×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

image

Um íslenska tungumálið, með Rökkva, Svo, síðan og þannig

Svo, síðan og þannig

Svo, síðan, þannig að, þó að, af því að, vegna þess að, samt, engu að síður

Ef maður þarf fyrst að gera eitthvað og næst að gera eitthvað annað, þá er hægt að orða það svona:

Fyrst þarf ég að kaupa mat, svo þarf ég að elda matinn.

Fyrst þarf ég að kaupa mat, síðan þarf ég að elda matinn.

Fyrst þarf ég að kaupa mat, síðan þarf ég að elda matinn.

Ef eitthvað sem gerist er ástæðan fyrir einhverju öðru, það er að segja ef eitthvað orsakar eitthvað annað, er hægt að orða það svona:

Það var mjög kalt úti, svo ég þurfti að klæða mig vel.

Það var mjög kalt úti, þannig að ég þurfti að klæða mig vel.

Ég þurfti að klæða mig vel, því það var mjög kalt úti.

Ég þurfti að klæða mig vel, af því það var mjög kalt úti.

Ég þurfti að klæða mig vel, vegna þess að það var mjög kalt úti.

Ef eitthvað gerist, sem er óvænt eða skrítið, þá getur maður orðað það svona:

Mér var kalt, þótt ég væri vel klæddur.

Ég var vel klæddur, samt var mér kalt.

Ég var vel klæddur, engu að síður var mér kalt.

Ég var vel klæddur, en þrátt fyrir það var mér kalt.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE