×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Rebaja de Año Nuevo - Semana Extendida ¡Hasta 50% de descuento!
image

Njóttu ferðalagsins, Guðjón Svansson, 5 - Njóttu þess að vera pabbi

5 - Njóttu þess að vera pabbi

Ég kom inn á það í kaflanum um þakklæti að það breytti lífi mínu að verða pabbi. Á jákvæðan hátt. Það gerði mig að betri persónu. Ég fór að hugsa meira um aðra. Fór að pæla meira í réttu og röngu. Fór að hugsa um mig sem fyrirmynd, að nú væru að koma inn í lífið einstaklingar sem litu upp til mín og að ég þyrfti að hegða mér samkvæmt því. Ég upplifi pabbahlutverkið alls ekki sem pressu þrátt fyrir þessa auknu ábyrgð. Þvert á móti, mér finnst ótrúlega gaman að vera pabbi. Líf með börnum er frábært líf. Þau opna huga manns, halda manni ungum og lifandi. Í stað þess að velta þér upp úr áhyggjum, njóttu þess í botn að vera pabbi. Þú þarft ekki að vinna allan sólarhringinn til þess að kaupa nýjan bíl eða stærri íbúð. Börn þurfa ekki mikið pláss, þau þurfa ekki sérherbergi frá fyrsta degi til þess að dafna vel. Það er hægt að fá mikið lánað af barnadóti hjá ættingjum og vinum eða þá kaupa notað á Netinu. Þú ert dýrmætari sem pabbi þegar þú er með börnunum og makanum heldur en í aukavinnunni að vinna fyrir hlutum sem skipta litlu máli. Þessi tími líður miklu hraðar en þú heldur. Börnin hætta að vera börn, breytast í unglinga og svo fullorðið fólk sem flytur að heiman. Frekar en sjá eftir því eftir á að hafa bara náð fáum samverustundum með börnunum, mæli ég með því að þú nælir þér strax í eins margar þannig stundir og þú getur. Þú átt ekki eftir að sjá eftir því. Ég áttaði mjög skýrt á þessu þegar við vorum komin með þrjú börn, stráka þá á aldrinum þriggja til níu ára. Var þá í vinnu sem krafðist þess að ég væri mikið á ferðalagi um heiminn. Mér finnst mjög gaman að ferðast og í þessu starfi fékk ég að fara á staði sem ég annars hefði örugglega ekki farið á. Það er ég afar þakklátur fyrir. En þótt mér fyndist gaman að koma á nýja staði, saknaði ég þess að hafa ekki fjölskylduna mína með mér. Mig langaði að deila upplifunum með þeim. Og mér fannst ég vera að missa af aðeins af strákunum, að þeir væru að vaxa og þroskast án þess að ég næði að fylgjast almennilega með og taka þátt í því með þeim. Við konan mín tókum þá eina bestu ákvörðun lífs okkar, að við fjölskyldan færum saman í heimsreisu í eitt ár. Að við myndum ferðast saman, upplifa nýja staði saman, þjappa okkur betur saman sem fjölskyldu, og um leið sýna okkur og strákunum fram á í verki að það væri hægt að láta stóra drauma rætast. Við ákváðum að safna fyrir ferðinni, festum dagsetningu þrjú ár fram í tímann og sögðum öllum sem hlusta vildu frá ákvörðuninni. Við gerðum það til þess að skapa jákvæða pressu á okkur, tryggja að við hættum ekki við. Þetta var stór ákvörðun fyrir okkur. Við áttum ekki digra sjóði, við áttum ekki einu sinni magra sjóði. Við vorum ekki hátekjufólk. En við ákváðum að trúa á drauminn og vinna markvisst að því að láta hann rætast. Heimsreisan kemur meira við sögu í síðar í þessari bók. Hún er ein af megin ástæðum þess að ég skrifa þessa bók, svo djúpstæð áhrif hafði hún á okkur sem fjölskyldu. En hvernig nýtur maður þess að vera pabbi? Samvera er lykilatriðið. Að gera hluti saman. Hvað er skemmtilegt að gera með börnunum sínum? Það er gaman að velta þessu fyrir sér í dag með 5, 13, 17 og 19 ára börn. Hér eru nokkrir punktar um það sem ég hef notið, og nýt, að gera með guttunum. Listinn er langt frá því að vera tæmandi: • Sundferðir. Ísland er sundlaugaland. Hver einasti smábær með virðingu fyrir sjálfum sér er með sundlaug og þar fyrir utan er mikið af náttúrulaugum á þessu lands elds og ísa. Eitt það skemmtilegasta sem maður gerir með börnum er að fara í sund, það er hægt að leika sér endalaust í vatninu. • Fótbolti. Sumir krakkar fæðast nánast með bolta á tánum og byrja að sparka í bolta nánast áður en þeir læra að labba. Fótbolti er vinsælasta íþrótt í heimi og það nýtist vel að kunna eitthvað aðeins fyrir sér í fótbolta þegar maður ferðast um heiminn. Ég man skýrt eftir því þegar við konan mín, þá barnlaus í Danmörku, sátum á sólardegi í almenningsgarði og fylgdumst með fjögurra manna fjölskyldu í fótbolta. Mamman og annað barnið að spila á móti pabbanum og hinu barninu. Mér fannst þetta mögnuð stund. Þau höfðu svo gaman af þessu, hlógu allan tímann, og ég man að ég hugsaði að einhvern tíma vildi ég upplifa þetta með mínum eigin börnum. Og það hef ég svo sannarlega gert. • Trampolín. Niðurgrafið svo það fjúki ekki burt í hávaðaroki á veturna. Mér finnst mjög skemmtilegt að hoppa með 5 ára stubbnum, hann elskar það þegar ég læt hann skjótast hátt upp í loft. • Glíma. Við elsti leikum okkur stundum í brasilísku jiu jitsu, höfum báðir æft þá íþrótt. Hann er enn þá betri en ég, en ég ætla að ná honum. Sá minnsti hefur líka gaman af því að tuskast en miðjuguttarnir tveir eru meiri boltastrákar. Það er mikilvægt að taka tillit til þess hverju börnin hafa gaman af. Það er um að gera að kynna þau fyrir alls konar hreyfingu og íþróttum og styðja þau svo í því sem þau hafa mest gaman af. • Lestur. Við höfum alltaf lesið mikið fyrir strákana, alltaf fyrir svefninn langt fram eftir aldri. • Spil. Það er ótrúlega gaman að spila við börnin sín. Hefðbundin spil, borðspil eða tölvuleiki. • Bíóferðir. Best þegar maður fer á myndir sem bæði fullorðnir og börn geta tengt við. • Fjallgöngur og göngutúrar. Hér er gæfulegast að fara rólega yfir, ekki stressa sig, gefa sér tíma til að skoða hluti og njóta umhverfisins. • Ferðalög. Líklega toppurinn. Það er ekkert skemmtilegra en að ferðast með fjölskyldunni. Bæði innan lands og utan. Við fórum í okkar fyrsta fjölskylduferðalag þegar frumburðurinn var tíu mánaða. Flugum þá frá Danmörku til Gardavatnsins og áttum þar góða viku. Hann hefur alltaf verið mikill morgunhani og við skiptumst á að fara í morgungöngu með hann um fimmleytið á morgnana. Fylgdumst með lífinu í þorpinu vakna, vinnukallana fá sér morgunkaffið, veitingastaðina gera klárt fyrir daginn. Þegar þetta er skrifað erum við að undirbúa fjölskylduferð til Asíu. • Daglegt líf. Borða saman, ræða málin, horfa á sjónvarpið. Þetta þarf ekki að vera flókið, góð samvera snýst um að sýna áhuga á því sem er að gerast hjá börnunum og njóta þess að vera til með þeim. Strákatími er líka nokkuð sem við höfum lagt áherslu á. Tími sem við höfum gert strákahluti saman. Við höfum meðal annars búið til þá hefð að fara saman í feðgaferð í kringum fermingaraldurinn. Það hafa verið frábærar ferðir sem hafa tengst áhugasviði okkar. Ég fór með elsta strákinn til Barcelona til að sjá Gunna Nelson taka þátt í stórri glímukeppni og með miðjustrákana tvo til Amsterdam að sjá Ísland vinna Holland í fótbolta. Þetta voru stórar stundir í íþróttasögu Íslands og það var frábært að upplifa þær með strákunum.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE