×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Litli Prinsinn, Kafli I – Text to read

Litli Prinsinn, Kafli I

Intermedio 1 de islandés lesson to practice reading

Comienza a aprender esta lección ya

Kafli I

FYRSTI KAFLI

Þegar ég var sex ára, sá ég einu sinni stórbrotna mynd í bók um frumskóga heimsins, sem hét „Sögur af upplifun“. Hún var af kyrkislöngu sem gleypti eitthvert villidýr. Hér er afrit af myndinni.

https://www.thelittleprinceinlevels.com/wp-content/uploads/2018/06/OBR1.jpg" alt="image"/>

Í bókinni stóð: „Kyrkislöngur gleypa bráðina í heilu lagi, án þess að tyggja hana. Í kjölfarið geta þær ekki hreyft sig og sofa í sex mánuði á meðan þær melta hana.“

Ég fór í kjölfarið að hugsa mikið um ævintýri frumskóganna og tókst síðan að teikna fyrstu myndina mína, með nokkrum trélitum. Mynd mín númer 1. Hún var svona:

https://www.thelittleprinceinlevels.com/wp-content/uploads/2018/06/LP3-Hat.png" alt="image"/>

Ég sýndi fullorðnu fólki myndina mína og spurði það hvort hún skyti þeim skelk í bringu.

Það svaraði mér: „Af hverju ætti einhver að vera hræddur við hatt?“

Myndin mín var ekki af hatti. Hún var af kyrkislöngu sem var að melta fíl. Ég teiknaði því þverskurð af kyrkislöngunni, til að fullorðna fólkið gæti skilið þetta. Þau þurfa alltaf að láta útskýra hlutina fyrir sér. Mynd mín númer 2 var svona:

https://www.thelittleprinceinlevels.com/wp-content/uploads/2018/06/LP4-Elephant.png" alt="image"/>

Fullorðna fólkið ráðlagði mér að leggja til hliðar þessar teikningar af kyrkislöngum, hvort sem þær voru opnar eða lokaðar og sýna frekar fögum eins og landafræði, sögu, reikningi og málfræði meiri áhuga. Þannig var það að ég, sex ára að aldri, sagði skilið við glæstan feril sem myndlistarmaður. Það hafði dregið úr mér allan kjark hversu litlum árangri ég hafði náð með teikningum mínum númer 1 og 2. Fullorðna fólkið skilur aldrei neitt sjálft og af eigin rammleik og það er þreytandi fyrir börnin að þurfa statt og stöðugt að útskýra svona fyrir þeim.

Ég varð því að velja annan starfsferil og lærði að fljúga flugvélum. Ég hef flogið svolítið um allan heiminn. Þar get ég staðfest að landafræðin hafi nýst mér vel. Ég gat strax við fyrstu sýn þekkt í sundur Kína frá Arizona. Það er mjög hentugt, ef maður villist á nóttunni.

Ég hef líka, svona gegnum árin, verið mikið innan um alvarlegt fólk. Ég hef mikið heimsótt merkilegt og valdamikið fólk. Ég hef kynnst því náið. Það hefur ekki bætt álit mitt á því sérstaklega mikið.

Þegar ég hef þóst bera kennsl á fólk sem mér hefur virst vera aðeins gleggra, hef ég sýnt því mynd mína númer 1, sem ég hef alltaf geymt hjá mér. Ég hef viljað vita hvort hún sé í raun skiljanleg. Þau hafa hins vegar alltaf svarað mér: „Þetta er hattur“. Þar af leiðandi talaði ég ekki við þau um kyrkislöngur, frumskóga eða stjörnurnar. Ég fer frekar inn á þeirra svið. Ég tala við þau um bridds, golf, stjórnmál eða bindi. Fullorðið fólk verður ánægt að kynnast einhverjum svona skynsömum.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE