SKAMMDEGIÐ OG ÉG
Ég flutti frá Ítalíu til Íslands fyrir fjórum árum og það sem mér finnst erfiðast við að búa hérna er skammdegið og veðrið. Það er erfitt að vakna á morgnana. Ótrúlega dimmt og kalt úti - og svo þarf að standa úti í kuldanum og skafa snjóinn af bílnum. Maður verður eiginlega hálfþunglyndur og geðvondur. En þetta venst nú smám saman. Maður verður nú að reyna að hugsa jákvætt og það þýðir ekkert að gefast upp. Ég er byrjaður í kór, hreyfi mig daglega og fer í sund og er bara yfirleitt hress.