×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Rebaja de Año Nuevo ¡Hasta 50% de descuento!
image

Föðurlaus sonur níu mæðra, Hér er sagt frá banvænum hnetusmjörskossi

Hér er sagt frá banvænum hnetusmjörskossi

Sagan um hnetusmjörskossinn er annað dæmi um ástarsamband sem endaði í algjöru klúðri, en það var Morgunblaðið sem flutti okkur fregnir af honum í vetrarbyrjun árið 2005 og hafi þökk fyrir.

Þannig var að í Kanada hafði ungt par dregið sig saman þá um sumarið og var að kyssast annað slagið eins og gengur án þess að neitt sé hér fullyrt um önnur atlot. Þetta væri ekki frásagnarvert í öðrum sóknum nema fyrir þá sök, að eitt sinn skömmu áður en slík kossahrina hófst hafði pilturinn hvomað í sig heilli brauðsneið með hnetusmjöri og ekki burstað tennurnar á eftir. Það sem hann ekki vissi var að unnustan hafði bráðaofnæmi fyrir hnetusmjöri, þannig að fyrsti kossinn eftir brauðsneiðina varð hennar síðasti koss. Það tókst ekki einu sinni að koma henni á sjúkrahús áður en hún dó. Saga þessi er lærdómsrík um fleira en ástina eina, því hún skýtur faglegum rökum undir þá ráðleggingu Lýðheilsustöðvar Íslands að fólk bursti ævinlega tennurnar eftir borðhald.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE