×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

image

Föðurlaus sonur níu mæðra, Um nöldur og neikvæðni

Um nöldur og neikvæðni

Þar með er ekki sagt að getnaðir og fæðingar séu jafn sjálfsagt umræðuefni og ástin. Svo er ekki því það er varla til svo aumur samblásturshópur í þjóðfélaginu, að ekki megi særa hann og móðga með gálausu tali um þessi efni: femínísta, maskúlínista, framsóknarmenn og gamla marx-lenínista, samkynhneigða, gagnkynhneigða og ókynhneigða, en þeim síðastnefndu hundleiðist einfaldlega allt kynlífstal. Sérlega verður að fara varlega gagnvart kirkjunni, sem fyrr á tímum áleit kynlíf að 99% leyti þjóna fjandanum. Hún viðurkenndi þó með semingi, að úr því fólk illu heilli væri tilneytt að ástunda kynlíf til að viðhalda sér, þá ætti það að vera sem sjaldnast, aðeins milli harðgiftra hjóna, eingöngu í niðamyrkri, ávallt í sem flestum og þykkustum fötum, og helst þannig að bæði væru hjónin hálfsofandi, svo þau hefðu ekki hina minnstu ánægju af athöfninni sjálfri. Það var raunar nærri því aðdáunarverð fífldirfska frumkirkjunnar að byrja feril sinn á því að segja sjálfri kynhvötinni stríð á hendur, hún hefði eins getað tekið upp baráttuna gegn sólskininu eða vindinum.

Hér er þó skylt að geta þess að fleiri en kirkjunnar menn einir hafa haft takmarkað álit á kynlífi. Þannig sagði til að mynda mexikanski málarinn Diego Rivera, þegar hann var að reyna að útskýra taumlaust framhjáhald sitt fyrir konunni sinni Fridu Kahlo: „Kynlíf er líkast þvagláti og stórkostlega ofmetið “.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE