×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

image

Njóttu ferðalagsins, Guðjón Svansson, 2 - Vertu þakklátur

2 - Vertu þakklátur

Það geta ekki allir eignast börn. Við pabbar erum svo lánsamir að hafa getað það að okkur ber skylda til að vera þakklátir. Það er í mínum huga stór gjöf að fá vera foreldri. Það bætir líf manns á svo margan hátt. Ég er þakklátur fyrir alla mína fjóra stráka. Þeir eru þegar þetta er skrifað 19, 17, 13 og 5 ára. Ólíkir einstaklingar á margan hátt, en eiga líka margt sameiginlegt. Það hafa verið forréttindi að fá að vera samferða þeim í gegnum lífið hingað til og ég hlakka til að verða þeim samferða áfram. Þakklæti er mjög sterk og góð tilfinning. Ég fer reglulega í þakklætismorgungöngur. Þá labba ég um skógarstíginn í hverfinu mínu og hugsa um allt það sem ég er þakklátur fyrir. Ekki bara strákana, heldur allt sem mér dettur í hug. Ég er þakklátur fyrir umhverfið, náttúruna, trén, ána, ferska loftið, fjölskylduna, vinina, æfingafélagana, þau tækifæri sem ég hef fengið, Ísland, heilsuna, frelsið, að hafa fengið litla brosmilda frænku inn í fjölskylduna, nágrannana, Mosfellsbæinn, Árbæinn og margt fleira. Þegar þú markvisst ferð í gegnum allt það sem þú getur verið þakklátur fyrir, hugsar um hvert og eitt atriði, þá fer um þig hlýr orkustraumur. Að byrja daginn á þessu er öflugt. Þú finnur hvað lífið er gott. Sama hvaða áskoranir eða erfiðleikar bíða þín, þá er alltaf eitthvað sem þú getur verið þakklátur fyrir og það eflir þig til dáða að minna þig á það reglulega. Ég þakka líka stundum fyrir það sem ég á einhverjum tímapunkti upplifði sem mótlæti eða höfnun. Það eru oft ástæður fyrir því að maður lendi í erfiðleikum, það annað hvort styrkir mann og herðir eða leiðir á aðrar brautir. Ég er þannig þakklátur danska háskólakerfinu sem hafnaði öllum umsóknum mínum á sínum tíma, en benti mér á að ég gæti komist að á nýrri námsbraut sem gekk út á menningarmun í alþjóðasamskiptum. Þetta hafði ekki verið á stefnuskránni en námið var frábært og ég hef unnið alla tíð síðan með þau fræði sem ég lærði þar. Ég er líka þakklátur fyrir að við fjölskyldan töpuðum helmingnum af ferðasjóðnum okkar þegar íslenska krónan hrundi í miðri heimsreisu. Það leiddi til þess að við þurftum að hafa meira fyrir hlutunum, standast stærri áskoranir og gátum verið lengur í Suður Ameríku. Það getur verið erfitt að taka á móti hrósi og þakklæti, manni hættir til að gera lítið úr sjálfum sér og því sem maður gerir. En það er hollt að geta tekið við hrósi án þess finnast maður verða að hrósa strax á móti. Það eflir mann að vita að einhver sé ánægður með mann og það sem maður gerði. Góðir pabbar hrósa. Börn þrífast á hrósi. Pabbahrós telur mikið. Ég hrósa mínum strákum fyrir margt, til dæmis að þora að vera sjálfstæðir og prófa nýja hluti, leggja sig mikið fram, sýna frumkvæði og vera hjálpsamir við aðra. Hrósið kennir þeim þakklæti. Að vera ánægðir með það sem þeir hafa og gera vel. Þakklátir pabbar eru jákvæðir og gefa frá sér góða orku. Þeir upplifa föðurhlutverkið ekki sem skyldu, heldur sem tækifæri og gjöf.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE