Karen leiðist í vinnunni og heima hjá sér.
Hún gerir það sama á hverjum degi.
Hún vill finna sér nýtt áhugamál.
Fyrst prófar hún að elda.
En maturinn hennar er ekki góður á bragðið.
Svo prófar hún að synda.
En hún er hrædd við vatn.
Karen gengur heim og sér gæludýrabúð.
Í gæludýrabúðinni sér hún kött!
Karen kaupir köttinn og er nú mjög glöð.
(Karen segir söguna)
Mér leiðist í vinnunni og heima hjá mér.
Ég geri það sama á hverjum degi.
Ég vil finna mér nýtt áhugamál.
Fyrst prófa ég að elda.
En maturinn minn er ekki góður á bragðið.
Svo reyni ég að synda.
En ég er hrædd við vatn.
Ég geng heim og sé gæludýrabúð.
Í gæludýrabúðinni sé ég kött!
Ég kaupi köttinn og nú er ég mjög glöð.
Spurningar:
1) Karen leiðist í vinnunni og heima hjá sér.
Er Karen ánægð í vinnunni?
Nei, Karen er ekki ánægð í vinnunni.
Henni leiðist í vinnunni og heima hjá sér.
2) Karen gerir það sama á hverjum degi.
Gerir Karen marga ólíka hluti?
Nei, Karen gerir það sama á hverjum degi.
3) Karen langar að finna sér nýtt áhugamál.
Vill Karen finna sér nýtt áhugamál?
Já, Karen vill finna sér nýtt áhugamál.
4) Maturinn hennar Karenar er ekki góður á bragðið.
Er Karen góður kokkur?
Nei, Karen er ekki góður kokkur.
Maturinn hennar er ekki góður á bragðið.
5) Karen er hrædd við vatn.
Finnst Karen gaman að synda?
Nei, Karenu finnst ekki gaman að synda.
Hún er hrædd við vatn.
6) Karen sér kött í gæludýrabúð.
Sér Karen kött í búð?
Já Karen sér kött í gæludýrabúð.
7) Kaupir Karen köttinn?
Já, Karen kaupir köttinn í gæludýrabúðinni.
8) Nú er Karen mjög glöð því hún á kött.
Leiðist Karen núna?
Nei Karen leiðist ekki.
Núna er hún mjög glöð því hún á kött.