×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

image

Íslenska- B1,B2 - Ylhýra, Lúpína

Lúpína

Það eru næstum því engir skógar á Íslandi. Það voru einhverjir skógar á Íslandi fyrir landnám, en vegna áhrifa frá mönnum og kindum er nú lítið eftir nema gras og sandur.

Margir hafa reynt að koma aftur upp skógum, en það er erfitt þar sem jarðvegurinn er svo slæmur.

Í kringum miðja síðustu öld fékk einhver þá hugmynd að flytja inn plöntu sem hann hafði séð í Alaska. Þessi planta hét lúpína. Lúpína vex hratt og bindur nitur í jarðveginn. Þegar jarðvegur inniheldur nitur geta aðrar plöntur þá vaxið á svæðum þar sem áður var ekkert nema sandur.

Lúpínan varð ekki mjög útbreidd fyrr en í kringum árið nítján hundruð og níutíu þegar fólk byrjaði að safna fræjum og dreifa þeim meðfram vegum og á sanda. Einhverjir köstuðu líka lúpínufræjum út úr flugvélum. Margir voru mjög bjartsýnir á að lúpínan myndi bjarga gróðri á Íslandi.

Núna er lúpínan út um allt. Núll komma þrjú prósent landsins er ekkert nema lúpína, hún heldur áfram að dreifa úr sér og það er lítið hægt að gera til að stöðva hana. Hún vex svo hratt á vorin að hún skyggir á aðrar plöntur og þær hverfa.

Margir eru skiljanlega ósáttir við lúpínuna, en öðrum finnst hún svo falleg að þeim er alveg sama þó að hún taki yfir.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE