×

Usamos cookies para ayudar a mejorar LingQ. Al visitar este sitio, aceptas nuestras politicas de cookie.

Regístrate Gratis
image

Icelandic Online Level 2, ÞJÓÐSAGAN UM SÆMUND FRÓÐA - ENDURSÖGN

ÞJÓÐSAGAN UM SÆMUND FRÓÐA - ENDURSÖGN

Áður en Háskóli Íslands var stofnaður á síðustu öld fóru Íslendingar til útlanda til að mennta sig.

Fyrir framan Háskóla Íslands er höggmynd eftir Ásmund Sveinsson. Efni hennar er sótt í þjóðsögu.

Í þjóðsögunni er sagt frá skóla úti í heimi til forna sem hét Svartiskóli (sumir segja að það sé Sorbonne-háskóli í París). Þar lærðu menn galdra og kölski sjálfur var skólameistari. Þrír Íslendingar, sem hétu Kálfur, Hálfdan og Sæmundur, voru þar við nám. Þegar þeir höfðu lokið námi var prestakallið Oddi á Rangárvöllum laust og vildu þeir allir verða prestar þar. Kóngurinn sagði að sá sem yrði fljótastur til Íslands yrði prestur í Odda.

Sæmundur kallaði þá á kölska og sagði: „Syntu nú með mig til Íslands og ef þú kemur mér þar á land án þess að ég blotni máttu eiga mig.“ Kölski samþykkti þetta, breytti sér í sel og fór með Sæmund á bakinu til Íslands. Á leiðinni las Sæmundur í sálmabók.

Þegar þeir komu að landi á Íslandi sló Sæmundur sálmabókinni í hausinn á selnum svo hann sökk. Sæmundur fór í kaf og synti til lands. Þannig losnaði hann við kölska og fékk prestakallið.“

Sæmundur fróði Sigfússon (1056–1133) var prestur í Odda á Rangárvöllum. Ein af byggingunum á háskólasvæðinu heitir Oddi.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE