×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Viernes Negro ¡Hasta 50% de descuento!
image

Rassfar í steini, 87. Getsakir og vissa

87. Getsakir og vissa

Við hjóluðum niður að höfn og fengum okkur kaffi. Napur gustur stóð utan af firðinum. Það var Ólafsdagurinn og í gamla bænum voru sölutjöld, bjórskenkar, pylsuvagnar, tónlist og trúðar. Um Ólaf Tryggvason segir:

„… þá lét hann reisa þar hús á Niðarbakka og skipaði svo, að þar skyldi vera kaupstaður …“[1]

Vissulega var þetta enn sami staður, sami lengdar- og breiddarbaugur, sömu fjöllin í augsýn, sami fjörður og einhvers staðar djúpt undir fótum manns sami jarðvegurinn. En við Gísli vorum staddir í öðru og yngra lagi tímans, í síðustu útgáfunni af þessum gamla bæ. Víst hafa verk löngu dauðra manna, þræla eða kónga, sem þeir inntu af hendi fyrir þúsund árum áhrif í nútímanum. Það getur hvort heldur verið tilskipun eða bara ein skóflustunga. Bæði eru þýðingarmikil og á vissan hátt eilíf. Án þeirra væri það sem við sjáum núna annað eða jafnvel alls ekki til. Þá væri hér kannski enginn bær og enginn hefði séð ástæðu til að grafa hér kistu ofan í mel.

En við vorum staddir á ákvörðunarstað. Tveir til viðbótar höfðu farið Ólafsveginn og velt fyrir sér ráðgátum hans. Margt var óljóst og jafnvel fleira en þegar við lögðum af stað. Skrifaði Snorri Ólafs sögu helga? Var Ólafur konungur sá maður sem lýst er í þeirri bók? Var einhver orrusta á Stiklastöðum og ef já, féll þar maður að nafni Ólafur? Er stakur fótur af þeim manni í kirkju í Ósló? Er eitthvað af Ólafi undir dómkirkjugólfinu í Þrándheimi eða er hann þar jafnvel allur? Brann Ólafur kannski árið 1328? Hvað sá Ólafur ofan af Kili? Komst hann einhvern tíma alla leið til Himnaríkis?

Sumar ferðir færa manni svör, aðrar ferðir færa manni spurningar en eru samt engu ófróðlegri. Viss getur maður bara verið um það sem er beint fyrir framan nefið á manni: malbikið, barrtrén og sultardropann.

[1] Heimskringla. Ólafs saga Tryggvasonar. 70. kafli.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE