×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

image

Föðurlaus sonur níu mæðra, Hér er auk margs annars gerð grein fyrir föðurlausum syni...

Hér er auk margs annars gerð grein fyrir föðurlausum syni...

Hér er auk margs annars gerð grein fyrir föðurlausum syni níu mæðra

Hér að framan hefur komið fram að langalgengast er að karlkyn og kvenkyn standi sameiginlega að getnuðum. Þetta fyrirkomulag viðurkennir Tryggingastofnun ríkisins og alþýðan er þessu vönust og kann því vel. Frá þessu eru þó marktækar undantekningar.

Til munu vera að minnsta kosti einar þrjú hundruð dýrategundir í heiminum sem barna sig sjálfar á einmanalegan og gleðisnauðan en alls ekki árangurslausan hátt, því sumar þeirra hafa haldið velli í yfir 80 milljónir ára. Í samanburðinum er mannkynið nýkviknað í veröldinni og það hefur engan útbúnað til einkynja æxlunar og raunar fremur neikvæða afstöðu til hennar.

Vísbendingu um ástæðuna fyrir því veita finnsku félagarnir Pekka og Jukka. Eftir drykklanga þögn spurði Pekka vin sinn Jukka eitt sinn, hvort honum þætti nú betra að fróa sér eða að eiga samræði við konu. Jukka þagði lengi meðan hann hugsaði sig um en svaraði loks: „Það er betra að eiga samræði við konu.“. Drjúga stund velti Pekka þessu svari fyrir sér en spurði svo: „Af hverju?“. Nú þagði Jukka lengur en áður, ekki af því hann vissi ekki hvað hann ætlaði að segja, heldur af því honum fannst ekkert liggja á. Síðan sagði hann: „Ja, maður hittir fólk“

Einkynja æxlanir eru alveg út undir jaðri þess efnis sem hér er til umræðu, svo nú verður ekki dvalið lengur við þær heldur vikið að Heimdalli. Haldið er að Heimdallur hafði verið venjulegur varðmaður í liði höfðingjans Óðins, sem framan af bjó austur í Ossetíu eða jafnvel Azerbaijan, en hrökklaðist undan framrás Rómverja norður eftir Evrópu og settist loks að af öllum stöðum norður í Svíþjóð. Meðal þess ruslaralýðs sem þar bjó, þótti hinn víðförli Óðinn merkilegur, hann komst fljótt til metorða og varð guð. Í ríki hans Ásgarði var Heimdallur einskonar Securitas-maður, enda vel til þess fallinn, þar sem hann sá hvaðeina á 120 km. færi, sem er líkt og hann gæti fylgst með mannaferðum uppi á Snæfellsjökli standandi á bryggju álversins í Straumsvík. Hann hafði aukin heldur þvílíkt góða eyrn, að hann heyrði greinilega þegar ull spratt á rollum eða grös greru á túnum og telst þó hvorugt hávaðasamt. Nærri má geta að svo næmum manni yrði órótt í umferðargný nútímans eða glymjandanum úr síbylgjustöðvunum.

En það eru ekki skilningarvit Heimdallar sem hér eru til skoðunar, heldur getnaður hans. Auk annarra mannkosta var hann hagmæltur og orti sjálfur um þetta atriði:

„Níu em eg mæðra mögr,/níu em eg systra sonur.“ Nú er Snorri merkilega fámáll um það hvernig það vildi til að Heimdallur var sonur níu systra. Í þeim punkti kemur okkur enn til hjálpar sænski höfundurinn Torgny Lindgren, sem ritað hefur bók um félaga Heimdallar sem Freyr hét. Úr bókinni þeirri hef ég snarað eftirfarandi pósti lauslega en sleppt því sem helst gæti misboðið blygðunarkennd almennings:

“Heimdall gátu og ólu níu tröllkonur og voru allar jómfrúr. Fyrir víst er vitað að það gerðist með eftirfarandi hætti: allar níu voru þær góðar vinkonur og unnu við að snúa alheimskvörninni, sem veldur flóði og fjöru, snýr himinhvolfinu, lætur stjörnurnar hreyfast og mylur kletta og björg niður í fínan sand og möl. Inn á milli tóku þær kaffipásur og létu þá stundum vel hver að annarri, líkt og börn gera í leik. En í eitt skiptið urðu þær ákafari en vanalega og gengu lengra en þær höfðu ætlað sér. Þær urðu heitar og kófsveittar, fóru úr kjólunum og tóku að faðmast og knúsa hver aðra allt öðru vísi en þær áttu vanda til. Til og með tóku þær sveifina af kvörninni til handargagns og af núningi þessum öllum og nuddi varð brennandi hiti. Reykjarkóf lagði upp af þeim með gneistaflugi og fyrr en nokkurn varði birtist Heimdallur, og hafði fæðst úr skautum þeirra allra níu samtímis, sem mun vera einsdæmi. Strax nýfæddur var hann ljóshærður, myndarlegur og vellyktandi og var ekki ungabarn heldur strax orðinn unglingur. Hann lagðist samt þegar í stað á brjóst mæðra sinna allra níu, þótt eiginlega væri hann upp úr því vaxinn.”

Hér lýkur frásögn Torgny Lindgren og litlu við hana að bæta nema smáatriði frá Snorra Sturlusyni, sem upplýsti að Heimdallur sofi minna en fugl og hafi frá fæðingu haft gulltennur og er hann því sá eini í mannkynssögunni sem ekki þurfti að borga okurverð fyrir þessháttar tennur.

Edda Snorra Sturlusonar. Mál og menning. Reykjavík. 1994. S.40

Torgny Lindgren. Kärleksguden Frö: en levnadsteckning. Pan. Stokkhólmi 1990. S. 19-20

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE