Það er morgunn og Áslaug er að klæða sig.
Hún veit ekki í hverju hún á að vera.
Hún skoðar í skápnum.
Hún sér brúnt pils.
En það er mjög kalt í dag!
Hún sér svartar buxur.
En þær eru mjög gamlar.
Og það er fundur hjá henni í vinnunni í dag.
Áslaug fer í brúna pilsið.
Hún lítur vel út, en hún er köld á fótunum.
(Áslaug segir söguna)
Það er morgunn og ég er að klæða mig.
Ég veit ekki í hverju ég á að vera.
Ég skoða í skápnum mínum.
Ég sé brúnt pils.
En það er mjög kalt í dag!
Ég sé svartar buxur.
En þær eru mjög gamlar.
Og það er fundur hjá mér í vinnunni í dag.
Ég fer í brúna pilsið.
Ég lít vel út, en mér er kalt á fótunum.
Spurningar:
1) Það er morgunn og Áslaug er að klæða sig.
Er nótt núna meðan Áslaug er að klæða sig?
Nei það er ekki nótt núna meðan hún er að klæða sig.
Það er morgunn meðan hún er að klæða sig.
2) Áslaug veit ekki í hverju hún á að vera.
Veit Áslaug í hverju hún á að vera?
Nei, hún veit ekki í hverju hún á að vera.
3) Áslaug skoðar í skápnum eftir einhverju til að vera í. Skoðar Áslaug í skápnum?
Já, Áslaug skoðar í skápnum eftir einhverju til að vera í.
4) Það er brún skyrta í skápnum.
Er brún skyrta í skápnum?
Já, það er brún skyrta í skápnum.
5) Það er mjög kalt í dag.
Er heitt í dag?
Nei, það er ekki heitt í dag.
Það er mjög kalt.
6) Áslaug sér svartar buxur.
Sér Áslaug svartar buxur?
Já, Áslaug sér svartar buxur.
7) Buxurnar eru gamlar.
Eru buxurnar nýjar?
Nei, buxurnar eru ekki nýjar.
Þær eru gamlar.
8) Það er fundur hjá Áslaugu í vinnunni í dag.
Er fundur hjá Áslaugu í vinnunni í dag?
Já, það er fundur hjá Áslaugu í vinnunni hennar í dag.
9) Áslaug fer í brúnu skyrtuna.
Fer Áslaug í buxurnar?
Nei, Áslaug fer ekki í buxurnar.
Hún fer í brúnu skyrtuna.
10) Áslaugu er kalt á fótunum.
Er Áslaugu hlýtt í pilsinu?
Nei, henni er ekki hlýtt.
Henni er kalt á fótunum.