×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

Guðrún Kristín Magnúsdóttir: Barnabækur, Apakríli, algjör d… – Text to read

Guðrún Kristín Magnúsdóttir: Barnabækur, Apakríli, algjör dúlla

Beginner 2 Icelandic lesson to practice reading

Start learning this lesson now

Apakríli, algjör dúlla

Apakríli, algjör dúlla. Nei, sko, hann er með hatt. Hann er í dótabúð. Til sölu auðvitað eins og öll hin tuskudýrin í búðinni.

Já, hann er með hatt, barðastóran hatt með blómaskrauti á. Er hann ekki glæsilegur, splunkunýr og plussið hans létt og laust og gljáandi og fallegt? Hann er svo keyptur í dótabúðinni. Honum er stillt upp inni í stássstofu í sófanum. Þar situr hann á silkipúða og tekur sig vel út.

Allir dást að honum.

-Mikið er hann sætur. Og hér situr hann. Gestir sem koma segja: -Mikið er þetta fallegt, gult apakríli, algjör dúlla!

Þessi guli tuskuapi hefur nú raunar aldrei verið skírður neitt sérstakt. En það var svona sem hann hlaut þessi nöfn, apakríli og algjör dúlla. Fallegt gult apakríli, stofuskraut, reglulegur silkipúðaapi og hérna situr hann, bara situr og situr og tekur sig vel út. Þangað til Dúddi fæðist.

Þangað til Dúddi fæðist, já, þá verða mikil umskipti í tilveru apakrílisins. Hann er rifinn upp úr sófanum, hatturinn tekinn af honum og hatturinn geymdur inni í skáp því hatturinn er of harður fyrir ungabarnið. Apakrílið fær það hlutverk að svæfa Dúdda.

Dúdda þykir vænt um apann af því hann er svo mjúkur. Dúddi bara alltaf með apakrílið, sefur með það, vakir með það, hnoðast með það. Einu sinni gubbar Dúddi litli. Það kemur stundum upp úr litlum krökkum.

Og það fer pínulítið gubb í apann. Það þarf að þvo hann. Kannski er svona fínn plussapi sem meira að segja var með hatt ekki gerður fyrir þvott. Það er ekkert þvottamerki á honum.

En hann er nú samt þveginn og hengdur upp á snúru til þerris eins og ekkert sé sjálfsagðara.

Þegar hann loks er þornaður er hann nú töluvert lúpulegri en í upphafi. Fína plussið er allt klesst og hann er orðinn allt of mjór. Þegar Dúddi er orðinn svona eins árs fær hann að leika sér á gólfinu og apakrílið er þá auðvitað sett á gólfið líka. Og ekki eru handtökin hans Dúdda alltaf mjúk.

Apakrílið er eiginlega mjög heppið að vera bara tuskuapi en ekki lifandi api. Það er ákaflega lýjandi starf að vera uppáhalds tuskudýrið hans Dúdda og vera í vörubílaleik og kubbaleik allan daginn. Apakrílið er ekki lengur splunkunýtt og glerfínt. Ó, nei.

Það er orðið heldur þófið og kleprað og snjáð.

Hugsið ykkur hvernig hann leit út þegar hann var splunkunýr með hattinn fína og þá var plussið aðeins létt og laust og gljáandi og nýtt og fallegt. Það er enginn sem segir lengur:

-Mikið er þetta sætt apakríli. Enginn sem segir: -Algjör dúlla. Apinn er svo dauðþreyttur á kvöldin að hann sofnar oft á undan Dúdda. Þegar Dúddi er orðinn tveggja ára tekur hann apakrílið alltaf með út í kerru.

Apakrílinu finnst gaman í kerru. Mamma hans Dúdda brunar áfram. Mömmur eru svo oft að flýta sér. Dúddi sofnar.

Krakkar sofna svo oft í kerru.

Dúddi missir smátt og smátt takið á apakrílinu. Það sígur meira og meira á ógæfuhlið og á endanum dettur apakrílið út úr kerrunni. Mamma hans Dúdda tekur ekki eftir því. Hún brunar áfram.

Nú eru góð ráð dýr. Hér situr hann og getur ekki annað. Hann er jú bara tuskudýr. Hópur af krökkum kemur.

Þau reka augun í apakrílið sem situr þarna á gangstéttinni. „Nei, sjáið þið þetta, maður, api, apatuskudrusla. “ Þau taka hann upp. „Apaköttur, apaspil, að þú skulir vera til.

Svona grettinn, grár og ljótur, apaköttur, apaspil,“ syngja þau. Og finnst sjálfum þau vera agalega fyndin.

Apinn hefur nú hingað til verið talinn gulur en ekki grár. Auk þess er hann ekki grettinn. Hann er alls ekki ljótur. Að vísu var hann miklu fallegri þegar hann var nýr.

Hann skilur ekki hvað þetta „apaköttur, apaspil“ þýðir og finnst þetta ekkert fyndið. Þau fíflast með grey apakrílið. Þau fleygja honum upp í loftið aftur og aftur. Það getur kannski verið gaman að fá flugferðir en það er bara ekkert að vita hvar hann lendir.

Þessum krökkum er hreint ekki treystandi til að grípa hann. Þetta endar auðvitað með ósköpum. Hann lendir í polli. Drullupolli.

„Oj,“ segja krakkarnir, „ekki hef ég lyst á að veiða hann upp úr. “ Og með það fara þau. Bara labba burt. Apakrílið þolir illa vatn.

Mamma hans Dúdda leyfði Dúdda aldrei að fara með hann í bað. Hún sagði að hann þyldi ekki vatn. Það kom líka berlega í ljós þegar hann var þveginn á sínum tíma. Það vill svo heppilega til að gamall maður á leið fram hjá.

Gamli maðurinn var alinn upp á þeim tímum sem leikföng voru dýrmæt. Þá áttu börn fá leikföng og þá fóru börn vel með það sem þau áttu.

Hann getur ekki horft fram hjá þeirri staðreynd að þessi api, sem einu sinni var gulur og fallegur, mun endanlega eyðileggjast og vera fleygt í svartan sorppoka götusóparans ef ekkert verður að gert. „Komdu hérna, ræfilstuskan mín, “ segir gamli maðurinn. „Þú hefur lent í vosi, greyið mitt. “ Og með það dregur hann apakrílið upp úr.

„Ósköpin öll eru að sjá þig, krílið mitt. Ég verð að vinda úr þér mestu vætuna. Það er ekki sjón að sjá þig. Jæja, enginn er verri þótt hann vökni.“ Það er heilmikil huggun að vita að enginn er verri þótt hann vökni.

„Ég skal biðja hana Beggu mína að þerra þig og þrífa.“

Begga gamla segir, þegar gamli maðurinn kemur heim með apann, að það sé nú ekki nóg að þerra hann, hún verði að þvo hann. „Hann er nú rennblautur hvort eð er,“ segir hún. „Verður varla blautari þótt ég skolpi úr honum, greyinu.“

Við vitum alveg hvernig það fer. Við vitum nú allt um það hvernig plussið lítur út þegar hann kemur upp úr þvottabala. Svona. Það er eina bótin að vatnið er ylvolgt og notalegt.

Begga þerrar hann inni í handklæði. Hún er mjúkhent og móðurleg, gamla konan. Begga hengir hann svo upp fyrir ofan eldavélina. Þar er hlýtt.

„Það móar úr honum þarna, “ segir hún. „Svo kembi ég hann og geri hann fallegan á ný.“ Begga sest með apakrílið þegar það er þornað og kembir plussið lokk fyrir lokk. „Nú, þetta er hið snotrasta apakríli.“ „Eða við skulum segja að þetta hefur nú einhvern tímann verið hið snotrasta apakríli. Hann hefur nú eflaust séð fífil sinn fegurri, litla skinnið.“ Apinn skilur auðvitað ekki þetta með fífilinn. Hann hefur aldrei átt neinn fífil.

„Hver skyldi eiga hann? “ velta gömlu hjónin fyrir sér. „Einhver lítill krakki hefur týnt honum, misst hann í götuna.“ Gömlu hjónin vita ekki að það var Dúddi litli sem týndi apakrílinu. Þau þekkja Dúdda ekki neitt og mamma hans Dúdda veit ekkert hvar apakrílið hefur týnst og tuskuapi kann ekki að tala. Dúddi er áreiðanlega háttaður og kominn upp í rúm. Dúddi vill áreiðanlega fá apann sinn til að geta sofnað.

„Ó,“ segir mamma hans Dúdda áreiðanlega, „apakrílið hefur dottið úr kerrunni í dag.“ Mamma hans Dúdda raðar áreiðanlega mörgum tuskudýrum í kringum Dúdda í rúminu en apann vantar.

„O, jæja,“ segja gömlu hjónin. Við erum líklega eins og þetta apakríli, alveg hætt að gera nokkurt gagn.

„Kannski við höfum líka séð fífil okkar fegri,“ segja þau og brosa. „Ég er að velta fyrir mér,“ segir Begga gamla, „hvort lífið hefði verið betra ef ég hefði bara alltaf setið inni í stássstofu með fínan hatt. Það væri ósköp ömurlegt ef lífið væri eingöngu stássstofur, silkipúðar, tilgangsleysi og innantómt fínerí. Ég hefði bara verið einhver dúlla.”

„Æ, svarar gamli maðurinn. Ég held að það hefði verið hræðilega leiðinlegt að gera aldrei neitt gagn í lífinu.“

Sem þau sitja þarna í litlu stofunni öll þrjú, -- dreymin á svip, þögul, hugsi -- gamli maðurinn og gamla konan sem einu sinni voru ung og tuskuapinn sem einu sinni var silkipúðaapi með blómahatt, heyrist undarlegt væl, mjálm, „mjá“, ámátlegt mjálm úti.

Gamli maðurinn opnar. Inn trítlar agnarlítill kettlingur sem er alveg villtur. „Nú, hvað er þetta ræfilstuska,“ segir Begga gamla. „Þú ert sársvöng, kisa litla. Ratarðu ekki heim, garmurinn minn, eða áttu hvergi heima?“

Kisa litla vill alls ekki fara út aftur, enda er komin nótt. Hún hoppar upp hjá apakrílinu og kúrir sig þar.

„Nú, við verðum víst að skjóta skjólshúsi yfir þau í nótt,“ segja gömlu hjónin. „Svo skulum við auglýsa í blaðinu á morgun: gult apakríli og pínulítil hvít læða í óskilum. Nú, ef enginn gefur sig fram verðum við líklega að taka þau að okkur. Þau hafa svo sannarlega þörf fyrir okkur.“ Gamli maðurinn tekur utan um herðarnar á gömlu konunni og kyssir hana góða nótt.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE