×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

image

Föðurlaus sonur níu mæðra, Um ósanngjörn eftirmæli

Um ósanngjörn eftirmæli

Biskupinn í Novgorod lenti í dálítið keimlíkum ófögnuði og jafn ósanngjörnum. Hann var uppi samtímis Ívani grimma á 16. öld, sem var útþenslumaður og tók að brjóta undir sig rússneska aðalinn með ágætum árangri og þeirri grimmd sem hann hlaut viðurnefni sitt af. Persónulega hafði hann gaman af að beinbrjóta óvini sína eða láta steikja þá við hægan eld. Eitthvað varð til að ergja Ívan út í borgina Novgorod, svo hann lét hermenn sína ráðast á hana; ræna þar, nauðga og myrða. Ívan var sérlega uppsigað við erkibiskupinn í borginni, háheilagan og grandvaran mann í öllu efni, því eftir sigurinn efndi hann til þeirrar skemmtunar sér og sínum að gifta biskupinn merhrossi og láta hann síðan ríða brúði sinni allar götur suður og austur til Moskvu. Þessi biskup hafði þá alla ævina ástundað lofsvert líferni, unnið öll sín prestverk fallega, verið fátækum ölmusugóður og stýrt málum kirkjunnar farsællega. Um þetta hefðu eftirmælin náttúrulega átt að fjalla en enginn man eftir neinu af þessu. Sagan geymir aðeins þessa einu mynd af honum ríðandi nýkvæntum undir hæðnishlátrasköllum á merinni til Moskvu. Orðstír deyr aldregi, segja Hávamál, en lífið á til að vera afar ónærgætið og orðstírinn sem lifir er alls ekki alltaf smekklega valinn.

Árni Bergmann: Rússland og Rússar. Mál og menning. Reykjavík 2004. S. 27-8

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE