×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Litli Prinsinn, Kafli 26 – Texto para leer

Litli Prinsinn, Kafli 26

Intermedio 1 lección de de islandés para practicar la lectura

Comienza a aprender esta lección ya

Kafli 26

KAFLI XXVI

Við hliðina á brunninum voru rústirnar af gömlum múrvegg. Þegar ég kom frá vinnunni minni næsta kvöld, sá ég úr talsverðri fjarlægð hvar prinsinn sat ofan á honum, með fæturna dinglandi. Ég heyrði líka hvernig hann talaði:

-Manstu sem sagt ekki? sagði hann. Það var ekki alveg nákvæmlega hérna!

Önnur rödd svaraði honum eflaust, því að hann svaraði aftur:

-Jú, það er vissulega rétti dagurinn í dag, en ekki rétti staðurinn...

Ég hélt áfram að ganga í átt að veggnum. Ég sá hvorki né heyrði í neinum. Engu að síður heyrði ég prinsinn aftur svara:

-...Vissulega. Þú sérð hvar sporin mín byrja í sandinum. Þú þarft ekki annað en að bíða eftir mér. Ég verð þar í nótt...

Ég var kominn tuttugu metra frá veggnum og ég sá ennþá ekki neitt.

Litli prinsinn hélt áfram, eftir smá þögn:

-Er eitrið þitt öflugt? Ertu viss um að ég kveljist ekki lengi?

Ég stoppaði og hjartað stökk upp í hálsinn á mér, en ég skildi samt ekki hvað var að gerast.

-En farðu núna, sagði hann... ég vil koma niður!

Þannig að ég renndi augunum niður að rótum veggsins og ég hrökk við! Þarna var ein af þessum gulu eiturslöngum sem getur drepið mann á aðeins þrjátíu sekúndum. Á meðan ég teygði mig eftir skammbyssunni í vasanum, byrjaði ég að hlaupa áfram, en um leið og hún heyrði í mér, lét slangan sig sökkva ofan í sandinn, líkt og vatnsgusa sem hverfur og án þess að flýta sér einu sinni það mikið, þá renndi[KM53.1] hún sér á milli steinanna með örlitlu hljóði sem minnti á glamrið í málmi.

Ég kom að veggnum einmitt á rétta augnablikinu til að grípa litla prinsinn í fangið, fölan eins og snjóinn.

-Hvað var að gerast! Ertu núna farinn að tala við eiturslöngur!

Ég var búinn að taka af honum gullna trefilinn sem hann gekk alltaf með. Ég var búinn að væta á honum gagnaugun og láta hann drekka. Og núna vogaði ég mér ekki að spyrja hann að neinu fleiru. Hann horfði á mig, alvarlegur á svip og lagði hendurnar um hálsinn á mér. Ég fann hvernig hjartað í honum sló eins og hjartað í fugli sem er að deyja, þegar búið er að skjóta hann með riffli. Hann sagði við mig:

-Ég er glaður að vita að þér hafi tekist að laga vélina þína. Þú munt geta komist aftur heim til þín...

-Hvernig vissir þú?

Ég var einmitt að fara að segja honum að, framar öllum vonum, hafði mér tekist viðgerðin!

Hann svaraði engu, en bætti við:

-Ég sömuleiðis, ég fer heim til mín í dag...

Og svo, með sorg í röddinni:

-Það er mikið lengra í burtu... þannig að það er líka erfiðara...

Ég fann á mér að eitthvað mjög óvenjulegt var að gerast. Ég þrýsti honum að mér eins og smábarni, en á sama tíma var eins og hann rynni beint niður í hyldýpi og ég gæti ekkert gert til að stöðva það...

Hann leit alvarlegur út, týndur einhvers staðar í fjarskanum:

-Ég er með kindina þína. Og ég er með kassa fyrir kindina. Og ég er með munnkörfuna...

Hann brosti dapurlega.

Ég beið lengi. Ég fann hvernig honum hlýnaði smám saman:

-Litli vinur minn, þú ert búinn að vera hræddur...

Hann var hræddur, það var víst! En hann sagði blíðlega:

-Ég á eftir að verða mikið hræddari í kvöld...

Aftur fann ég fyrir hrolli af tilfinningunni um að eitthvað hræðilegt væri að gerast. Og ég fann að ég gat ekki horfst í augu við tilhugsunina um að fá aldrei aftur að heyra hann hlæja. Það var fyrir mér eins og gosbrunnur í miðri eyðimörkinni.

-Litli vinur minn, ég vil heyra þig hlæja aftur...

En hann sagði mér:

-Í nótt þá verður eitt ár liðið. Stjarnan mín verður beint fyrir ofan staðinn þar sem ég hrapaði á síðasta ári...

-Litli félagi, er þetta ekki bara vondur draumur, allt þetta með að hitta þessa eiturslöngu og með stjörnuna...?

En hann svaraði spurningunni ekki. Hann sagði mér:

-Það sem öllu máli skiptir, er að þú verðir ekki vitni að þessu...

-Sjálfsagt...

-Það er eins og fyrir blómið. Ef þú elskar blóm sem er á stjörnu, þá er undursamlegt að horfa á næturhimininn. Allar stjörnurnar blómstra.

-Örugglega...

-Það er eins og með vatnið. Það sem þú gafst mér að drekka var eins og fögur tónlist, vegna trissunnar og reipisins... manstu... það var gott.

-Vissulega...

-Þú sérð, nóttina, stjörnurnar. Heimili mitt er of lítið til að ég geti sýnt þér það. Það er betra þannig. Stjarnan mín, er fyrir þér bara ein af stjörnunum. Þannig að þér finnst allar stjörnurnar fallegar að sjá... Þær eru allar vinkonur þínar. Og síðan ætla ég að gefa þér gjöf...

Hann hló aftur.

-Ah! Litli vinur minn, litli vinur minn, það gleður mig að heyra þig hlæja!

-Það verður vissulega gjöf mín til þín... alveg eins og vatnið verður...

-Hvað ertu að segja?

-Mannfólkið getur horft á stjörnurnar og engar þeirra eru eins. Fyrir sumum, sem ferðast, eru stjörnurnar leiðsögumenn. Fyrir öðrum eru þær ekkert nema lítil ljós. Fyrir enn öðrum sem eru spekingar, eru þær þrautir.

Fyrir viðskiptajöfurinn minn eru þær sem gull. En stjörnurnar, þær þegja. En fyrir þér verða stjörnurnar öðruvísi en fyrir öllum öðrum...

-Hvað ertu að segja?

-Þegar þú horfir á næturhimininn, einmitt af því að ég bý á einni af stjörnunum og af því að ég hlæ á einni þeirra, þá verður það fyrir þér eins og að allar stjörnurnar hlæi. Þú munt eiga stjörnur út af fyrir þig sem kunna að hlæja!

Og hann hló aftur.

Og þegar þú lætur huggast (maður lætur alltaf huggast) verður þú glaður að hafa þekkt mig. Þú verður alltaf vinur minn. Þig mun langa að hlæja með mér. Og þú munt stundum horfa út um gluggann, bara af því að það gleður þig... Og það kemur vinum þínum að óvart að sjá þig hlæja meðan þú horfir til himins. Þannig að þú segir þeim: „Já, stjörnurnar, þær fá mig alltaf til að hlæja!“ Og þeir munu trúa þér. Ég mun hafa framið svolítið illkvittinn hrekk á þér...

Og hann hló aftur.

-Það verður eins og ég hafi gefið þér, í stað stjarnanna, litlar bjöllur sem geta hlegið...

Hann hló aftur. Svo varð hann aftur alvarlegur:

-Í nótt... þú veist... ekki koma.

-Ég fer ekki frá þér.

-Ég mun líta út fyrir að kveljast... ég mun líta út fyrir að deyja. Þannig verður það. Ekki koma og sjá það, það er ekki þess virði...

-Ég fer ekki frá þér.

En hann var áhyggjufullur.

-Ég er að segja þér það... það er líka vegna slöngunnar. Hún má ekki bíta þig... Slöngur, þær eru illar. Þær geta bitið bara sér til gamans...

-Ég fer ekki frá þér.

En eitthvað róaði hann:

-Það er víst þannig að þær hafa ekki nóg eitur fyrir annað bit...

Þessa sömu nótt sá ég hann ekki leggja af stað. Hann hafði stungið af hljóðlaust. Þegar mér tókst að ná honum gekk hann ákveðnum skrefum, aðeins hraðar en vanalega. Hann sagði einfaldlega við mig:

-Ah! Þú ert kominn...

Hann tók í höndina á mér. En honum leið samt illa:

-Þetta er rangt af þér. Þetta á bara eftir að láta þér líða illa. Ég mun líta út fyrir að vera dáinn en það verður ekki rétt...

Ég þagði.

-Þú skilur. Þetta er of langt í burtu. Ég get ekki tekið þennan líkama með mér. Hann er of þungur.

Ég þagði.

-En þetta verður bara eins og gömul, yfirgefin skel. Gamlar skeljar eru ekkert sorglegar...

Ég þagði.

Hann hikaði aðeins, en hann hélt áfram að reyna:

-Það er verður fínt, veistu. Ég horfi sjálfur á stjörnurnar. Hver einasta stjarna er brunnur með ryðgaðri trissu. Hver einasta stjarna hellir vatni fyrir mig til að drekka...

Ég þagði.

-Það verður bara gaman! Þú munt hafa fimm hundruð milljón bjöllur og ég mun hafa fimm hundruð milljón brunna...

Og hann þagnaði sjálfur, því hann grét...

-Hérna er það. Leyfðu mér að ganga eitt skref aleinum.

Og hann settist því hann var hræddur.

Hann hélt áfram að segja:

-Þú veist... blómið mitt... ég ber ábyrgð á því! Það er svo viðkvæmt! Og hún er svo barnaleg. Hún hefur ekkert nema fjóra, gagnslausa þyrna til að verja sig gegn öllum heiminum...

Ég settist niður því ég gat ekki haldið mér uppréttum lengur. Hann sagði:

-Hérna... Þetta er allt og sumt.

Hann hikaði áfram um stund og svo stóð hann aftur upp. Hann tók eitt skref áfram. Ég gat aftur á móti ekki hreyft mig.

Það sást ekki neitt nema snöggur, gulur glampi rétt hjá ökklanum hans. Hann stóð kyrr í smá stund. Hann skrækti ekki. Hann datt mjúklega, eins og tré falla, hljóðlaust vegna sandsins.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE