×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Litli Prinsinn, Kafli 24 – Texto para leer

Litli Prinsinn, Kafli 24

Intermedio 1 lección de de islandés para practicar la lectura

Comienza a aprender esta lección ya

Kafli 24

KAFLI XXIV

Það voru liðnir átta dagar síðan ég brotlenti í eyðimörkinni og á meðan hann sagði mér frá kaupmanninum drakk ég síðustu dropana af vatninu sem ég átti eftir.

-Úff! Sagði ég við litla prinsinn, minningarnar þínar eru fallegar, en ég er ekki ennþá búinn að gera við flugvélina mína, ég á ekkert að drekka lengur og mér væri sjálfum mjög létt ef ég gæti rölt í rólegheitunum í áttina að næsta brunni!

-Refurinn vinur minn, hann sagði mér...

-En litli vinur minn, þetta snýst ekki lengur um refinn!

-Af hverju ekki?

-Af því að við erum að fara að deyja úr þorsta...

Hann skildi ekki þessa röksemdafærslu og svaraði mér:

-Það er gott að eiga vin, jafnvel ef maður er að fara að deyja. Ég er sjálfur bara glaður að eiga ref fyrir vin...

Hann skilur ekki hættuna, sagði ég sjálfum mér. Hann er aldrei svangur eða þyrstur. Smá sól virðist vera allt sem hann þarf...

En hann leit á mig og svaraði því sem ég var að hugsa:

-Ég er líka þyrstur... leitum að brunni...

Ég stundi af þreytu: það er fáránlegt að leita handahófskennt að brunni, í víðáttu eyðimerkurinnar. En engu að síður gengum við af stað.

Þegar við höfðum gengið þegjandi í fleiri klukkustundir, fór að rökkva og stjörnurnar byrjuðu að skína. Þær komu mér eins og draumur fyrir sjónir, þar sem ég var kominn með smá hita, af því að ég var svo þyrstur. Orð litla prinsins dönsuðu um í huga mínum:

-Ert þú sem sagt þyrstur líka? spurði ég hann.

En hann svaraði mér ekki. Hann sagði bara:

-Vatn getur líka verið gott fyrir sálina...

Ég skildi ekki þetta svar en ég þagnaði... Ég vissi vel að það þýddi ekki að reyna að yfirheyra hann.

Hann var þreyttur. Hann settist. Ég settist við hliðina á honum og eftir smá þögn hélt hann áfram að tala:

-Stjörnurnar eru fallegar, vegna blóms sem maður getur ekki einu sinni séð...

„Vissulega“ svaraði ég og ég horfði þegjandi á öldurnar í sandinum í tunglskininu.

-Eyðimörkin er falleg, bætti hann við...

Það var satt. Ég hef alltaf kunnað að meta eyðimörkina. Maður sest á sandhól. Maður sér ekkert. Maður heyrir ekkert. Samt sem áður er eitthvað sem geislar í þögninni...

-Það sem fegrar eyðimörkina, sagði litli prinsinn, er að í henni er einhvers staðar falinn brunnur...

Það kom mér á óvart að skilja allt í einu af hverju sandurinn geislaði á svona dularfullan hátt. Þegar ég var ennþá lítill strákur, bjó ég í gömlu húsi og það voru sögusagnir um að þar væri falinn fjársjóður. Vissulega hafði aldrei neinn fundið hann, varla einu sinni reynt að leita, en hann fyllti húsið töfrum. Húsið mitt geymdi leyndarmál djúpt í hjarta sér...

-Já, sagði ég við litla prinsinn, hvort sem það snýst um húsið, stjörnurnar eða eyðimörkina, þá er það sem gerir þau falleg alveg ósýnilegt!

-Ég er glaður, sagði hann, að þú sért sammála refnum mínum.

Þar sem litli prinsinn var sofnaður, tók ég hann í fangið og hélt áfram. Ég var þreyttur. Mér fannst ég halda á viðkvæmum fjársjóði. Mér fannst ekkert viðkvæmara á Jörðinni. Ég sá föla ennið hans, lokuð augun og hárið sem blakti í vindinum í tungsljósinu og ég sagði við sjálfan mig: „Það sem ég sé hérna er bara börkurinn, bara hýðið. Það mikilvægasta er ósýnilegt...“

Þegar varir hans opnuðust aðeins og mynduðu örlítið bros, sagði ég enn frekar við sjálfan mig: „Það sem hreyfir svona við mér við þennan litla, sofandi prins, er hvað hann er trúr blóminu sínu, ímyndinni af rós sem geislar inni í honum eins og ljósið frá lukt, jafnvel á meðan hann sefur...“ Og mér fannst hann enn viðkvæmari. Og luktir þarf maður að vernda: ein vindhviða getur slökkt á þeim...

Og meðan ég gekk svona, kom ég auga á brunn í sólarupprásinni.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE