Inngangur
Inngangur. Við pabbar skiptum miklu máli. Við erum fyrirmyndir og höfum mótandi áhrif á börn okkar. Fyrir nokkrum áratugum var meginhlutverk pabba að sjá fyrir fjölskyldu sinni. Þeir unnu eins mikið þeir gátu og konan sá nánast alfarið um heimilið og börnin. Í dag vilja flestir pabbar vera meira með fjölskyldu sinni. Það er meira gefandi, en um leið flóknara. Það er einfaldara að þurfa bara að hugsa um sjálfan sig, stökkva út í vinnu á morgnana og koma heim eftir langt dagsverk án þess að hafa nokkrar skyldur á heimilinu. Þessi bók er skrifuð fyrir nútímapabba sem vilja bæði færa björg í bú og hafa tíma til samveru með sínum nánustu. Vera góðar fyrirmyndir og stuðla að því að börn þeirra verði betri manneskjur en þeir sjálfir. Þannig gerum við heiminn betri, skref fyrir skref. Ég á fjóra syni. Þeir eru á mörgum sviðum betri manneskjur en ég var á þeirra aldri. Sá yngsti er enn í leikskóla, sá elsti er nýfluttur að heiman og byrjaður í háskóla. Það er um leið gaman og ógnvekjandi að eignast sitt fyrsta barn. Því fylgir enginn leiðarvísir og maður gengur í gegnum mörg óvissutímabil í uppeldinu. Maður er alltaf að læra og fær reglulega nýjar og ferskar áskoranir. Útgangspunkturinn í bókinni er pabbinn sjálfur og ég skrifa bókina út frá minni sýn og reynslu af því að vera pabbi í 20 ár. Til þess að vera góð fyrirmynd fyrir börn sín þarf pabbinn að hugsa vel um sjálfan sig, halda sér hraustum og heilbrigðum. Hann þarf að vera góður maki. Hann þarf að vera hvetjandi, skemmtilegur, fræðandi, styðjandi, lifandi og óhræddur. Hann þarf að þora að taka ákvarðanir og láta drauma rætast. Sýna í verki að maður getur það sem maður vill. Hann þarf að geta lært af mistökum sínum og nýtt þau til að gera betur næst. Bókin er skrifuð með verðandi og núverandi feður í huga. Ég vona að hún geti orðið til gagns og hvatningar. Lífið er ferðalag og ferðalagið verður innihaldsríkara og skemmtilegra þegar maður hefur eignast maka og börn sem taka þátt í ferðalaginu með manni.