×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Viernes Negro ¡Hasta 50% de descuento!
image

Föðurlaus sonur níu mæðra, Útúrdúr um hundshausa

Útúrdúr um hundshausa

Hundshaus framan á manni er afskaplega hvimleitt líkamslýti og ótrúlegt að þannig haus geti orðið neinum að gagni, nema helst þegar verið er að smala hreindýrum. Það verður að kallast einkennilegt meðal þjóða sem lærðu snemma að skrifa, að öldum saman finnast engar heimildir um menn með þessa hundshausafötlun, hvorki í Finnlandi né annarsstaðar. Það hefði þó átt að freista Snorra Sturlusonar að skjóta grein um þá inn í Heimskringlu og þá hefði ekki síður Olaus Magnus átt að geta þannig manna í hinni stórkostlegu sögu og aldafarslýsingu, sem hann ritaði um norrænar þjóðir á 16. öld: Historia de gentibus septentrionalibus. Maður hefði trúað því að hundshausamenn þessir hefðu einfaldlega dáið út fyrir hið sískynsamlega úrval náttúrunnar, ef ekki væri fyrir stutta athugasemd í bréfi Tómasar Sæmundssonar, Fjölnismanns, frá fyrri hluta nítjándu aldar. Þar segir Tómas orðrétt við móttakanda bréfsins: „Þú heldur að eg hafi skrifað þetta með hundshaus.“

Af hverju tekur Tómas, prestlærður maðurinn, svo til orða? Svona höfðu menn þá ekki talað öldum saman svo vitað sé. Nú var Tómas vissulega víðförull maður um sína daga og sú spurning vaknar, hvort hann hafi hugsanlega á ferðum sínum rekist á afkomendur þeirra óhamingjusömu manna sem Tacitus sagði frá, eða meinti hann þetta bókstaflega og var hugsanlega sjálfur af þessum ættum. Þetta er óráðin gáta, en allir vildu gera eins og Fjölnismenn og átu hvaðeina upp eftir þeim, svo síðan er alsiða hérlendis að segja ólundarlega menn vera með hundshaus.

Nú hefur það hent mig, og ekki í fyrsta sinn, að hvarfla frá umræðuefninu og lenda í útúrdúr. Ég ætla að þoka mér aftur í áttina að fæðingum og getnuðum með því að fara með stutt kvæði eða örsögu eftir Þórð Helgason, sem hann nefnir Hörkutól, en þar segir frá illa útlítandi manni þó að engan hefði hann hundshausinn:

Það er erfitt að gera sér í hugarlund að til þessa manns hafi verið stofnað með getnaði, að ung kona hafi numið ástarorð elskhuga sins og opnað honum

heitan faðm sinn, votar varir og döggvað skaut. Raunar er engu líkara en einhver hafi tekið að honum fyrstu skóflustunguna á köldu vori, þegar enn var frost í jörðu.

Bréf Tómasar Sæmundssonar. Útg. Jón Helgason. Gutenberg. Reykjavík 1907. S. 82

Þórður Helgason: Meðan augun lokast. Útgefanda ekki getið. Reykjavík. 1995. S. 28

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE