið munið að Hannesar saga er um sanna viðburði á kattarævi)

Útgefandi: Freyjukettir, Norræn menning.

Mjá.

Hannesarsaga Grásteins. Tuttugu skemmtilegar bækur. Yndisleg, sönn, viðburðarík saga.

Mjá.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE