Kafli 27
KAFLI XXVII
Í dag eru víst þegar liðin sex ár síðan þetta gerðist... Ég hef aldrei áður sagt þessa sögu. Þeir vinir mínir sem ég átti aftur eftir að hitta [KM60.1]voru auðvitað glaðir að sjá mig á lífi. Ég var dapur, en ég sagði þeim að það væri þreytunnar vegna.
Í dag hef ég pínulítið látið huggast. Það er að segja... ekki alveg. En ég veit að hann fór aftur á plánetuna sína, af því að þegar dagur reis, gat ég ekki fundið líkama hans. Það hefði ekki verið mjög þungur líkami... Og ég nýt þess að hlusta á stjörnurnar á nóttunni. Það er eins og þar væru fimm hundruð milljón bjöllur...
En viti menn, nokkuð einstakt gerðist. Munnkarfan sem ég teiknaði fyrir litla prinsinn, ég hafði gleymt að bæta við leðuról! Hann hefur aldrei getað sett hana á kindina. Þess vegna spyr ég mig: „Hvað gerðist á plánetunni hans? Kannski hefur kindin étið blómið...“
Stundum segi ég við sjálfan mig: „Örugglega ekki! Litli prinsinn lokar blómið sitt alltaf undir glerhjúpnum og hann fylgist eflaust vel með kindinni sinni...“ Þannig að ég er glaður. Og allar stjörnurnar hlæja blítt.
Stundum segi ég sjálfum mér: „Einstöku sinnum er maður annars hugar og það er nóg! Hann hefur gleymt glerhjúpnum eitt kvöldið, eða kindin hefur sloppið hljóðlaust um nóttina...“ Bjöllurnar breytast því allar í tár!...
Þetta er ein stór ráðgáta. Fyrir okkur sem elskum líka litla prinsinn, þá er ekkert tvennt í heiminum eins, við vitum ekki hvort kind sem við annað hvort þekkjum eða þekkjum ekki, borði einhverja rósina...
Horfið til himins. Spyrjið ykkur: Er kindin búin að éta blómið? Og þið sjáið hvernig allt breytist...
Og engin fullorðin manneskja mun nokkurn tímann skilja að það sé mikilvægt!
Þetta er fyrir mér, fallegasta og líka dapurlegasta landslag í heiminum. Þetta er sama landslagið og á fyrstu blaðsíðunni, en ég er búinn að teikna það aftur til að geta sýnt ykkur það aftur. Það er hérna sem litli prinsinn birtist á Jörðinni og hvarf síðan.
Horfið gætilega á þetta landslag til að vera viss um að þið þekkið það aftur, ef þið skylduð einn daginn ferðast til Afríku, í eyðimörkina. Og ef þið skylduð eiga leið þar hjá, bið ég ykkur um að flýta ykkur ekki, heldur staldra við undir stjörnunni! Ef til ykkar kemur barn, ef það hlær, ef það er með gullið hár, ef það svarar engu sem það er spurt um, þá munuð þið vita hver þetta er. Og verið þá hugulsöm! Ekki láta mig vera leiðan áfram: skrifið mér fljótt og segið mér að hann sé kominn til baka...
SÖGULOK