×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Litli Prinsinn, Kafli 21 – Texto para leer

Litli Prinsinn, Kafli 21

Intermedio 1 lección de de islandés para practicar la lectura

Comienza a aprender esta lección ya

Kafli 21

KAFLI XXI

Það var þá sem refurinn birtist.

-Góðan daginn, sagði refurinn.

-Góðan daginn, svaraði litli prinsinn kurteisislega og sneri sér við, en sá ekki neitt.

-Ég er hérna, sagði röddin, undir eplatrénu.

-Hver ert þú? spurði litli prinsinn. Þú ert fallegur...

-Ég er refur, sagði refurinn.

-Komdu og leiktu við mig, stakk litli prinsinn upp á. Ég er svo leiður...

-Ég get ekki leikið við þig, sagði refurinn. Ég er ekki taminn.

-Ó! Fyrirgefðu, sagði litli prinsinn.

En eftir smá umhugsun, bætti hann við:

-Hvað þýðir þetta, „að vera taminn“?

-Þú ert ekki héðan, sagði refurinn, hverju ertu að leita að?

-Ég er að leita að mönnunum, sagði litli prinsinn. Hvað þýðir „að vera taminn“?

-Mennirnir, sagði refurinn, þeir eiga byssur og þeir veiða. Það er mjög óskemmtilegt! Þeir rækta líka hænur. Það er það eina sem þeir hafa áhuga á. Ert þú að leita að hænum?

-Nei, sagði litli prinsinn. Ég er að leita að vinum. Hvað þýðir „að vera taminn“?

-Það er eitthvað sem of margir gleyma, sagði refurinn. Það þýðir að vera búinn að „mynda tengsl...“

-Mynda tengsl?

-Vissulega, sagði refurinn. Enn sem komið er þá ert þú ekkert fyrir mér nema bara lítill strákur sem er eins og hundrað þúsund aðrir litlir strákar. Og ég hef ekki þörf fyrir þig. Og þú hefur ekki þörf fyrir mig ennþá.

Ég er ekkert fyrir þér nema bara refur sem líkist hundrað þúsund öðrum refum. En ef þú temdir mig, hefðum við þörf fyrir hvor annan. Þú yrði einstakur í heiminum fyrir mér. Ég yrði einstakur í heiminum fyrir þér...

-Ég held ég sé farinn að skilja, sagði litli prinsinn. Það er blóm nokkurt... ég held að hún hafi tamið mig...

-Það er mögulegt, sagði refurinn. Það gerast alls konar hlutir á Jörðinni...

-Ó! Það er ekki á Jörðinni, sagði litli prinsinn. Refurinn virtist mjög forvitinn:

-Á annarri plánetu?

-Já.

-Eru veiðimenn á þessari plánetu?

-Nei.

-Það er áhugavert! En hænur?

-Nei.

-Ekkert er fullkomið, andvarpaði refurinn.

En refurinn fór aftur að tala um þessa hugmynd sína:

-En lífið er svo einsleitt. Ég veiði hænur, mennirnir veiða mig. Allar hænurnar virðast vera eins og allir mennirnir virðast vera eins. Mér leiðist þess vegna svolítið.

En ef þú temur mig, verður eins og það birti til í lífi mínu. Ég myndi þekkja fótatak sem væri öðruvísi en öll önnur. Öll hin myndu fá mig til að flýja í grenið mitt. Þitt myndi fá mig til að koma hlaupandi, eins og ég hefði heyrt fallega tónlist.

Og sjáðu líka! Þú sérð þarna, hveitiakrana? Ég borða ekki hveiti. Það er gagnslaust fyrir mér.

Hveitiakrarnir minna mig ekki á neitt. Og það er sorglegt! En þú ert með gullið hár. Þar af leiðandi yrðu akrarnir undurfagrir fyrir mér, ef þú værir búinn að temja mig!

Því hveitið er gullið og það myndi minna mig á þig. Og ég kann svo vel við hljóðið í vindinum sem blæs gegnum hveitið...

Refurinn þagnaði og horfði lengi á litla prinsinn:

-Ef þig langar... temdu mig þá! sagði hann.

-Mig langar það alveg, en ég hef ekki mikinn tíma. Ég þarf að eignast vini og læra að þekkja og skilja svo margt.

-Maður þekkir bara það sem maður hefur tamið, sagði refurinn. Mennirnir hafa ekki lengur neinn tíma til að þekkja neitt. Þeir kaupa hluti sem kaupmennirnir búa til. En úr því að á meðal kaupmanna eru engir sem geta orðið vinir þeirra, eiga mennirnir ekki lengur vini. Ef þú vilt eignast vin, temdu mig þá!

-Hvað þarf maður að gera? spurði litli prinsinn.

-Maður þarf að vera mjög þolinmóður, svaraði refurinn. Þú sest fyrst aðeins lengra í burtu frá mér, svona, í runnunum. Og ég myndi horfa á þig útundan mér og þú myndir ekki segja neitt. Tungumálið er það sem skapar misskilning. En með hverjum deginum gætir þú sest aðeins nær...

Næsta dag kom litli prinsinn til baka.

-Það er betra að koma alltaf á sama tíma dagsins, sagði refurinn. Ef þú kæmir til dæmis klukkan fjögur eftir hádegi, þá byrjaði ég að verða glaður um klukkan þrjú. Því nær sem drægi komutímanum, því glaðari yrði ég. Klukkan fjögur væri ég þegar orðinn fullur eftirvæntingar og væri þá verðlaunaður fyrir biðina! En ef þú gætir komið hvenær sem er, vissi ég aldrei hvenær ég ætti að byrja að hlakka til... það þurfa að vera siðir.

-Hvað eru siðir? spurði litli prinsinn.

-Það er líka eitthvað sem gleymist of oft, sagði refurinn. Það er eitthvað sem maður gerir til að sumir dagar séu öðruvísi en aðrir, ein stundin sé ólík þeirri næstu. Það er til dæmis ákveðinn siður hjá veiðimönnunum. Þeir fara og dansa við stúlkurnar í þorpinu.

Þess vegna eru fimmtudagar æðislegir! Ég get farið í gönguferðir, frjáls ferða minna, alla leiðina í víngarðinn. Ef veiðimennirnir dönsuðu hvaða dag sem þeim sýndist, væru allir dagar eins og ég fengi enga frídaga.

Þannig að litli prinsinn tamdi refinn. Og þegar leið að að brottförinni:

-Æi! sagði refurinn... ég fer að gráta.

-Það er þín eigin sök, sagði litli prinsinn, ég vildi þér ekkert illt, en þú vildir að ég temdi þig...

-Vissulega, sagði refurinn.

-En svo ferðu að gráta! sagði litli prinsinn.

-Vissulega, sagði refurinn.

-Þannig að þú ert engu bættari!

-Ég er samt betur settur, sagði refurinn, vegna litarins á hveitinu.

Svo bætti hann við:

-Sjáðu rósirnar. Þú skilur hvernig þín er einstök í heiminum. Þú kemur aftur til að kveðja mig og ég gef þér svarið við leyndarmáli.

Litli prinsinn horfði aftur á rósirnar.

-Þið líkist ekki rósinni minni, þið eruð ekkert þannig séð, sagði hann þeim. Enginn hefur tamið ykkur og þið hafið ekki tamið neinn. Þið eruð eins og refurinn minn var. Hann var ekkert annað en refur sem var eins og hundrað þúsund aðrir refir. En hann varð að vini mínum og núna er hann einstakur í heiminum.

Og þetta pirraði rósirnar.

-Þið eruð fallegar, en þið eruð tómar, hélt hann áfram. Maður getur ekki dáið fyrir ykkur. Vissulega myndi einhver venjulegur ferðalangur halda að rósin mín sé alveg eins og þið. En hún ein er mikilvægari en þið allar, því að ég sá um hana og vökvaði hana.

Því að ég setti hana undir glerhjúpinn. Því að það er hún sem ég skýldi með skjólveggnum. Af því að það var á henni sem ég drap lirfurnar (fyrir utan tvær eða þrjár til að þær gætu orðið að fiðrildum). Af því að það var hún sem ég hlustaði á kvarta, eða að monta sig, eða jafnvel bara að þegja.

Af því að þetta er rósin mín.

Og hann sneri sér aftur að refnum:

-Vertu sæll, sagði hann...

-Vertu sæll, sagði refurinn. Þetta var leyndarmálið mitt. Það er ósköp einfalt: maður sér bara með hjartanu. Það sem öllu máli skiptir er falið augunum.

-Það sem öllu skiptir er falið augunum, endurtók prinsinn, til að festa það í minni.

-Það er tíminn sem þú eyddir í rósina sem gerði rósina svona mikilvæga.

-Það er tíminn sem ég eyddi í rósina... sagði litli prinsinn, til að festa það í minni.

-Mennirnir eru búnir að gleyma þessari staðreynd, sagði refurinn. En þú mátt ekki gleyma þessu. Þú verður ábyrgur fyrir öllu sem þú hefur tamið. Þú berð ábyrgð á rósinni þinni...

-Ég ber ábyrgð á rósinni minni... svaraði litli prinsinn, til að festa það í minni.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE