Tóta og þau
Tóta og þau.
Eftir Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur.
Tóta, Óli og Siggjonni.
Spellvirki í skjóli nætur.
Tóta og þau eru hér með hamar, sög og saum. Hvað stendur til? Að smíða kofa. Það sem til þarf er áhugi, spýtur og verkfæri.
Því hér er nóg pláss. Best er líklega að byrja á hornspýtunum. Svo má negla veggina utan á þær.
Kofinn er ekki fullbúinn þegar mamma kallar í Tótu og þau. Mamma kallar út um gluggann.
-Það er kominn kvöldmatur.
Þau gegna strax og fara inn. Mamma gefur Tótu, Óla og Siggjonna mottu sem þau geta notað í kofann sem þau eru að smíða.
Það sem þau ekki sjá er að strákar eru úti, þegar góðu börnin eru komin inn. Þeir eru nálægt kofanum sem Tóta og þau eru með í smíðum. Þeim dettur í hug að gera eitthvað ljótt. Þeir safna saman spýtum og pappír -- setja það inn í kofann. Þeir eru með eldspýtur. Þeir kveikja í. Bæta svo á eldinn.
Tóta og þau eru inni að leika sér. Þau heyra allt í einu í slökkviliðsbílnum og fara út í glugga. Þau sjá að kveikt hefur verið í kofanum þeirra. Þau sjá einnig að tveir strákar hlaupa brott. Krakkar koma hlaupandi til að sjá hvað um er að vera -- og fólk kemur út í glugga. Tóta og þau eru mjög æst, svolítið reið.
-Það er búið að kveikja í kofanum sem við erum að smíða.
Slökkviliðsmennirnir eru að slökkva eldinn.
Slökkviliðsmennirnir segja:
„Það þyrfti að tala við þessa óvita sem gera sér leik að kveikja í.“
„Þeir gera sér ekki grein fyrir hvað þetta er hættulegt.“
„Skilja ekki að þetta getur valdið tjóni á verðmætum ef eldurinn breiðist út.“
Pabbi segir: „Æ, þið skuluð nú ekki vera svona æst. Þetta var nú aðeins spýtnadrasl.“
Tóta og þau verða enn æstari og reiðari. „Spýtnadrasl?“
„Þetta var hús!“
Mamma segir: „Við skulum nú ekki taka þessu svona illa. Hugsið ykkur ef húsið sem við búum í væri að brenna.“
„Við verðum að læra að taka smá andstreymi.“ Siggjonni spyr: „Hvað er andstreymi?“ Mamma svarar: „Það er smá mótlæti.“ „Bara góð æfing fyrir lífið að gera ekki of mikið úr áföllum.“ Nú sljákkar heldur í Tótu, Óla og Siggjonna.
Pabbi segir: „Nóg til af spýtnabraki. Hægt að hefjast handa á ný í fyrramálið.“
Mamma segir: „Er ekki best að fara að drífa sig í háttinn?“
Pabbi bætir við: „Til þess að hafa nóga krafta á morgun.“
Þórunn, Ólafur og Sigurjón.
Ósvinnur (það er að segja óvitur) maður,
vakir um allar nætur
og hyggur at hvívetna (hugsar um allt);
þá er móður (þreyttur),
er að morgni kemur,
allt er víl sem var.
(andvökunæturnar hafa ekki bætt ástandið, áhyggjur gera ekkert gagn.)
Úr Hávamálum, 23. vísu.
Áhyggjurnar þrífast ekki nema þú hugsir vel um þær, ræktir þær af kostgæfni, vökvir þær, talir við þær. Annars kemur kyrkingur í áhyggjurnar. Þær veslast upp og deyja. Og þyrnarnir á þeim verða ekki að almennilegum broddum nema þú hugsir vel um þær, kvölds og morgna, finnir nærveru þeirra á daginn, vaknir upp á nóttinni og gefur þeim brjóst.
(Úr leikritinu „Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti“, verðlaunaleikrit eftir Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur. Einnig í Óðsmálum.