Íbúðin hans Brands er of lítil.
Hann vill flytja í nýja íbúð.
Hann skoðar myndir af íbúðum á internetinu.
Ein íbúðin er mjög ódýr.
En hún er gömul og tóm.
Önnur íbúð er með húsgögnum.
Hún er með rúmi, sjónvarpi og eldavél.
Sú íbúð er samt dýr.
Brandur ákveður að spara meiri pening.
Svo getur hann flutt á næsta ári.
(Brandur segir söguna)
Íbúðin mín er of lítil.
Ég vil flytja í nýja íbúð.
Ég skoða myndir af íbúðum á internetinu.
Ein íbúðin er mjög ódýr.
En hún er gömul og tóm.
Önnur íbúð er með húsgögnum.
Hún er með rúmi, sjónvarpi og eldavél.
Sú íbúð er samt dýr.
Ég ákveð að spara meiri pening.
Svo get ég flutt á næsta ári.
Spurningar:
1) Íbúðin hans Brands er of lítil.
Er íbúðin hans Brands stór?
Nei, íbúðin hans er ekki stór.
Hún er of lítil.
2) Brandur vill flytja í nýja íbúð.
Vill Brandur flytja?
Já, Brandur vill flytja í nýja íbúð.
3) Brandur skoðar myndir af íbúðum á internetinu.
Skoðar Brandur myndir á internetinu?
Já, Brandur skoðar myndir á internetinu.
4) Fyrsta íbúðin er ódýr.
Er fyrsta íbúðin dýr?
Nei, fyrsta íbúðin er ekki dýr.
Hún er ódýr.
5) Fyrsta íbúðin er gömul og tóm.
Er fyrsta íbúðin gömul?
Já, fyrsta íbúðin er gömul og tóm.
6) Hin íbúðin er með rúmi, sjónvarpi og eldavél.
Er hin íbúðin með húsgögnum?
Já, hin íbúðin er með rúmi, sjónvarpi og eldavél.
7) Hin íbúðin er dýr.
Er hin íbúðin ódýr?
Nei, hin íbúðin er ekki ódýr, hún er dýr.
8) Brandur ákveður að spara meiri pening.
Vill Brandur spara pening?
Já, Brandur vill spara meiri pening.