×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Geimveran TAK, TAK og Auðtrúa – Texto para leer

Geimveran TAK, TAK og Auðtrúa

Principiante 2 lección de de islandés para practicar la lectura

Comienza a aprender esta lección ya

TAK og Auðtrúa

Hjalti Bjarnason: Takk og auðtrúa.

Takk og auðtrúa. Freyjukettir. Norræn menning, önnur útgáfa 2010. ISBN-númer Hjalti stúderar skák.

Hjalti varð jólasveinninn (sigraði í jólaskákmóti Taflfélags Reykjavíkur), var skólaskákmeistari í grunnskóla. Var í öðru sæti á unglingameistaramóti 1985, er með yfir 2000 Elo-stig.

Tak hringir frá stjörnunni sinni til jarðarbúanna.

„Halló,“ segir Takk.

„Eruð þið ekki alveg niðri á jörðinni þarna?“

„Jú, jú,“ svarar krakkinn á jörðinni og hlær.

„Segðu mér,“ segir Tak. „Eru einhverjir jarðarbúar sem borða matinn sinn með prjónum?“

„Ég heyrði þetta einhvers staðar.“

„Hefurðu ekki heyrt söguna af gráðuga Kínverjanum sem borðaði með prjónavél?“ segir krakkinn á jörðinni og hlær.

„Heyrðu, skemmtilegi krakki,“ segir Tak. „Eru bæði til alisvín og villisvín þarna á jörðinni hjá ykkur?“

„Já, já, góð svín, “ svarar skemmtilegi krakkinn hlæjandi, „og líka hrekkjusvín.“ „Þau eru vondu svínin,“

Tak hlær. Krakkinn hefur svo smitandi hlátur.

„Svo hef ég heyrt,“ segir Tak, „að þið hafið bæði taflmenn og skákmenn.“ „En ég veit ekki hverjir leika á hvora.“

„Hér leika allir á alla,“ Tak minn.

„Og svo er hér líka draugagangur.“

„Var einhver að kalla á mig?“ spyr draugurinn.

„Ég er hér með nokkrar gátur handa ykkur,“ segir Tak.

„Fyrsta: Hvað er flatt með hala og geymir eggin sín í skipi?“

„Númer tvö: Er hægt að vera ber í fötum?“

„Númer þrjú: Hver segir takk Í öðru hvoru orði allan sólarhringinn?“

Segðu mér, eru sjávarhryggleysingjar á Atlantshafshryggnum?

Má kafarageimveran koma til ykkar og rannsaka það mál?

„Endilega!“ svarar krakkinn á jörðinni.

„Við erum búin að finna hér fornmús,“ segir Tak. „Hún var fyrst til fyrir þúsund milljón árum.“

„Ég sá hana úr þyrlunni minni,“ segir takk.

Annars er ég núna að búa til bát sem kemst í vasann þegar maður er ekki að sigla á honum. Þegar þarf að flytja hann yfir þurrt land að annarri á eða niður að sjó.

Mjög þægilegt og hentugt. Maður rúllar honum bara saman.

Ég er nú ekki alveg búinn að leysa öll tæknileg vandamál ennþá.

Svo er hér ein spurning enn og þetta var svolítið alvarlegt mál:

Hvar náði Auðtrúa í blaðið sem hún var að lesa? Hún segir að það hafi komið frá jörðinni.

Hún var ekki vel læs á ykkar letur.

Letrið okkar er nefnilega allt öðru vísi:

Hér stendur: hús, brauðform, mús, pípa, tól, hossast.

(Auðtrúa var nú raunar ekki heldur vel læs á Tak-stjörnu letur.)

Hún var alltaf svo trúgjörn og hún var svo illa læs.

Hún las: „Flúor er hollur, eh, hollur fyrir te.. te.. te..“

Svo gat hún ekki lesið meira og sagði: „Æ, það skiptir ekki máli.“

„Flúor er hollur,“ sagði hún svo.

„Smjör og fita er óhollt ef... ef...“

„Skiptir ekki máli,“ sagði hún svo. „Ég nenni ekki að lesa meira.“

„Flúor er hollur,“ sagði hún.

„Smjer er óhollt.“

Auðtrúa sá svona auglýsingu í blaðinu og sagði að þið á jörðinni borðuðuð með svona spónum.

Hún hætti að borða smjör og smurði brauðið sitt með flúor.

Ég sagði: „Auðtrúa! Hvað er að sjá þig? !“

En hún svaraði: „Ég er svo hraust, svo hraust, svo hraust. Ég las í blöðunum að flúor væri hollur fyrir te... eitthvað og að smjör og fita væri óhollt ef... eitthvað sem ég nennti ekki að lesa. Síðan hef ég hámað í mig flúor í alla mata.“

Svo lagðist hún niður og dó.

„Þetta var nú slæmt,“ sagði krakkinn á jörðinni. „Auðvitað á maður ekki að trúa öllu sem stendur í blöðunum.“

Hér dó bjáni sem trúði öllu sem hann las í blöðunum.

Svör við gátunum.

Skata sem á Pétursskip. Ber í fötum. Klukka.

Þrjátíu Tak-sögur. Barn semur handa börnum.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE