×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Rebaja de Año Nuevo ¡Hasta 50% de descuento!
image

Njóttu ferðalagsins, Guðjón Svansson, 18 - Lærðu af öðrum

18 - Lærðu af öðrum

Alveg eins og maður getur lært mikið af börnunum sínum ef maður gefur sér tíma til að vera með þeim, þá getur maður alltaf lært eitthvað nytsamlegt af öllum sem maður hittir og öllu sem maður upplifir. Fyrir mér er þetta ekki flókið. Ef maður er opinn fyrir því að læra og fræðast af öðrum, þá verður maður betri manneskja. Skilningsríkari. Opnari. Skemmtilegri. Ég veit ekkert leiðinlegra en „besserwissera“, þá sem halda að þeir viti allt betur en allir aðrir og eru ófeimnir við að láta umheiminn vita af því. Ég trúi því að allir geti lært eitthvað af öllum. Allir hafa áhuga á einhverju og vita meir um það en þeir sem ekki hafa áhuga á því sama. Mér finnst virkilega gaman að tala við fólk sem hefur sökkt sér ofan í pælingar sem ég veit ekkert um. Sá síðasti sem kemur upp í hugann er meindýraeyðirinn sem ég spjallaði við í sumar, sá vissi allt um skordýr, rottur og aðrar lífverur sem flestir vilja forðast. Hann útskýrði fyrir mér í smáatriðum hvernig hann setti sig inn í hugarheim þess meindýrs sem hann væri að berjast við í það og það skiptið. Að hann reyndi að hugsa eins og lúsmý. Hvað lærði ég af honum? Til dæmis að ef maður vill verða mjög góður í einhverju þarf að maður að taka það alla leið, sökkva sér ofan í fræðin, kynna sér eins vel og hægt er hvað málið snýst um og hvernig maður best leysir verkefnið. Það skiptir ekki máli hvort þú ert að berjast við lúsmý eða ætlir að afnema verðtrygginguna. Einbeiting, dugnaður og djúpur áhugi er það sem skiptir öllu. Maður getur líka lært af þeim sem eru ekki til beinlínis til fyrirmyndar. Þegar ég sé pirraða sundpabbann tala við barnið sitt í leiðinda nöldurtón, minni ég sjálfan mig á að vera ekki svona sjálfur. Sama hvað ég er þreyttur, stressaður eða pirraður á hinu eða þessu. Það sama gildir um besserwisserinn, hann hjálpar mér að passa mig á því að vera ekki hrokafullur og þykjast vita allt betur en aðrir. Það þýðir ekki að maður megi ekki segja sína skoðun eða miðla af eigin reynslu. Maður þarf bara að vera opinn fyrir öðrum leiðum, viðurkenna að það séu hugsanlega til aðrar og jafnvel betri aðferðir en maður sjálfur hefur lagt til. Umhverfið og þeir sem maður umgengst móta mann mest. En maður getur alltaf breytt um umhverfi, umgengist jákvæðara og meira hvetjandi fólk og búið til þannig aðstæður fyrir börnin sín að þau geri það líka. Ég hef lært góða hluti víða, af ótrúlega mörgu fólki, og er enn að læra. Ég verð alltaf að læra, út lífið. Ég á aldrei eftir að vita allt, kunna allt eða geta allt. Það er það sem gerir lífið svo skemmtilegt, maður er alltaf að upplifa eitthvað nýtt og læra eitthvað nýtt. Bæta sig. Það sem ég hef mest lært af foreldrum mínum er að vera alltaf til staðar fyrir börnin mín. Þau eru alltaf til taks, alltaf tilbúin að koma til aðstoðar þegar á þarf að halda. Þau hafa ekki reynt að hafa áhrif á þær leiðir sem ég hef farið í lífinu, ekki reynt að stýra mér í ákveðnar áttir, ekki nema að þau hafa alltaf hvatt mig til menntunar. Ég met það mikils og tek þau mér til fyrirmyndar að þessu leyti. Systir mín hefur kennt mér að vera minna stressaður og njóta dagsins betur. Vera í núinu. Með því að hugsa lífið sem eitt risastórt lærdómsferli og taka þann útgangspunkt að það sé hægt að læra eitthvað af öllum þá bætir maður sjálfan sig og eykur um leið skilning sinn á aðstæðum annarra. Það að geta sett sig í spor annarra er góður eiginleiki, bæði í hinu þrönga og hinu víða samhengi. Til þess að vera góður maki, geta vera góður við konuna þína, þarftu að skilja hana, þekkja hennar bakgrunn og hennar sýn á lífið. Því auðveldara sem þú átt með að setja þig í hennar spor, því betri verða ykkar samskipti. Og því betri maki og um leið pabbi verður þú. Það sama gildir með börnin þín. Þeirra heimur er á margan hátt ólíkur þínum heimi, þótt þið búið í sama húsi. Því betur sem þú þekkir börnin þín, hvað þau eru að gera dags daglega, hverjir vinir þeirra eru, því betur getur þú sett þig í þeirra spor. Það bætir samskipti ykkar og auðveldar þér að setja þeim ramma og grunnreglur. Þessi hæfileiki að geta hlustað á aðra og sett sig í þeirra spor er að sama skapi mjög mikilvægur á heimsvísu í dag. Órói ríkir víða, fólk flýr lönd sín og ólíkir menningarheimar rekast á dags daglega. Að mínu mati ber okkur foreldrum rík skylda til þess að ala börnin okkar upp þannig að þau fræðist um ólíka menningarheima, ólíkar aðstæður fólks og um leið ástæður þess að fólk eigi stundum erfitt með að skilja hvort annað. Ein af ástæðum þess að við vildum fara í heimsreisu með strákana okkar var einmitt að auka víðsýni þeirra og skilning á ólíkum aðstæðum og lifnaðarháttum. Sýna þeim að heimurinn væri stærri en Mosfellsbær, stærri en Ísland. Ég vil trúa því að upplifunin hafi haft áhrif á þá. Að sjá og upplifa hvernig fólk býr í smáþorpum í Bolivíu, í stórborginni Ríó, á lítilli eyju í Karabíska hafinu svo nokkur dæmi séu nefnd. Upplifa hvernig aðstæður fólks eru ólíkar og hvaða áhrif það hefur á það, en um leið upplifa hvað við mannfólkið eigum margt sameiginlegt. Með því að hlusta á þá sem hafa allt annan bakgrunn en maður sjálfur eða hafa valið allt aðra leið í lífinu, færist maður nær því að skilja heiminn betur og þær ákvarðanir sem fólk tekur. Maður þarf ekki að fara út í hinn stóra heim til þess að upplifa menningarmun og fólk sem skilur ekki hvort annað. Við lesum viðtöl við fólk alla daga sem segist ekki geta hugsað sér að búa við aðrar aðstæður en það gerir í dag. Þeir sem búa í miðbæ Reykjavíkur elska malbikið, kaffihúsin og að geta labbað allt. Þeir sem búa í fámennum firði elska kyrrðina, friðinn og náttúruna. Hvorugir segjast geta hugsað sér hitt. Ég get hugsað mér bæði. Mér líður mjög vel þar sem ég bý núna og sé ekki fyrir mér að flytja en ég gæti alveg hugsað mér að prófa að búa annars staðar í heiminum. Kynnast nýrri menningu, nýjum siðum, nýju tungumáli. Maður getur alltaf snúið aftur heim, við Íslendingar búum við þau gæði. Þegar maður svo kemur aftur heim, kemur maður með eitthvað nýtt í bakpokanum. Nýja þekkingu og reynslu sem kemur heimastaðnum til góða. Á sama hátt færa þeir sem flytja til nýrra landa þessum löndum eitthvað nýtt. Maður getur alltaf lært eitthvað gott af öðrum. Ég dett stundum í að dæma aðra vegna þess að þeir velja aðrar leiðir en ég. Leiðir sem eru mjög fjarri mér. En ég er að reyna að hætta að dæma og reyna þess í stað að skilja fólk, átta mig á því hvað drífur það áfram, hvaða veldur því að það gerir það sem það gerir. Ég geri sjálfur hluti sem sumt fólk á örugglega erfitt með að skilja. Auðvitað eru sumar leiðir rangar og vondar. Allar leiðir sem ganga út á mannvonsku og óheiðarleika falla þar undir og eru ekki túlkunaratriði. En oftar snúast ólíkar leiðir ekki um rétt eða rangt, heldur eru bara mismunandi aðferðir að sama markmiði. Sama gildir um það sem sagt er, fólk fer ólíkt að því að segja sömu hlutina. „Farið nú varlega“ og „Njótið ferðarinnar“ þýðir til dæmis það sama í minni fjölskyldu. Að maður eigi að hafa gaman af ferðinni án þess að vera með neinn glannaskap. Konan mín notar oftast fyrri setninguna, ég hina. Við meinum það sama. Því betri sem maður er í því að hlusta á aðra, því meira lærir maður um bakgrunn þeirra og ástæður skoðana þeirra og gjörða. Það eykur samskiptahæfni manns sem nýtist á öllum sviðum lífsins, ekki síst þegar kemur að því að ala upp heilbrigð og víðsýn börn.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE