×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

image

Íslenska- B1,B2 - Ylhýra, Þúfa

Þúfa

Með vetrinum kemur frostið. Vatnið í jörðinni frýs og þar sem að frosið vatn tekur upp meira pláss en

fljótandi vatn lyftist jarðvegurinn upp. Jarðvegurinn lyftist ekki jafnhátt upp alls staðar svo að hann verður ójafn. Þegar það hlýnar verður ísinn svo aftur að vatni, en áður en jarðvegurinn nær að síga fyllast holurnar sem ísinn skildi eftir sig af sandi.

Þetta endurtekur sig aftur og aftur í hvert skipti sem það frystir svo að smám saman myndast pínkulitlir hólar. Þessir litlu hólar kallast þúfur. Þúfur eru út um allt á Íslandi. Maður verður að fara varlega þegar maður labbar á þúfum vegna þess að það er auðvelt að misstíga sig.

Við höfnina í Reykjavík er listaverk sem lítur út eins og risastór þúfa. Listaverkið er eftir Ólöfu Nordal. Það er gaman að sjá tilvísun í náttúruna þarna í miðri borginni við hliðina á stórum fiskvinnslum og tónlistarhúsum úr gleri. Listaverkið minnir mann líka svolítið á það hvernig það var að vera krakki og reyna að hlaupa á þúfunum úti í móa án þess að detta.

Uppi á þúfunni í Reykjavík er lítill skúr þar sem fiskur er þurrkaður eins og í gamla daga. Þegar maður labbar upp á þúfuna sér maður þá bæði gömlu aðferðina við að þurrka fisk og líka risastóru nútímafiskvinnslurnar í kring.

(mynd með greininni er „Þúfa“ eftir Ólöfu Nordal við höfnina í Reykjavík)

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE