×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

LingQ Mini Stories, 40 - Sjöfn á stóra fjölskyldu – Text to read

LingQ Mini Stories, 40 - Sjöfn á stóra fjölskyldu

Principiante 2 de islandés lesson to practice reading

Comienza a aprender esta lección ya

Sjöfn á fjölmenna fjölskyldu.

Hún á bróður, systur og mörg frændsystkini.

Bróðir Sjafnar er eldri en hún.

Hann er líka háværari og fyndnari en Sjöfn.

Systir Sjafnar er yngri en hún.

Systir Sjafnar er lægri og opnari.

Systur Sjafnar þykir skemmtilegra að tala við fólk en Sjöfn.

Þó Sjöfn eigi mörg eldri frændsystkini,

þekkir hún þau ekki mjög vel.

Þau eiga heima lengra í burtu en bróðir hennar og systir.

Nú segir Sjöfn söguna

Ég á fjölmenna fjölskyldu.

Ég á bróður, systur og mörg frændsystkini.

Bróðir minn er eldri en ég.

Hann er háværari og fyndnari en ég.

Systir mín er yngri en ég.

Systir mín er lægri og opnari en ég.

Systur minni þykir skemmtilegra að tala við fólk en mér.

Þótt ég eigi mörg eldri frændsystkini,

þekki ég þau ekki mjög vel.

Þau eiga heima lengra í burtu en bróðir minn og systir mín.

Nú mun ég spyrja nokkurra spurninga.

Þú getur svarað, eða bara hlustað ef þú vilt það frekar.

Spurningar:

1) Sjöfn á fjölmenna fjölskyldu.

Á Sjöfn fjölmenna fjölskyldu?

Já, Sjöfn á fjölmenna fjölskyldu.

2) Sjöfn á einn bróður.

Hve marga bræður á Sjöfn?

Hún á einn bróður.

3) Bróðir Sjafnar er eldri en hún.

Hvort er eldra, Sjöfn eða bróðir hennar?

Bróðir Sjafnar er eldri en hún.

4) Bróðir Sjafnar er háværari en hún.

Hvor þeirra er háværari, Sjöfn eða bróðir hennar?

Bróðir Sjafnar er háværari en hún.

5) Systir Sjafnar er yngri en hún.

Hvor er yngri, Sjöfn eða systir hennar?

Systir Sjafnar er yngri en hún.

6) Systir Sjafnar er opnari en Sjöfn, henni þykir því skemmtilegra að tala við fólk en henni Sjöfn.

Hvorri persónunni þykir skemmtilegra að tala við fólk, Sjöfn eða systur hennar?

Systir Sjafnar er opnari en Sjöfn, henni þykir því skemmtilegra að tala við fólk en henni Sjöfn.

7) Sjöfn á mörg eldri frændsystkini.

Á Sjöfn fá frændsystkini?

Nei, Sjöfn á mörg eldri frændsystkini.

8) Bróðir Sjafnar og systir eiga heima nær en frændsystkini hennar.

Hver á heima nær, frændsystkini Sjafnar eða bróðir hennar og systir?

Bróðir og systir Sjafnar eiga heima nær en frændsystkini hennar.

Og þetta var sagan hennar Sjafnar.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE