×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Litli Prinsinn, Kafli 23 – Texto para leer

Litli Prinsinn, Kafli 23

Intermedio 1 lección de de islandés para practicar la lectura

Comienza a aprender esta lección ya

Kafli 23

KAFLI XXIII

-Góðan daginn, sagði litli prinsinn.

-Góðan daginn, sagði kaupmaðurinn. Þetta var kaupmaður sem seldi pillur, sérhannaðar til að slökkva þorstann. Maður þurfti bara að taka eina á viku og þá fann maður ekki lengur fyrir þörfinni fyrir að drekka.

-Af hverju ertu að selja þær? spurði litli prinsinn.

-Þetta sparar svo mikinn tíma, sagði kaupmaðurinn. Sérfræðingarnir hafa reiknað þetta út. Maður sparar fimmtíu og þrjár mínútur á viku.

-Og hvað gerir maður þá í staðinn í þessar fimmtíu og þrjár mínútur?

-Maður gerir það sem maður vill...

„Ég, ef ég hefði fimmtíu og þrjár mínútur lausar, myndi ég nota þær til að ganga rólega í áttina að brunni...“

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE