TAK og brúin
Hjalti Bjarnason, Tak og brúin.
Tak og brúin. Freyjukettir, Norræn menning, önnur útgáfa 2010 og svo ISBN-númer. Hjalti valdi sér eðlisfræði og stærðfræði til stúdentsprófs.
Hjalti samdi Tak-sögurnar og teiknaði myndirnar á árunum 1975 til '79, þá 5 til 10 ára. Flestar TAK-sagnanna voru í Stundinni okkar. Brúin 5. febrúar 1978.
Á stjörnunni hans Taks er mjög breið á.
Eins og þið sjáið þá er hér þýðing yfir á sænsku sem sjónvarpið lét gera.
Það eru 4000 geimmetrar yfir ána.
Geimverurnar eru alltaf að reyna að kallast á yfir ána en heyra aldrei neitt hver til annarrar vegna hávaðans í ánni.
(Sjáið þið geimveruna á hinum bakkanum?)
Tak reyndi að kasta trekt yfir ána til þess að nota fyrir síma.
(Leikhljóð: hvisss)
(Leikhljóð: blobb)
En hún dregur aldrei alla leið yfir. Trektin dettur alltaf út í miðja á.
Þá dettur Taki í hug að reyna að róa yfir. En hann kemst það ekki vegna straumsins í ánni.
(Leikhljóð: pú pú (blástur))
Þá reynir hann svifflugu, en kemst ekki alla leið. Það er allt of mikið rok.
Þá dettur honum í hug að leggja brú.
Hann segir hinum geimverunum frá þessari hugmynd.
Síðan sest hann niður og fer að teikna brýr. Hann teiknar margar.
Eftir að hafa hugsað sig um mjög lengi velur hann loks hengibrú, sem hann ákveður að leggja yfir ána.
Hann fer til efnasérfræðings og fær hjá honum pillu sem gerir mann léttan.
Það er til að plumpa ekki niður þegar hann er að smíða brúna.
Síðan byrjar hann á brúnni.
Endastólpinn eru úr mitti en mitt er ofsa sterkt geimefni sem Tak hefur fundið upp.
Hann gerir stólpana einn í einu, en það er mjög mikið verk.
Þegar brúin er tilbúin er hún alltaf full af geimverum sem vilja komast yfir ána.
Það þarf greinilega að gera fleiri brýr.
Tak sýnir hinum geimverunum allar brúarteikningarnar sem hann hafði gert og síðan velja þær það sem þeim líst best á.
Dúllugeimveran tekur auðvitað dúllubrúna.
-Hver vill þessa brú? spyr Tak.
Steypugeimveran auðvitað. Hún hefur svo gaman af að steypa úr steinsteypu.
Þessa brú velur tjakkageimveran.
Það þarf að tjakka brúna upp þegar flóð er í ánni.
Þessa vill angakrossgeimveran eiga.
Þarna er einhvers konar bíll á spori til að fara yfir ána.
Kúlugeimveran velur þessa hringbrú.
Þessa velur hjartageimveran og spaðageimveran þessa.
Þetta er stigabrú, sem svertingjageimveran ætlar að smíða.
Þessa ætlar Tak sjálfur að búa til. Það er loftbelgur fullur af helíum sem heldur henni uppi.
Þessa líst laufgeimverunni best á.
Þessa stigabrú velur stigageimveran. Svona eru stigageimverur.
Þetta er svo færibandsbrú, sem angageimveran ætlar að gera.
Efnasérfræðingurinn ætlar að gera þessa brú, en það er alveg leyndarmál hvernig hann ætlar að líma vatnið upp. (Framleiðsluleyndarmál)
Hér er önnur dúllubrú.
Þetta er kassafæribandsbrú eða kláfferja.
Sprengigeimveran ætlar líka að smíða sér brú og velur þessa. En svo nennir hann ekki að fara eftir teikningunni og tímir ekki að kaupa sér efni.
-En hver hefur efni á þessari brú? segir Tak.
Það eru eldflaugamótorar í staðinn fyrir stólpa, sem halda henni uppi. -- Hún verður ofsalega dýr.
Þá kom peningageimveran og sagði: -Ég ætla að fá þessa.
Sprengigeimveran er hér búin að ná sér í fúaspýtur til að smíða brú úr.
Sprengir tímir ekki að kaupa sér efni.
-Fyrst Tak getur gert brú, þá ætti ég nú að geta það líka, JÁ.
Þegar brúin er tilbúin gengur hann út á hana til að prófa hana...
...en þá brotnar hún niður.
Sprengigeimveran nær í einhverja fúaspýtu sem flýtur niður ána.
Nú er steypigeimveran að hugsa um að steypa eina brú eftir endilangri ánni, milli allra hinna brúna. Þetta ætlar hún að gera í laumi.
Hún nær sér í teikningar af öllum brúm sem búið er að leggja.
Og byrjar að steypa frá einni brúnni.
En hún steig út á blauta steypuna og allt plompaði niður í ána.
En hún datt niður um leið og sprengigeimveran flaut undir brúna og lenti á flúaspýtunni hjá henni.
Tak er einmitt á sinni brú að veiða þegar þeir tveir fljóta undir Taks brú.
Þeir grípa í línuna hjá Taki. Tak er tilbúinn með háfinn og heldur að rosastór fiskur hafi bitið á.
Þegar hann sér hvað er í háfnum verður hann ekki lítið hissa.
Sprengi- og steypugeimverurnar segja Taki alla söguna.
Síðan lætur Tak sprengigeimveruna fá gott efni í nýja brú.
Það borgar sig, því annars fer hann bara að eyðileggja fyrir öðrum.
Sprengi setur upp nýju brúna sína og hann er mjög ánægður.
-Hver átti hugmyndina að að búa til brú yfir ána? spyr peningageimveran.
-Það var Tak, það var Tak! hrópuðu allar geimverurnar.
-Tak gerði fyrstu brúna og allar teikningarnar!
Peningageimveran lætur Tak fá stóran bikar sem á stendur:
Fyrstu verðlaun
Húra, húrra, húrra!
30 Tak-sögur. Barn semur handa börnum.