TAK og allraveðrapeysan
Takk og allraveðrapeysan. Eftir Hjalta Bjarnason.
Takk og allraveðrapeysan. Freyjukettir, Norræn menning, fyrsta útgáfa 2010 og svo ISBN-númerið. Hjalti á þilfari ferju á siglingu á Eyjahafinu ásamt mömmu sinni.
Hjalti við borðstokkinn.
Tak er alveg takmarkalaust hugmyndaríkur. Það vita nú allir. Hann er mikill efna- og eðlisfræðingur þótt hann sé aðeins nítján ára. Og hann er að læra stjörnufræði. Tak hefur fundið upp ótrúlegustu hluti.
(Ath. Það þýðir athugið, leikhljóð (--sem voru í sjónvarpsútsendingunum--)
Þegar Tak er á efnarannsóknarstofunni sinni, eru alltaf blásið í drykkjarrör í vatnsglasi alveg upp við hljóðnemann).
Nú er það allraveðrapeysan. Tak er orðinn hundleiður á að þvo fötin sín.
Geimi skilur nú ekki alveg þetta: hundleiður á að þvo fötin sín því hundar þurfa aldrei að þvo fötin sín og Geima leiðist heldur aldrei.
Stundum verða menn hundóánægðir og hund-þetta og hund-hitt. Kannski hundrað, ekki hundur.
Geimtíkin er alveg sammála Geima. Hundfúlir og tíkarlegir, segja sumir. Einhver áherslu-eitthvað. Kannski alls ekki hund- neitt. Bara einhver hundrað misskilningur.
Því það er svo gaman að vera geimhundar.
Þau ákveða að fá sér smá hundasundsprett í ánni. Hrista sig svo duglega þegar upp úr kemur þá orðin hrein og fín.
Sneddí, sniðuga geimveran, heyrir á tal þeirra, nemur hugsanir þeirra með hugsanalestrartækinu sem Tak er að þróa.
-Það væri nú sneddí að vera loðin og þurfa aldrei að fara í föt, segir hún við sjálfa sig.
Tak sá líka einu sinni, þegar hann var í heimsókn hjá jarðarkrökkunum, að sumir jarðarkrakkar þurfa að eiga bæði sumarföt og vetrarföt. Sums staðar er nefnilega kalt á veturna, en sæmilega hlýtt á sumrin.
Jarðarkrakkarnir sögðu að þetta væri bara gaman. Tak er búinn að fá hugmynd: framleiða peysu, sem aldrei þarf að þvo og þolir öll veður, hæfir hvers konar veðráttu og auðvitað kom eitthvað snjallt út úr þessu:
-Sjáðu!, segir Tak.
-Maður sprautar þessum vökva á sig og hann myndar himnu sem einangrar gegn hita og kulda.
Svo þegar maður fer í sturtu þvæst hann af.
Og daginn eftir setur maður nýtt lag.
Þetta er hreinasta snilld hjá mér.
-En hvað ef maður lendir í regni? spyr Sneddí.
-Já, þú segir nokkuð. Ég hafði nú ekki hugsað út í það mál.
Það má þá hafa með sér regnhlíf, ha?
Verst ef það er mikið rok og rigning.
-Nei, líklega er þetta aðeins nothæft þar sem ekki er allra veðra von. Ég verð að leggja höfuðið í bleyti á ný. Flíkin þarf að vera úr léttu, þunnu efni, vatns- og vindheldu efni, sem aldrei þarf að þvo.
Ég er einmitt hér með efni sem hefur alla þessa kosti. Besta flíkin sé skósíð til þess að verja fæturna.
Gott væri að hafa kælikerfi í þessu og hitunarkerfi þegar með þarf.
Best að koma slíku fyrir innan á efninu og smávegis einangrunarlagi milli efnis og kerfis.
Það var verst að flíkin þyngdist við þessa viðbót. Annars er þetta létt og gott og sterkt efni.
Þetta ætlar að heppnast vel. Efnið þolir vel sólina, hitakerfið virkar, kælikerfið virkar. Lofar góðu.
Gallarnir eru: Tak fer að klæja í bakið og getur engan veginn klórað sér.
Efnið andar ekki nógu vel svo Tak þarf að útbúa öndun og helst svitalyktareyði. Tak setur sérstakt nuddtæki inn í flíkina. Hægt er að stjórna því með höndunum sínum án þess að fara úr.
Rakadrægt efni, öndunarefni og svitalyktareyði er mjög einfalt að setja í að innan.
Þetta ætlar að verða hreinasta snilld!
„Hreinasta”, auðvitað, því efnið hrindir frá sér öllum óhreinindum og virðist þola öll geimsins veður!
Tak fer nú í næstu reynslugöngu.
Til að byrja með lofar þetta góðu, allt virkar eins og það á að gera.
Þetta ætlar Tak sko að framleiða og selja öllum sem vilja, öllum sem þykir leiðinlegt að þvo föt.
Einn galli kom í ljós: Allraveðrapeysan er mjög þung núna þótt efnið sjálft sé lauflétt því svo margir aukahlutir eru.
Tak ákveður að fara heim og láta helíum í.
Og það gerir hann. Setur þunnt lag af helíum í þynnuhólkum inn í fóðrið á þessari stórkostlegu allraveðraflík.
Auðvitað verður að viðurkennast að allraveðrapeysan er orðin dýrari í framleiðslu en reiknað hafði verið með í upphafi.
En svona er þetta bara með nýjar uppfinningar stundum. Kostnaðaráætlanir standast ekki alltaf.
Tak fer nú enn að prófa flíkina. Sneddí og Geimi fylgjast með.
Sneddí spyr nú Tak:
-Er ekki vissara að taka akkeri með?
Hí hí hí hahaha
Vúff!
-Meiddirðu þig nokkuð?
Þrjátíu Tak sögur. Barn semur handa börnum.