×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Rebaja de Año Nuevo ¡Hasta 50% de descuento!
Regístrate Gratis
image

Um íslenska tungumálið, með Rökkva, Tíminn og tíðir á íslensku

Tíminn og tíðir á íslensku

Að tala um hvenær hlutir gerast á íslensku, hvenær þeir gerðust eða munu gerast.

Þessi saga sýnir hvernig á að nota tíðir á íslensku.

Núna er árið 2021 og Tryggvi er fjörutíu og eins árs gamall.

Árið 1980 fæddist Tryggvi. Þá var Tryggvi fimmtíu sentimetrar og fjögur kílógrömm. Hann grét mikið þegar hann fæddist.

Árið 1983 byrjaði Tryggvi á leikskóla. Hann lék sér mikið á leikskólanum og var glaður. Þar voru átta kennarar og þrjátíu börn.

Árið 1986 var Tryggvi orðinn sex ára. Þá hafði hann verið þrjú ár á leikskólanum. Hann hafði leikið sér mikið á leikskólanum og verið glaður. Þar höfðu verið átta kennarar og þrjátíu börn. En núna hætti Tryggvi í leikskólanum og byrjaði í grunnskóla. Hann átti eftir að vera tíu ár í grunnskólanum.

Árið 1990 hafði Tryggvi verið fjögur ár í grunnskóla. Hann hafði lært að lesa. Hann var búinn að læra margt í grunnskólanum. Hann átti eftir að vera í grunnskólanum í sex ár í viðbót. Hann átti eftir að læra margt fleira á þeim tíma. Hann myndi eiga eftir að læra algebru til dæmis.

Árið 1996 byrjaði Tryggvi í menntaskóla. Hann hafði þá verið tíu ár í grunnskóla. Það er líka hægt að segja „hann var búinn að vera tíu ár í grunnskóla“ því það þýðir það sama. Hann myndi vera fjögur ár í menntaskóla. Það er líka hægt að segja „hann átti eftir að vera fjögur ár í menntaskóla“ því það þýðir það sama.

Árið 1998 eignaðist Tryggvi kærustu sem hét Saga. Það var þegar að hann var búinn að vera tvö ár í menntaskóla og átti eftir að vera tvö ár í menntaskóla í viðbót. Saga var búin að vera eitt ár í menntaskóla og átti eftir að vera 3 ár í viðbót, því hún var einu ári yngri en Tryggvi.

Árið 2004 byrjaði Tryggvi að vinna hjá fyrirtæki sem heitir Framsækni hf.

Núna er árið 2021 og Tryggvi hefur samanlagt verið í skóla í átján ár og unnið í sautján. En ég skal segja ykkur hvað gerist hjá Tryggva í framtíðinni. Hann verður áfram að vinna hjá Framsækni hf. þangað til árið 2024. Árið 2023 mun hann vera búinn að vinna hjá Framsækni hf. í 4 ár. Það er líka hægt að segja „árið 2023 verður hann búinn að vinna hjá Framsækni hf. í 4 ár“ eða „árið 2023 mun hann hafa unnið hjá Framsækni hf. í 4 ár“.

Árið 2047 verður Tryggvi orðinn nógu gamall til að hætta að vinna og fara á eftirlaun. Það er líka hægt að segja „árið 2047 mun Tryggvi verða orðinn nógu gamall til að hætta að vinna og fara á eftirlaun“.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE