Tíst eftir Branddísi Ásrúnu
1) Kötturinn minn er alltaf að kúka á gólfið en kúkurinn er stór og kötturinn lítill
Kannski eru þetta meðleigjendurnir að djóka í mér
2) Bjó til plan þar sem borðaraðirnar á háskólabókasafninu skiptast á að gefa axlanudd. Gengur ansi illa að ná fram almennri sátt með fyrirkomulagið.
3) Einföld lausn á þessu máli. Við bjöllum bara til Danmerkur og segjum að reynslutími okkar sem sjálfstæð þjóð sé búinn.
4) Sá stelpu í Crossfit nota sandpappír á handsiggið sitt. Spurði hana hvort það væri ekki soldið gróft ahahah
5) Á þessu ári ætla ég að verða svo ógeðslega mössuð að hendurnar hætta að samræmast líkamanum og lærin verða jafn breið og þau eru löng.