Hagbarður og Hvutti
Hagbarður og hvutti. Eftir Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur. Hvutti sem gerir allt vitlaust, gerði allt vitlaust.
Hagbarður og hvutti.
Þar standa þeir vinirnir Hagbarður og hvutti. Þegar verið er að smala er Hagbarður alltaf látinn standa fyrir á erfiðasta staðnum þar sem safnið kemur að, því hann á svo góðan hund. Hinir krakkarnir eru stórhrifnir, því að hvutti gegnir Hagbarði sem hugur manns. En hann gegnir engum nema Hagbarði.
Það er alveg sama hvernig aðrir skipa hvutta fyrir. Þeir fá hann aldrei til að hlýða. Hann gerir tóma vitleysu. Suss uss, hérna er dálítið leyndarmál.
Þið megið ekki segja neinum frá því. En Hagbarður hefur alið hvutta upp frá því að hann var lítill hvolpur og það er nú skrítið uppeldi. Hvutti leggur nefnilega þveröfuga merkingu í öll orð sem hann kann í mannamáli.
Allt frá því hvutti var smáhvolpur hefur hann farið með Hagbarði að sækja kýrnar. Dumba gamla var með kálfi, sporlöt og seinræk. Þá hrópaði Hagbarður hástöfum á Dumbu: „Farðu heim, farðu heim, kusa.“ Þá kom hvutti hlaupandi til Hagbarðs og fékk klapp og kjass. Þannig lærði hvutti að koma þegar sagt var „farðu heim“.
Þegar hvutti var enn bara hvolpur var hrafninn oft að stríða honum. Hvutti varð svo reiður að hann fór að elta krumma út um holt og hæðir. Hagbarður hrópaði hástöfum: „Komdu, hvutti, komdu. “ En auðvitað hljóp hvutti alltaf lengra og lengra í hvert sinn þegar krummi krunkaði og Hagbarður hrópaði: „Komdu.“ Svo hvutti hélt bara að „komdu“ þýddi „farðu“.
Hagbarður segir: „Farðu. “ þegar hvutti á að koma og „Komdu.“ þegar hann á að fara. Þetta er nú þeirra leyndarmál.
Ekki er alltaf skemmtilegt að vaka yfir túninu, þó sumarnóttin sé björt og heið. En þegar besti vinurinn er hjá manni er tíminn fljótur að líða. Hagbarður þykist vera að fara í göngur og eiga svo og svo margar kindur á fjalli. Stundum er hann fjallkóngur eða hreppstjóri. Mænirinn á fjósþakinu er besti gæðingur í sveitinni, ef maður kann að berja fótastokkinn. Hagbarður hrópar hástöfum, þó ekki svo hátt að hann veki fólkið á bænum: „Urrdan bíttann, hvutti minn, urrdan bíttann.“ Þá situr hvutti kyrr á þekjunni hjá Hagbarði og heldur að „urrdan bíttannn“ þýði: „Sestu hér og vertu rólegur.“
-Hvutti er svo bráðgreindur hundur.
En stundum kemur það fyrir að einhver rollan læðist inn fyrir girðinguna og stelst í túnið og þá kemur að Hagbarði að vinna skylduverk sitt og reka úr túninu. Þarna er ein kindin að jarma hátt. „Me-ee-ee.“ Hún er ef til vill að kalla á lambið sitt og segja því hvað forboðna grasið á túninu sé sætt og safaríkt. „Þegiðu, kella mín, “ segir Hagbarður.
En hvutti geltir. „Róleg, góða,“ segir Hagbarður. Og hvutti geltir allt hvað af tekur. Hann þykist skilja að hann eigi að gelta þegar Hagbarður segir „rólegur“ og „þegiðu“.
Næst þegar fé komst í túnið gat Hagbarður setið hinn rólegasti uppi á fjósþakinu. Hann þurfti ekki annað en að segja „rólegar“. Þá hljóp hvutti geltandi niður allt túnið og rak úr. Jæja, nú vitið þið leyndarmálið.
Svo þið ættuð að vera með á nótunum. Og þá er hægt að segja ykkur sögu af honum Hvutta. Hér er nú heimilisfólkið að ríða úr hlaði. Það er á leið á skemmtun í kaupstaðnum.
Hagbarður fær að fara með pabba og mömmu og vinnufólkinu.
Ó, hvað hann hlakkar til. En amma ætlar að vera eftir heima, segist vera orðin ónýt til ferðalaga. Þá segir mamma: „Þú verður að skilja hundinn eftir, Hagbarður minn. Hann hefur ekkert að gera í kaupstaðnum.
Og hann hlýðir engum nema þér.“ Æ, það var nú leiðinlegt. Amma lokaði Hvutta inni í fjósi. Þaðan horfði greyið á eftir vini sínum þar sem hann reið niður traðirnar og úr augsýn, langt burt í fjarlægð.
En nú var Dumba borin. Og bráðlega varð amma að fara út í fjós að gefa kálfinum sullið sitt. Hún gleymdi víst að loka dyrunum á eftir sér og hvutti var ekki seinn á sér að skjótast út. Hvutti náði ferðafólkinu rétt áður en það komst til kaupstaðarins.
„Nei, kemur ekki þarna hvolpkjáninn,“ sagði mamma. „Æ, farðu nú heim, hvutti litli.“ En það veit hvutti vel að þýðir „komdu hingað“ svo hann hleypur til mömmu og dinglar skottinu. Hún gat ekki fengið af sér að láta Hagbarð reka hann heim þó hún vissi að hann myndi gegna honum. Þannig komst hvutti í kaupstaðinn í fyrsta sinn.
Margir voru þegar komnir í kaupstaðinn. En það leit út fyrir að hvutti yrði eini hundurinn á skemmtuninni. „Er þetta ekki hundurinn þinn? “ spyr einhver krakkinn sem þekkir Hagbarð.
Ég hef heyrt að hann sé besti smalahundurinn í dalnum. Hann má alveg koma á krakkaskemmtunina ef hann er rólegur. Auðvitað geltir Hvutti þegar hann heyrir orðið rólegur. Ha?
Er hann svona gáfaður? Svarar þegar maður talar við hann. Megum við hafa hann með í útilegumannaleikritinu sem við ætlum að sýna á eftir í gömlu hlöðunni? Hagbarði leist nú ekki of vel á að Hvutti gæti farið að leika í leikriti.
En smalamennina vantaði hund svo það varð úr. Leikritið var ofsalega hallærislegt en krakkarnir höfðu gaman af að horfa á Hvutta sem beið aðeins eftir orði sem hann skildi. „Komdu, Hvutti, komdu. Við smölum út í Útilegumannadal, “ sagði annar smalamannanna sem þóttist eiga Hvutta. Auðvitað fór Hvutti þá hinn ánægðasti í hina áttina. Hann þóttist nú skilja sæmilega mannamál.
„Jæja, farðu þá, farðu!“ sagði smalinn til að láta líta út fyrir að hundurinn gengdi honum. Þá kom Hvutti skokkandi til hans og dinglaði rófunni. Smalinn þóttist nú vera að eltast við fé og fór að hóa og siga Hvutta: „Urrdan bíttann!“
En þið munið nú kannski hvaða merkingu Hvutti leggur í orðin „Urrdan bíttann“?
Hvutti lagðist auðvitað niður flatur í mestum makindum en krakkarnir í hlöðunni ráku upp skellihlátur. Næst var komið að öðrum þætti leikritsins, Hellir útilegumannanna. En eins og þið vitið eru útilegumenn líka sauðaþjófar.
Smalamaður læðist hljóðlega að þeim þar sem þeir eru að leggja á ráðin um næsta sauðaþjófnað. Smalinn hvíslar: „Rólegur, nú, Hvutti.“ En Hvutti þykist vita hvað „rólegur“ þýðir og tekur til við að gelta svo undur tekur í hlöðunni. Haldið þið að það hafi komið fát á útilegumennina? En krakkarnir hlógu svo allt ætlaði um koll að keyra.
Þetta var skemmtilegur hundur sem gerði allt vitlaust. Einhver reyndi að þagga niður í áhorfendum. „Rólegir krakkar, þegið þið nú.“ En þá espaðist Hvutti um allan helming. Hann skildi orðin „rólegur“ og „þegiðu.“ Þá átti hann að gelta.
Allir voru líka hæstánægðir með það sem hann gerði.
„Það var eins gott að pabbi og mamma og hitt fólkið er á fullorðinsskemmtuninni en ekki hér í hlöðunni,“ hugsaði Hagbarður. En nú er líka nóg komið.
„Hvutti,“ kallar Hagbarður. „Farðu nú heim“. Samstundis þagnaði Hvutti. Hann veit að Hagbarður meinar: „Komdu“.
Hvutti skokkar til Hagbarðs og dinglar rófunni. Hann er frábær þessi hundur. Hann gegndi aðeins húsbónda sínum. Hver vildi ekki eiga svona hund?
Enginn man lengur hvernig útilegumanna-leikritið endaði en allir muna eftir Hvutta, skemmtilega hundinum. En nú ætla ég að leggja fyrir ykkur erfiða spurningu.
-Finnst ykkur að Hvutti sé vel upp alinn hundur?