Hvar voru hrossin í hríðinni?
Það er óveðursnótt um hávetur, hríðin gnauðar á glugganum heima í Kvos. Hve lengi getur eiginlega svona óveður staðið? Gummi bróðir minn, sem er ári yngri en ég, sefur vært. Hann gerist nokkuð frekur á sængina, því kalt er í bænum í svona roki.
En það er ekki þess vegna sem ég get ekki sofið. Ég er að hugsa um hestana okkar fram á dal. Hvernig hefur þeim eiginlega reitt af í þessu aftakaveðri? Og ég vildi að veðrið færi að ganga niður.
Ég verð að reyna að sofna. Ég veit að ekkert er hægt að gera fyrr en birtir af degi og veðrinu slotar.
Ég verð að sofna til að geta verið dugleg í fyrramálið. Ég er að hugsa um trippið mitt sem amma gaf mér því ég var svo dugleg að verða læs. Einhvern tímann verður það reiðhesturinn minn. Ég ætla að nefna hann Snerri af því hann er svo snar og óstýrilátur.
Snerrir, hann á að heita Snerrir. Bræður mínir segja það gefi ekkert af sér að eiga hest, þeir vilja frekar eiga kindur, en mér er alveg sama. Ég á líka að fá kálf undan Skjöldu. Ég get alveg mjólkað Skjöldu gömlu alein.
Pabbi er farinn út þegar ég svo vakna aftur. Sigga litla sefur en hún sefur á milli mömmu og pabba í stóra rúminu. Alltaf sefur hún best í roki, hún Sigga. Fjárhúsin hefur nær fennt í kaf í nótt.
Aðeins er á stórgrýti og klappir þar sem ekki festir snjór. Svo stóran skafl hefur dregið fyrir hlöðugaflinn að hægt væri að ganga upp á þakið og renna sér svo ofan, beint á kaf í skaflinn. Amma og Þórður bróðir sofa uppi á lofti.
Mamma er búin að vekja Þórð. Hann þarf að hjálpa pabba við gegningarnar. Þórður bróðir er 13 ára. Hann sefur einn í rúmi.
Amma gaf honum rúmið sem Þórður afi átti þegar hann var lifandi. Mamma kemur með graut og slátur. Við ræðum um hrossin. Sigga litla er hálfgröm yfir að fá ekki að fara með en pabbi segir henni að einhver verði að hjálpa mömmu og ömmu heima og svo geti hún leikið sér í snjónum.
Þegar fýlusvipurinn minnkar lítið við þetta spyr pabbi hvort hún geti svo hjálpað sér að gefa hestunum heyið sitt ef við finnum þá.
Það er að vísu ekki löng leið fram á dal en seingengið í snjónum upp gilið frá bænum. Vetrardagurinn er stuttur. Við vitum að hætta er á að hestana hafi hrakið í fljótið í nótt. Að vísu er ekki mikið í því á veturna miðað við flauminn þegar það ryður sig á vorin.
En ísilagðir bakkar, þaktir snjó, geta villt um, sérstaklega í myrkri þegar stórhríð geisar ofan flatirnar. Við ætlum að ganga upp á Lynghól. Ef til vill sést til hrossanna þaðan.
Óvissan um hvort við munum koma auga á hestana fyrir myrkur og beygurinn um að eitthvað hafi komið fyrir þá í óveðrinu drepur alla löngun til samræðna. Allt bendir til þess að rokið hafi verið mikið þarna á melnum. Allir steinar hafa langa hvíta skuplu sem snýr undan norðaustri, dúnmjúkar snjóskuplur sem allar benda niður að fljóti.
Á sumrin er Snati alltaf fyrstur að finna hestana en nú er allt hulið snjó, hvergi slóð að finna. Sólin gægist sem snöggvast yfir skýjabakkann og minnir okkur á að ekki dugar að slóra. Senn mun húma á ný.
Nú hallar undan fæti. Það er eins og Lynghóll hafi allur stækkað síðan í haust þegar við vorum hér á berjamó. Engu er líkara en að allan snjóinn hafi dregið í skafl í berjalautinni okkar. Við erum orðin kófsveitt af að bægslast í gegnum skaflana.
Allt er svo undurfagurt og hljótt. Engu líkara en að allt sé þreytt eftir óveðrið. Allt nema skýin. Þau eru enn óútreiknanleg og ólgandi.
Þau hafa greinilega ekki fengið nóg af óveðri. Gýgjarhamrar virðast dekkri nú en nokkru sinni er þá ber við hvíta mjöllina. Þeir virðast stara ofan í Gýgjargjá, stara, stara á eitthvað sem liggur niður í Gýgjargjá.
Ef við vitum að leiti hross hlés upp við Gýgjarhamra er mikil hætta á að þeir fjúki fyrir björg svo hvasst getur orðið þar. Ekkert líf er að sjá utan einn soltinn hrafn sem svífur í stórum sveig ofan frá hömrum og horfir fránum augum yfir snjó og kletta. Ef þú gætir nú, krummi, sagt okkur hvar hestarnir eru. Hrafninn hverfur niður í Gýgjargjá án þess að segja svo mikið sem krunk.
Allt í einu stekkur Snati af stað á undan okkur. Hvað skyldi hann sjá? Við vonum öll að hestarnir séu nú þarna á flötunum fyrir neðan.
Of metnaðargjörn erum við til að snúa heim án þess að hafa fundið hrossin. Það vitum við. Þá þyrfti pabbi að fara að sjálfur að leita þeirra. Nei, það er af og frá að gefast upp.
Við munum láta líta svo út sem ekkert sé sjálfsagðara en að fela okkur slíkt verkefni. Snati hefur greinilega orðið einhvers vís. Skyldi nokkuð hafa komið fyrir þá? Ó, vonandi hefur trippið mitt ekki hrakið sig í fljótið.
Ég veit að einu sinni þurfti að lóga folaldi sem vöknaði illa í stórhríð og kól svo ekki var hægt að bjarga því. Ég reyndi að hrinda þeirri hugsun frá mér.
Þeirri sælutilfinningu sem grípur okkur þegar við horfum fram á flatir verður ekki með orðum lýst. Þarna eru þau þó öll heil á húfi og trippið mitt stygga, stendur þarna og krafsar. Jarpur gamli er lengst frá fljótinu, hann veit að ekki er að treysta snæviþöktum bökkum þess í klakaböndum. Fljótið virðist þó svo meinleysislegt og lítið núna eins og mjó, dökkur rák í snjónum og sendi frá sér bældar stunur. Okkur veitist ekki örðugt að komast niður eftir þó þarna sé sýnu snjóþyngra og skaflarnir samfelldari en áður.
Ég á að ríða Jarpi á undan, strákarnir ætla að reka hina hestana og jafnvel tvímenna á Brúnku þegar við komumst upp af flötunum. En þetta ætlar ekki að reynast svona auðvelt. Brúnka er svo dofin af kulda og kyrrstöðu að hún á erfitt með að hreyfa sig. En þótt hún sé lerkuð veit hún greinilega hvert ferðinni er heitið.
Öll eru hrossin illa haldin og svöng. Yngri hestarnir tveir eru heldur ekkert á því að láta reka sig upp á móti kulinu. Trippið mitt ætlar að taka á rás í öfuga átt. Já, hann á að heita Snerrir.
Það er einmitt nafnið á hann. Hvernig skyldi svo ganga að koma honum í hús þegar heim kemur? Snati geltir, strákarnir hóa og klappa.
Ég reyni að koma Jarpi af stað heimleiðis. Jarpi minn, þú hefur oft sigrað þyngri þraut en þessa skafla. Þú veist að heima bíða þín heyin grænu þegar jarðbann er. Hægt miðar okkur áfram.
Mér finnst Gýgjarhamrar ekki jafn ógnvekjandi núna á bakaleiðinni. Nú veit ég að skessan í hamrinum hefur ekki tekið trippið mitt í nótt. Það er bjart af tungli og farið að frysta. Það marrar í snjónum og glitrar á steina sem feykt hefur af.
Ég finn ekki lengur fyrir tánum vegna kulda og reyni þó að hreyfa þær við og við.
Ég spyr Þór hvort hann vilji ekki skipta við mig nokkra stund. Hann svarar nokkuð mannalega. Það sé nú svo stutt eftir, taki því ekki. Hann vill áreiðanlega ekki láta annað spyrjast en að hann hafi gert erfiðasta hluta verksins.
Hann er rjóður og másandi og andardrátturinn breytist í gufustrók sem stendur út frá andlitinu á honum. Pabbi og Sigga litla eru úti við lambhús. Þau eru fljót að koma auga á okkur þegar við komum niður gilið. Ég er viss um að oft hefur verið litið upp í gil í dag frá bænum.
Pabbi er áreiðanlega glaður að sjá að ekkert hefur hent hrossin okkar í nótt. Það rýkur á bænum og ég veit að nú er hlýtt í eldhúsinu. Skildi amma vera að baka lummur? Stoltið yfir að við höfum komið hestunum alla leið heim feykir burt allri þreytu.
Og hvað ég hlakka til þess að fá að fóðra trippið mitt og spekja það og gera það mannvænt í vetur. Systkinin í Kvos gengu snemma til náða þetta kvöldið. Vetrarveðrin héldu ekki vöku fyrir neinum núna.