×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Litli Prinsinn, Kafli 22 – Texto para leer

Litli Prinsinn, Kafli 22

Intermedio 1 lección de de islandés para practicar la lectura

Comienza a aprender esta lección ya

Kafli 22

KAFLI XXII

-Góðan daginn, sagði litli prinsinn.

-Góðan daginn, sagði brautarstjórinn.

-Hvað ertu að gera þarna? spurði litli prinsinn.

-Ég flokka ferðalangana í þúsund manna hópa, sagði brautarstjórinn. Sendi lestirnar sem flytja þá af stað, stundum til hægri og stundum til vinstri.

Og snöggt leiftur, með þrumandi hávaða, hristi til klefann hans.

-Þau eru aldeilis að flýta sér, sagði litli prinsinn. Að hverju eru þau að leita?

-Meira að segja lestarstjórinn veit það ekki, svaraði brautarstjórinn.

Og með drunum leiftraði annað ljós, í öfuga átt.

-Koma þau strax til baka? spurði litli prinsinn...

-Þetta er ekki sama fólkið, sagði brautarstjórinn. Þetta eru önnur að koma í staðinn.

-Voru þau ekki ánægð, þar sem þau voru?

-Það er aldrei neinn ánægður þar sem hann er, svaraði brautarstjórinn.

Og hljóðið frá þriðja ljósblossanum rumdi í loftinu.

-Eru þau að elta ferðalangana sem komu á undan? spurði litli prinsinn.

-Þau eltast ekki við neitt, sagði brautarstjórinn. Þau sofa þarna inni, eða geispa bara. Það eru bara börnin sem þrýsta nefinu upp að rúðunum.

-Það eru bara börnin sem vita að hverju þau eru að leita, sagði litli prinsinn. Þau eyða tíma sínum í tuskudúkkur og þá fer þeim að finnast þær mikilvægar og ef maður tekur þær af þeim, þá gráta þau...

-Þau eru heppin, sagði brautarstjórinn.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE