×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Viernes Negro ¡Hasta 50% de descuento!
image

Með skör járntjaldsins, 55. Fugger

55. Fugger

En víkur nú sögunni aftur til Banská Bystrica og peningavandræða hins stórhuga aðalmanns, Thurzo. Hvern fékk hann til liðs við sig í fjárfestingum? Það var Jakob II Fugger, sem kallaður var hinn ríki og það var orð að sönnu. Einhverjir hafa reiknað út að ríkidæmi hans samsvaraði því að hann ætti einn með haus og sporði eitt hundrað stærstu fyrirtæki Þýskalands nútímans. Varla nokkurt fjölþjóðafyrirtæki nú á dögum, hvað þá einstaklingur, kæmist í samjöfnuð við hann. Í borgarlistasafninu í Augsburg hangir uppi málverk sem Albrecht Dürer málaði af Jakob kringum 1520, þá rosknum manni, og það er eitt af öndvegisverkum aldarinnar. Myndin sýnir svírasveran mann með þunnar varir, samanbitinn munn og augnaráðið leitar langt, langt út fyrir myndina. Ákveðni, festa, dettur manni í hug, jafnvel þumbaraskapur, en ekkert í myndinni gefur til kynna neitt í ætt við lífsnautn, nema helst loðkápan mikla sem heldur á honum hita í öllum veðrum. Langafi hans hét Hans, var vefari að iðn og óx upp í Svabíu. Hann fluttist til Augsburg árið 1367, vann sig upp með útsjón og hinni víðfrægu iðni Svabanna, komst í bæjarstjórn, verslaði með dúka og varð moldríkur. Afkomendur hans lögðust ekki í bílífi heldur höfðu einmitt þessa blöndu af dirfsku, ófyrirleitni og víðsýni sem, þá eins og nú, knýr menn áfram sem vilja fremur skapa auð en eyða honum. Aldrei urðu umsvif Fuggerættarinnar meiri en í tíð Jakobs, og það var koparinn frá Banská Bystrica og nánast algjör einokun hans á koparsölu í allri Evrópu sem réð þar mestu. Jakob Fugger léði Hinrik VIII Englandskonungi fé og fjármagnaði valdatöku Karls V keisara í Hinu heilaga þýsk-rómverska ríki. Það var gjöfull bransi að lána kóngum og keisurum. Karl V réð yfir meiri löndum en nokkur þjóðhöfðingi í Evrópu fyrr og síðar og hann endurgalt Jakobi greiðann ríkulega með því að gefa honum skattheimturétt á Spáni og námaréttindi í Nýja heiminum. Auk þess annaðist Fugger-veldið alla myntsláttuna fyrir Páfagarð og blandaðist í hina arðsömu sölu aflátsbréfanna. Allt varð að gulli og gullið yfirvann allar hindranir. Fimm Fugger-ættliðir í röð voru framúrskarandi kapítalistar. Það var ekki fyrr en með sjötta ættliðnum sem hóglífið varð ágirndinni yfirsterkari. Árið sem Jakob Fugger dó, 1525, urðu uppþot meðal námumannanna í Banská Bystrica. Þeir voru orðnir langþreyttir á síharðnandi kröfum samtímis versnandi kjörum. Rúmum tuttugu árum síðar var Neusohler Kupferhandlung öll. Oft átta menn sig ekki á því hvenær háfluginu lýkur og hvar niðurleiðin hefst. Kannski hófst niðurleið Fugger-veldisins í þessum bæ. Tilraunir til námuvinnslu í Noregi, Svíþjóð og Chile ásamt aðild að hinni byrjandi en efnilegu þrælasölu frá Afríku, dugðu ekki til. Feigðin hafði sest að í húsi Fuggeranna Eftir standa 106 smáhýsi í Augsburg, nefnd die Fuggerei. Það leynist kannski einhver viðkvæmnisvottur í einbeittu, hörðu andliti Jakobs ríka, sem manni yfirsést, en hann lét byggja þessi 106 litlu hús handa öldruðu fólki, sem hafði unnið hjá honum. Ef til vill hugsaði hann sér að velgjörð við 106 manns mundi vega eitthvað á móti harðræðinu gegn hinum þúsundunum og milljónunum sem höfðu fært honum auðinn með blóði sínu, svita og tárum. Lærðra manna spítalinn í Gaulverjabæ er löngu hruninn og húsakynnin á Kvíabekk í Ólafsfirði, sem hýstu aldraða presta á fjórtándu öld, eru orðin að mold, en húsin í Augsburg standa enn. Þau eru kannski elstu uppistandandi elliheimili veraldar. Fugger 144 Framfarir? Það er von að menn hafi ekki komist upp á lag með að tala um framfarir fyrr en á síðustu öldum, svo afsleppt sem það hugtak er, en samkvæmt öllum venjulegum orðskilningi var Jakob Fugger hinn ríki, hluti af framförunum í heiminum. Með því er ekki neitt sagt um hvort heimurinn hafi orðið betri eða verri hans vegna og alls óljóst hvort framfarir koma þeirri spurningu nokkurn skapaðan hlut við.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE