×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Viernes Negro ¡Hasta 50% de descuento!
image

Íslensk málvísindi. Eiríkur Rögnvaldsson - fyrirlestrar, Atkvæði, atkvæðagerð og atkvæðaskipting. Ítónun og tónfall. (2)

Atkvæði, atkvæðagerð og atkvæðaskipting. Ítónun og tónfall. (2)

grunntíðnina með því forriti.

Og

þarna er fyrst bara hlutlaus staðhæfing. „Ég er að fara.“

„Ég er að fara.“

„Ég er að fara.“ Þá er,

sjáum við að

tónninn hækkar, grunntíðnin hækkar hérna í,

á a-inu, fyrra a-inu í „fara“.

En síðan kemur spurningin: „Ertu að fara?“

„Ertu að fara?“

Þá er hækkunin, kemur meiri hækkun hérna, miklu meiri hækkun,

þetta er þessi spurnartónn.

Og

það er hægt að láta tóninn einan um að, að sýna að um spurningu er að ræða. Sem sagt

nota sömu, sama orð eða sömu orð sem fullyrðingu og spurningu

án þess að breyta orðaröð eða, eða slíkt,

bara með tónfallinu.

Ef við segjum annars vegar

„farinn“,

sem sagt sem bara staðhæfingu, bara lýsa staðreyndum, bara í merkingunni „Ég er farinn.“ „Farinn.“ „Farinn.“

Og svo getum við

spurt, eða látið í ljós undrun yfir þessu:

„Farinn?“ „Farinn?“

Þá

gerum við, getum við gert það með stórhækkuðum tón þarna. Þið sjáið hvað tónninn fer hér hátt

í, í þessari, þessari spurningu.

Og þar með látum við lokið umfjöllun

um atkvæði og

ítónun í íslensku.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE